Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 17
*Hlátur er tímalaus.Ímyndunarafl hefur engan aldur.
Draumar lifa að eilífu.
Mína mús.
13.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Hvar og hvenær? Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi, laugardag kl. 14.
Nánar: Fjölskyldan hefur kost á því að föndra saman
páskaskraut. Allt efni á staðnum.
Páskaföndur
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, er
þriggja barna faðir og mikill fjölskyldumaður. Hann er
giftur Írisi Ösp Bergþórsdóttur.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Þátturinn sem allir geta horft á eins og staðan er
núna er Ísland got talent. Það er
gríðarspenna á heimilinu og
hver á sinn uppáhalds-
keppanda. Svo er Simp-
son alltaf fínn fyrir alla í
fjölskyldunni.
Maturinn sem er í uppá-
haldi hjá öllum?
Maturinn sem enginn á heim-
ilinu kvartar yfir er líklega hakk og spag-
ettí. Það eru allir voða sáttir þegar það er á
borðum. Svo er heimagerða pítsan á föstudögum
að sjálfsögðu fastur liður.
Skemmtilegast að gera saman?
Okkur finnst voða gaman að fara í bústað með vin-
um og vandamönnum og svo eru börnin okkar orðin
ansi kaffihúsavön. Þar er oft sest niður, drukkið kaffi og
kakó og málin rædd, blöð og bækur lesin.
Borðið þið morgunmat saman?
Við borðum yfirleitt saman morgunmat; það er í svolitlum flýti á virkum
morgnum en meiri rólegheit um helgar. Um helgar er oftast hent í smábei-
kon og klaki settur í djúsinn.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Til dægrastyttingar heima er mikið púslað og klippt út blöð og annað í
þeim dúr. Auk þess skellum við okkur oft á hjól og tætum eitthvað út í bláinn,
enda nauðsynlegt að viðra þessi kvikindi.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Hent í beikon um helgar
Sverrir Þór
Sverrisson
Verslunin Spilavinir hefur verið starfrækt um sjö ára
bil og hefur notið mikilla vinsælda. „Við höfum frá upp-
hafi lagt mikla áherslu á að efla jákvæða spilamenn-
ingu með því að kenna spil í búðinni, í skólum, á frí-
stundaheimilum, bókasöfnum og elliheimilum,“ segir
Svanhildur Eva Stefánsdóttir en hún og Linda Rós
Ragnarsdóttir stofnuðu verslunina árið 2007. Verslunin
er til húsa í bláu húsunum í Faxafeni. „Við eigum mikið
úrval spila sem henta börnum jafnt sem fullorðnum.
Spilastund er skemmtileg afþreying sem eflir samskipti
fólks. Sjálfar spilum við ekki aðeins í vinnunni heldur
líka heima enda er það svo gefandi stund.“
Ókeypis á spilakvöld
Spilavinir efna reglulega til spilakvölda í versluninni
fyrir fullorðna og unglinga en aðgangur að þeim er
ókeypis. Spilavinir hafa líka verið samstarfi við Gerðu-
berg og Borgarbókasafnið um að halda spilastundir
fyrir almenning innan þeirra veggja. Þá er mikil eft-
irspurn eftir Spilavinum á bekkjarkvöld, en það er
rukkað ákveðið gjald fyrir þau. „Við leggjum mikið upp
úr því að foreldrar séu með í spilum og þess vegna er
það skilyrði hjá okkar að foreldrar og börn séu saman í
spilum á bekkjarkvöldum. Það kemur mörgum á óvart
en við leggjum mikla áherslu á það. Það breytir engu
þó að krakkarnir séu í 10. bekk. Þau halda oft að þau
geti verið án foreldra en við gefum ekkert eftir með
það því það er einmitt á þessum aldri sem það er svo
mikilvægt að fjölskyldan geri eitthvað skemmtilegt
saman.“
Svanhildur segir kosti við að spila vera margskonar.
Augljósi kosturinn sé samveran en auk þess fléttast
inn í það ýmsir bónusar. „Spilin byggjast á samveru en
það er margskonar nám og þjálfun sem á sér stað í
spilum. Stærðfræði er til að mynda í öllum spilum,
samlagning, margföldun, líkindareikningur og bara
heilmikil rökhugsun. Í spilum erum við að þjálfa hug-
arreikning. Einnig erum við að þjálfa atriði sem er
mikilvægt í spilum og í lífinu og það er tillitssemi. Ef
spiluð eru þyngri spil þar sem nota þarf útsjónarsemi
og rökhugsun er mikilvægt að vera tillitssöm svo
ánægjan hjá öðrum sé ekki eyðilögð.“ Svanhildur segir
þó stærsta þáttinn byggjast á samveru.
gunnthorunn@mbl.is
SPIL HAFA ÝMSA KOSTI OG ÞJÁLFA HUGARREIKNING OG RÖKHUGSUN
Spilavinir efna reglulega til spilakvölda í versluninni fyrir
fullorðna og unglinga en aðgangur að þeim er ókeypis.
Morgunblaðið/Golli
Fjölskyldur sameinast í spili
Um páskana nýta eflaust margar
fjölskyldur fríið í ferðalög. Sumir
fara á skíði, aðrir upp í sumarbústað
og sumir eru jafnvel svo heppnir að
hverfa út fyrir landsteina. Ein-
hverjir halda sig við einfaldleikann
og hjúfra sig heima í notalegheitum.
Í Vísindabók Villa má finna ým-
islegt sniðugt og margt þar fyrir
fjölskylduna að dunda við um
páskana, eins og til dæmis tilraunir.
Hér kemur sniðug tilraun sem
auðveldlega er hægt að framkvæma
heima og ekki fyrirferðarmikil fyrir
foreldrana.
Athugið að um er að ræða alvöru-
tilraunir og því þurfa allir að fara
varlega!
Draugaleg sápukúla
Efni í tilraun
Vatn í stórri skál eða glasi
Skeið eða hanski
Nokkrir kubbar af þurrís, en
aðeins einn ef um er að ræða glas.
Nauðsynlegt að nota
hanska þegar
þurrís er með-
höndlaður
Sápuvatn
til að gera sápukúlur,
uppþvottalögur og vatn
hentar vel
Bútur úr
tusku
eða
efni
Framkvæmd Þurrísinn er settur
í skálina og örlitlu vatni hellt yfir.
Skálin verður eins og nornapottur
fullur af galdraseiði. Tuskunni er
dýft ofan í sápuvatnið sem er í sér-
skál þar til hún verður blaut í gegn.
Tuskan er síðan dregið eftir barm-
inum á skálinni með þurrísnum í og
svo yfir vökvann í skálinni til að
setja sápulag efst. Ótrú-
legir hlutir gerast
þá og sápukúla
myndast sem
stækkar og stækkar.
HVAÐ ÆTLAR FJÖLSKYLDAN AÐ BAUKA UM PÁSKANA?
Heimatilbúnar
tilraunir
Morgunblaðið/Eggert
4 vikna
vornámskeið
hefst 26. apríl
Upplagt til kynningar fyrir byrjendur.
Upplýsingar í síma 561 56 20.
Vilhelm Anton Jónsson eða Villi sýnir hér börnum í Austurbæjarskóla ýmislegt
snjallt og skrítið úr heimi vísindanna.