Morgunblaðið - 25.04.2014, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2014
Ryðfrí samtengi
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Varanleg tengi fyrir flestar gerðir af pípum og rörum.
Auðveld samsetning og alvöru þétting.
einstakt
eitthvað alveg
STOFNAÐ1987
| S k i p h o l t 5 0 S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
VA
XTALAUS
M
ál
ve
rk
:
A
u
ð
u
r
Ó
la
fs
d
ó
tt
ir
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta eru dagbækur mínar, í mynd-
um,“ segir myndlistarkonan Anna
Jóelsdóttir og tekur eina harm-
ónikkubókina ofan af hillu. Hún
teygir á henni þannig að samhang-
andi myndirnar birtast, hver á fætur
annarri; litríkar línuteikningar, með
abstrakt kjörnum sem tengjast. Á
sýningu Önnu, sem stendur þessar
mundir yfir í Ásmundarsal Lista-
safns ASÍ, gefur að líta þessi for-
vitnilegu bókverk, auk þess sem á
veggjum eru málverk á striga og svo
flæða önnur litrík málverk um sal-
inn, um veggi og upp í loft. Þetta eru
þrívíð verk sem bylgjast og sveigjast
um, sundurklippt og fléttuð; verk
sem eiga rætur í persónulegri
reynslu, listasögunni og eru einnig
túlkun á uppbrotinni og tættri til-
veru.
Anna nam myndlist í Chicago, þar
sem hún hefur verið búsett í rúma
tvo áratugi. Hún starfar með gall-
eríum vestra en finnst mikilvægt að
koma hingað heim og sýna; síðasta
einkasýning hennar hér var einnig í
Listasafni ASÍ, fyrir sjö árum.
„Þetta er mitt myndmál, ég hugsa
í abstrakt myndum, línum og form-
um,“ segir hún og flettir áfram bók-
inni. „Í þessari bók eru til að mynda
smásögur, abstrakt myndir sem ég
gaf síðan titla. Tungumálið og mynd-
málið mætast.“
Sýninguna kallar hún Brot og
vissulega eru verkin brotin upp, á at-
hyglisverðan hátt, þar sem litríkur
myndheimur listakonunnar flæðir
um salinn.
„Verkin vinn ég á meðvitaðan hátt,
fylgi því sem ég hugsa og sé fyrir
mér,“ segir hún. „Ég nota mikið
penna en skilgreini þetta allt sem
málverk – ég er málari.
Fyrstu árin var ég bara að mála
myndir á striga en hef innan ramm-
ans alltaf reynt að komast lengra og
dýpra, búa til innri rými. Svo kom að
því að fyrrverandi kennari minn í
listaháskólanum í Chicago bauð mér
að búa til innsetningu í ónýta lyftu og
ég sá að þar gæti ég ekki sýnt hefð-
bundin málverk. Á vinnustofunni
lágu nokkur prik uppi við vegg og ég
tók eitt þeirra og fór að mála á það.
Að lokum var komið verk allan
hringinn, mér líkaði útkoman og bjó
til verk á tuttugu slík prik.“ Anna
sýndi slík málverk í Nýlistasafninu
fyrir nokkrum árum.
„Þessi verk hér þróuðust á svip-
aðan hátt,“ segir hún og bendir á
málverkin á plastkenndum örkum
fyrir tækniteikningar sem sveigjast
upp í loftið. „Ég hafði málað á svona
efni og hengt örkina upp á vegg.
Einn daginn beyglaði ég hana saman
og festi síðan aftur upp, þá fannst
mér eitthvað áhugavert gerast. Nú
mála ég á örk eftir örk, á báðar hlið-
ar, og sumar arkirnar nota ég á sýn-
ingu eftir sýningu, alltaf á nýjan
hátt. Ég er alltaf að sortera, taka
sundur og setja saman, aftur og aft-
ur að skapa eitthvað nýtt, úr því
sama – án þess að það sé það sama.
Svona er endapunkturinn – í þetta
sinn.“ Hún þagnar og lítur í kringum
sig, með verkin flæðandi allt um
kring.
Anna lærði fyrst menntavísindi og
er með meistaragráðu á því sviði.
Eftir að hún hafði haldið heimili hér
á landi ásamt bandarískum eig-
inmanni í sex ár, bauðst honum góð
staða í Chicago og þau fluttu út. Það
var fyrir 22 árum. Mál æxluðust
þannig að Anna fór að læra myndlist
og lauk árið 2002 meistaranámi á því
sviði.
„Síðan hef ég unnið hörðum hönd-
um að listinni,“ segir hún. „Ég er
alltaf að, alltaf á vinnustofunni, alltaf
að puða. Ég vinn og sýni og það hef-
ur gengið mjög vel. Ári eftir útskrift
var mér boðin einkasýning í Museum
of Contemporary Art í Chicago og
það skipti miklu máli. Fljótlega eftir
það fór ég að vinna með galleríi í
New York og vinn einnig með öðru í
Chicago.“
Hún bætir við að það sé sér mik-
ilvægt að koma hingað heim með
verkin að sýna.
„Þótt ég hafi lært úti og orðið fyrir
miklum áhrifum þar, þá tekur eng-
inn upprunann af manni. Í verkunum
er alltaf eitthvað sem tengist honum.
Í þeim eru eflaust áhrif af landslag-
inu, fólki og ýmsu öðru, ómeðvitað.
Ég nýt þess að vera í Chicago en við-
urkenni að hugurinn er klofinn, ég er
alltaf með hugann á báðum stöðum í
einu, þar og hjá fjölskyldunni hér.“
Tungumálið og myndmálið mætast
Málverk Önnu Jóelsdóttur hlykkjast
um Ásmundarsal Listasafns ASÍ
Morgunblaðið/Einar Falur
Flæði „Ég er alltaf að sortera, taka sundur og setja saman, aftur og aftur að skapa eitthvað nýtt,“ segir Anna.
Morgunblaðið/Einar Falur
Dagbók Anna handleikur eitt litríkra bókverkanna á sýningunni.