Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.4. 2014
Heilsa og hreyfing
Streita sem fylgir daglegu lífi
flestra getur haft ýmsa fylgikvilla.
Svefnleysi, óeirð og jafnvel kvíði
hrjáir marga en sumir taka
streituna og gremjuna út á tönn-
unum. Komið hefur í ljós að
nærri því 1 af hverjum 10 Bret-
um gnístir tönnum í tíma og
ótíma með þeim afleiðingum að
þær geta skemmst.
Tannskurðlæknirinn dr. Nigel
Carter, yfirmaður British Dental
Health Foundation, segir þetta
vera vaxandi vandamál meðal
Breta. „Það leikur enginn vafi á
því að streita í daglegu lífi fólks
hefur áhrif á þessa hegðun með-
an fólk er vakandi,“ segir Carter
en meiri hætta er að hans sögn á
skemmdum hjá þeim sem gnísta
saman tönnum yfir daginn.
Eðlileg hreyfing kjálkans
Karl Örn Karlsson, tannlæknir
og lektor við tannlæknadeild Há-
skóla Íslands, segir gnístran
tanna vera eðlilega hreyfingu á
kjálkanum þegar fólk rumskar í
svefni. „Ég reikna með að margir
gnísti tönnum í svefni. Almennt
er það ekki vandamál en þessir
fáu sem gnísta meira en góðu
hófi gegnir geta þá fengið góm til
að koma í veg fyrir skemmdir,“
segir Karl en hann segir eðlilega
líffræðilega ástæðu fyrir því að
fólk gnísti tönnum í svefni. „Ver-
ið er að koma af stað munn-
vatnsflæði svo munnurinn þorni
ekki meðan við sofum.“
Mikilvægt er að greina á milli
þeirra sem gnísta tönnum í
svefni og þeirra sem gnísta tönn-
um saman yfir daginn. Karl segir
það alls ekki útilokað að þeir
sem gnísti tönnum yfir daginn
geri það vegna streitu eða
stress.
Margir gnísta tönnum í svefni
Gera verður greinarmun á þeim sem gnísta tönnum í svefni og þeim sem gera
það vakandi en streita og stress getur valdið því að fólk gnísti vakndi.
Morgunblaðið/Arnaldur
STRESS SEM FYLGIR DAGLEGU LÍFI GETUR HAFT ÁHRIF Á TANNHEILSU OKKAR
R
annsóknir lækna og fræðimanna sýna að
kynin upplifa gjarnan aðdraganda hjarta-
áfalla og kransæðastíflna með ólíkum
hætti. Einkennin virðast vera nokkuð ólík
eftir því hvort um karla eða konur er að ræða.
Dæmigert er að þyngsli fyrir brjósti og verkur í
vinstri handlegg tengist hjartakvilla eða þrengslum
í æðakerfinu. Sú er hins vegar fyrst og fremst raun-
in í tilfelli karla en ekki kvenna. Þær upplifa miklu
frekar erfiðleika varðandi öndun, svita og kviðverki.
Gera þarf greinarmun á
konum og körlum
Dr. Johnson er sérfræðingur í hjartasjúkdómum við
Brigham and Women’s Hospital í Boston-ríki í
Bandaríkjunum. Hún hefur í störfum sínum
sérstaklega beitt sér fyrir bættri heilsu
kvenna. Hún er þeirrar skoðunar að bein-
línis sé hættulegt að meðhöndla kynin
eins þegar kemur að heilsufari og seg-
ir afleitt að steypa kynin í sama mót.
Slíkt sé hættulegt heilsu kvenna og hún
kallar eftir hugafarsbreytingu í vinnu-
brögðum í heilbrigðisgeiranum hvað
þetta varðar.
Dr. Johnson hélt athyglisverðan
fyrirlestur í lok síðasta árs á
TED-ráðstefnunni í San Franc-
isco-ríki í Bandaríkjunum. Í
máli hennar kom til að mynda
fram að konur væru 70% lík-
legri til þess að finna fyrir
einkennum þunglyndis á lífs-
leiðinni heldur en karlar.
Ýmis einkenni hjá kon-
um á borð við kvíða
séu þó ekki alltaf með-
höndluð sem þunglyndi heldur fái konur ranga
greiningu hjá læknum í 30-50% tilfella. Dr. Johnson
tók þetta sem dæmi í fyrirlestri sínum og greindi
frá því að um sextugt hefði móðir hennar orðið fyrir
barðinu á þunglyndi og aldrei náð sér að fullu. Hún
bendir á að munur á milli kynjanna sé talsverður í
fjölmörgum algengum sjúkdómum.
Frumur eru karl- og kvenkyns
Dr. Johnson segir að frumurnar í mannslíkamanum
séu kyngreindar. Mannskepnan sé því karl eða kona
alveg inn að beini og flest líffæri séu ólík eftir kynj-
um. Fyrir rúmum tuttugu árum var fyrst farið að
horfa til þessa og á þeim áratugum sem liðnir eru
hefur ýmislegt breyst að mati Johnson. Hún vill þó
gera betur í því að fyrirbyggja alvarleg veikindi hjá
konum. Mun betur.
Johnson nefndi þrennt í fyrirlestri sínum. Í fyrsta
lagi hjartasjúkdóma sem eru algengasta dánarorsök
kvenna í Bandaríkjunum. Í öðru lagi lungnakrabba-
mein sem dregur fleiri konur til dauða í Bandaríkj-
unum en aðrar tegundir krabbameins. Í þriðja lagi
þunglyndi sem er algengasta orsök örorku hjá kon-
um í heiminum.
BRAUTRYÐJANDINN DR. PAULA JOHNSON
Sjúkdómar herja
á kynin með
ólíkum hætti
* TED-samtökin standareglulega fyrir ráðstefnum og
fyrirlestrum í hinum ýmsu
málaflokkum og starfs-
greinum.
* TED er skammstöfunfyrir Technology, Entertain-
ment and Design eða tækni,
afþreyingu og hönnun á hinu
ástkæra ylhýra.
* Fyrirlestur dr. Johnsonfrá því í desember má nálgast
á netmiðlinum Youtube.com
undir heitinu: Paula Johnson:
His and hers … healthcare.
DR. PAULA JOHNSON HEFUR UNNIÐ BRAUTRYÐJENDASTARF MEÐ RANN-
SÓKNUM SÍNUM. HÚN NÁLGAST HJARTASJÚKDÓMA ÚT FRÁ ÞVÍ HVORT
KYNIÐ ER UM AÐ RÆÐA OG SEGIR VERA TALSVERÐAN MUN Á ÞVÍ HVERN-
IG SJÚKDÓMAR HRELLA KARLA ANNARS VEGAR OG KONUR HINS VEGAR.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Áreitið sem fylgir snjalltækjum getur verið yfirþyrmandi. Leikir og smáforrit sem ætluð eru til dægrastyttingar geta
jafnvel orðið til þess að auka á streitu og valda kvíða. Smáforritið Personal Zen, sem fáanlegt er í App Store fyrir
iPhone, er þróað af vísindamönnum og hugsað sem vopn í baráttunni við kvíða og streitu, eins konar hvíldar- og
hugleiðsluforrit. Forritið spilar tónlist sem róar hugann og miðar að því að fá notandann til að hugsa jákvætt.
Smáforrit gegn streitu
Paula A. Johnson fæddist árið
1959. Hún er í raun bæði starf-
andi læknir og fræðimaður og
býr í Massachusettsríki. Johnson
lærði líffræði í Harvard og fór
síðan í læknisfræði í sama skóla.
Hún útskrifaðist bæði sem lækn-
ir og með meistaragráðu í
lýðheilsufræði árið
1985. Hún sérhæfði sig
síðar í hjartasjúk-
dómum en hún
starfar sem deild-
arstjóri hjá Brigham
and Women’s Hosp-
ital. Auk þess er hún
prófessor í
læknisfræði
við Harward
og stjórn-
arformað-
ur Mary
Connors
Center
for
Wo-
men’s
Health.
Læknir og
lýðheilsu-
fræðingur
Ekki er víst að karlar og konur finni fyrir sömu einkennum sjúkdóma.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Dr. Paula
Johnson