Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 32
G
ísli Ragnar Jóhannesson
starfar við matreiðslu á
Fiskmarkaðnum og er
þaulreyndur þegar kemur
að matargerð. Hann gerði sér lítið
fyrir og bar á borð dýrindis rétti fyrir
gesti sína. Asískur blær sveif yfir
vötnum og réttirnir voru bæði litríkir
og bragðgóðir.
Gísli bauð upp á kjúkling í rauðu
karríi, nauta „stirfry“, sjávarréttasalat
og papajasalat og ljóst er að fjöl-
breytnin var í fyrirrúmi þetta kvöld.
„Ég hef áhuga á öllu sem tengist
matargerð. Það er bæði gaman að
elda og svo gaman að fara út að borða
og upplifa eitthvað nýtt,“ segir Gísli.
„Þetta kvöld ákvað ég að hafa as-
ískt þema og eldaði taílenska rétti.
Mig langaði aðeins að æfa mig í því.
Bróðir minn var væntanlegur í heim-
sókn ásamt konu sinni og dóttur sem
er ekki orðin eins árs. Þau búa í
Keflavík og fá sjaldan taílenskan mat.
Ég greip því tækifærið og eldaði
nokkra rétti fyrir fjölskylduna.“
Sjálfur segir Gísli taílenska mat-
argerð ekki vera flókna og allir ættu
að geta spreytt sig á henni.
„Undirbúningurinn skiptir mestu
máli. Gott er að hafa allt tilbúið til
hliðar og svo blandar maður öllu sam-
an. Flóknara þarf það ekki að vera.“
„Uppáhaldsrétturinn minn er pa-
pajasalatið. Það er mjög spennandi
réttur. Öllu ægir þar saman. Salatið
ÓGLEYMANLEG KVÖLDSTUND MEÐ FJÖLSKYLDUNNI
Súrt, sætt og
allt þar á milli
GÍSLI RAGNAR JÓHANNESSON BAUÐ SÍNUM NÁNUSTU UPP Á
FJÖLBREYTTA ASÍSKA RÉTTI SEM VORU HVER ÖÐRUM GIRNILEGRI.
María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.4. 2014
Matur og drykkir
Fyrir 4
500 g grænt papya
8 stk. kirsuberjatómatar
100 g strengjabaunir
50 g salthnetur
100 ml safi af lime
3 msk. fiskisósa
1 msk. sykur
1 hvítlauksgeiri
1 stk. rauður chilipipar
Setjið limesafann, fiskisós-
una, sykurinn, hvítlaukinn og
chilipiparinn í blandara eða
litla matvinnsluvél. Vinnið vel
þangað til allt er maukað.
Geymið til hliðar. Skrælið pa-
paja í tvennt, kjarnhreinsið
með skeið og skerið í þunna
strimla. Svo er líka hægt að
rífa það niður með rifjárni.
Skerið strengjabaunirnar í
þunna strimla, tómatana í
tvennt og grófsaxið hnet-
urnar. Bætið svo strengja-
baunum, tómötunum og
hnetunum í skálina. Setjið
dressinguna yfir salatið og
blandið vel saman.
Papajasalat
Fyrir 4
800 g kjúklingabringur
1 stk. gulur laukur
2 stk. hvítlauksgeirar
1 askja flúðasveppir
300 ml kókosmjólk
3 tsk. rautt karrímauk
1/4 búnt saxað kóríander
olía til steikingar
Skerið kjúklingabringurnar í
tvennt og svo í þunnar sneiðar
og setjið til hliðar. Skerið lauk-
inn í strimla, saxið hvítlaukinn
og skerið sveppina í þunnar
sneiðar. Hitið olíuna í stórri
pönnu og steikið laukinn, hvít-
laukinn og sveppina við með-
alhita í 3 mínútur og hrærið vel í
á meðan. Bætið karrímaukinu
við og eldið í 1 mínútu til við-
bótar. Bætið kjúklingnum við,
sjóðið í tvær mínútur og hrærið
vel í á meðan. Bætið þá kók-
osmjólkinni við og látið allt
malla í um 20 mínútur. Smakkið
til með salti og pipar og bætið
kóríander við. Berið fram með
hrísgrjónum.
Kjúklingur í rauðu karrí