Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.4. 2014
Matur og drykkir
É
g hafði alltaf verið meðvituð um hollar venjur og reynt svona að
vanda aðeins það sem ég lét ofan í mig. Fyrir um átta árum
fór ég að gera þetta markvissara og í janúar síðastliðnum tók
ég þetta síðan skrefinu lengra og tók sykurinn og glútenið út,“
segir Valdís spurð út í áhuga hennar á mat og matargerð. Bætir hún
létt í bragði við að fjölskyldan sé öll til í að smakka tilraunir hennar án
fyrrnefndra hráefna, þótt börnin þrjú séu mishrifin af afrakstrinum.
„Þau eru öll alveg til í smakka en ég vil að þau séu alveg hreinskilin
um hvað þeim finnst. Það er helst að eldri dóttirin kunni að meta þetta
holla en hin vilja stundum bara kanilsnúð,“ segir hún kankvís.
Instagram við upplýsingaleit
Valdís segir breytinguna í mataræðinu ekki hafa komið mjög auðveld-
lega enda leynist sem dæmi sykurinn í svo mörgum matvælum. „Það
er í raun ekki fyrr en maður tekur sykur út sem maður áttar sig á
hversu mikið af honum maður hefur verið að borða, þótt maður hafi
talið sig borða nokkuð hollt. Sykurinn er í nánast öllu, bara í mismun-
andi formi,“ segir Valdís.
Hún segist nýta sér vefinn óspart til að leita sér fróðleiks, bæði um
ný hráefni og uppskriftir, auk þess sem hún hefur miklar mætur á In-
stagram-myndaforritinu. „Ég nota það mjög mikið og finnst það frá-
bært til að afla fróðleiks. Þarna getur maður fylgst með fólki með
sömu áhugamál, úti um allan heim, sem bendir líka oft á flottar vefsíð-
ur, bloggara og aðra sem eru að gera eitthvað áhugavert í þessum
efnum,“ bætir hún við.
Heilari kveikjan að blogginu
Sjálf hóf Valdís að blogga fyrir nokkru, þar sem hún vildi geta nálgast
uppskriftir og upplýsingar sem hún hafði viðað að sér, og kunni að
meta, á einum miðlægum stað. Heldur hún úti vefsíðunni ljomandi.is
þar sem nálgast má mikið af hollum og girnilegum uppskriftum, auk
ýmiskonar fróðleiks. „Það var eiginlega vinkona mín sem hvatti mig til
að byrja á þessu en ég hafði svolítið verið að nota vini mína sem til-
raunadýr. Hún er heilari og var svolítið gaman að fá þetta frá henni,“
segir Valdís.
Spurð að því hvar henni finnist best að versla segist hún hrifin af
vörunum frá Sollu á Gló, enda handhægt að geta nálgast þær í stór-
mörkuðum. „Mér finnst líka frábært úrval af glútenlausu mjöli í
Kosti,“ bætir hún við og segist m.a. nota mikið bókhveiti, maísmjöl og
fleiri tegundir svo sem teff-mjöl, sem hún hefur þó enn ekki fundið
hér á landi. „Síðan elska ég auðvitað mest að versla í Whole Foods er-
lendis en ég vegna starfsins kemst ég þangað reglulega. Það er allt
svo fallegt þar og skemmtilegt að skoða,“ bætir hún við.
Valdís gefur hér uppskrift að ljúffengri súkkulaðiköku án hveitis og
heimagerð hrökkbrauðs sem er afar einfalt að gera. Viðurkennir hún
að henni hafi tæplega litist á blikuna þegar hún bakaði kökuna í fyrstu
en í hana er m.a. notað kínóa í stað hveitis. „Síðan kom þetta svona
líka rosalega vel út – það var svo gaman að sjá hvað hægt er að búatil
úr svona óhefðbundnu hráefni í kökubakstri,“ segir hún að endingu.
Morgunblaðið/Kristinn
SKEMMTILEGAST AÐ VERSLA Í WHOLE FOODS
Sykurinn leynist víða
Í UPPHAFI ÁRS ÁKVAÐ VALDÍS SIGURGEIRSDÓTTIR FLUGFREYJA AÐ TAKA GLÚTEN OG SYKUR ÚT ÚR MATARÆÐI
SÍNU. HÚN SEGIR BREYTINGUNA EKKI HAFA KOMIÐ AUÐVELDLEGA, ENDA LEYNIST SYKURINN VÍÐA. FANN HÚN
STRAX MIKINN MUN, EKKI SÍST Í LJÓSI VANVIRKS SKJALDKIRTILS SEM HÚN HEFUR LENGI GLÍMT VIÐ.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Valdís segir eiginmanni og börn alveg til í að prófa tilraunir hennar. Hér
er hún ásamt þeim Eddu Berglindi, Bjarka Viðari og Hönnu Birnu.
1 dl maísmjöl
1 dl bókhveitimjöl
1 dl sesamfræ
½ dl mulin hörfræ (í kaffikvörn)
½ dl sólblómafræ
½ dl hampfræ
1⁄4 dl chia-fræ
21⁄4 msk. kókosolía
2½ dl soðið vatn
smálaukduft
birkifræ
smásalt í deigið og til að strá yfir
Aðferð: Hrærið saman þurrefnunum. Sjóðið
vatn og setjið fljótandi kókosolíuna út í og
hrærið saman við deigið.
Setjið bökunarpappír á plötu, síðan deigið,
annan bökunarpappír þar ofan á og dreifið um
plötuna með höndunum. Þannig klístrast ekki
hendurnar og mun auðveldara að eiga við.
Stráið smá birkifræjum og salti yfir og setjið
bökunarpappírinn aftur yfir og þrýstið létt.
Skerið í kex með pitsuskera.
Bakið við 175° C í 25-35 mínútur.
Þetta hrökkbrauð er svo gott og svakalega
einfalt að gera. og svo miklu betra og hollara
en margt af því sem fæst úti í búð. Það er
meðal annars ótrúlega gott með t.d. hummus,
rauðrófumauki eða bara smjöri og osti.
Hrökkbrauð með
laukbragði