Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 49
13.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
praktísk í námi. Þegar ég var hjá McKinsey
var ég alltaf að hugsa um hvernig ég kæmist
inn í tískuheiminn. Þá var fólk með MBA
ekkert sérstaklega vel metið í tískuheiminum
en það hefur breyst rosalega á síðustu 15 ár-
um.“ Áslaug segir fleiri viðskiptamenntaða
einstaklinga sækja í tískuheiminn, sér-
staklega vegna þess að núna hafi svo mörg
netfyrirtæki náð miklum frama. „Ég fékk
loksins tækifæri til að fara óbeint í tísku með
því að hefja störf hjá Baugi í London. Baug-
ur var náttúrlega mikið að vinna í fjárfest-
ingum í tísku og ég var að vinna í sumum af
þessum stóru fjárfestingum, ég fékk síðan
meiri og meiri áhuga á aðeins smærri tísku-
merkjum. Mér fannst svo gaman þegar ég
gat verið að vinna beint með hönnuðinum og
leiðbeint meira.“ Áslaug giftist núverandi
eiginmanni sínum Gabriel Levy árið 2005, á
meðan hún var búsett í London. Gabriel er
bandarískur en þau höfðu kynnst í Harvard.
Áslaug á einnig son, Gunnar Ágúst Thorodd-
sen, úr fyrra hjónabandi. „Við ákváðum að
fara til New York árið 2006, en þá hafði ég
verið í sex ár í London.“
Áslaug komst snemma í samband við Mar-
vin Traub, í gegnum gamlan skólafélaga úr
Harvard. Marvin hafði verið forstjóri Bloom-
ingdales í 22 ár en hafði stofnað ráðgjaf-
arfyrirtæki árið 1990 með áherslu á að að-
stoða tískuhús. „Ég hitti Marvin í fyrstu
vikunni minni í New York og hann réð mig á
staðnum. Þetta var lítið ráðagjafarfyrirtæki,
þar starfaði ég ásamt Marvin, Mortimer Sin-
ger og aðstoðarfólki. Hið týpíska verkefni
fyrirtækisins snérist um að færa merki inn á
Bandaríkjamarkað og hjálpa svo bandarísk-
um merkjum að fara til annarra landa. Mar-
vin var „The ultimate networker“. Á hverjum
degi hélt hann einn eða tvo morgunverð-
arfundi og einn eða tvo hádegisverðarfundi
þar sem hann var alltaf að hitta forstjóra,
hönnuð eða einhvern í bransanum, og ég fór
yfirleitt með honum. Í gegnum það kynntist
ég alveg ótrúlega mörgum.“ Áslaug, Marvin
og Mortimer stofnuðu síðan saman fjárfest-
ingafyrirtækið TSM Capital og fjárfestu í
Rachel Roy og Matthew Williamson en eftir
hrunið ákváðu þau að fjárfesta ekki meira í
bili. Áslaug á enn hlut sinn í fyrirtækinu en
sagði upp störfum og hóf að starfa fyrir vef-
síðuna Gilt. Áslaug sá um sérstakan hluta
síðunnar sem ætlaður var helstu kúnnunum.
Þar var seldur sérstakur lúxusvarningur „Á
meðan ég var hjá Gilt byrjaði ég að hanna
hugtakið fyrir Moda Operandi.“
Kúnninn veit hvað hann vill
Á þessum tíma var Áslaug í miklum sam-
skiptum við marga hönnuði. „Markaðurinn
hafði verið erfiður á þessum tíma og hönn-
uðunum fannst að stóru búðirnar, Barneys
og Bergdorf, væru að kaupa mjög „örugg,“
söluvænleg föt úr línunum þeirra. Hönn-
uðirnir sýndu kannski um 70 mismunandi
flíkur á tískusýningunum og svo keyptu búð-
irnar kannski 20 til 30 flíkur. Hönnuðirnir
voru mikið að kvarta yfir þessu við mig og
hafði ég upplifað það sjálf að sjá eitthvað á
sýningum eða á style.com sem mig langaði í
og komast síðan að því að flíkin yrði ekki
framleidd því búðirnar pöntuðu hana ekki.“
Áslaug segir þetta hafa verið óhentugt fyr-
irkomulag. Hönnuðurinn vildi selja flíkurnar
og kúnninn vildi kaupa þær. „Þetta kerfi
virkaði kannski fyrir 15 árum þegar kúnninn
sá almennt ekki hvað sýnt var á tískusýning-
unum en núna með tilkomu Style.com eru
línurnar komnar á netið klukkutíma eftir
sýningu, það sjá allir allt sem fer á sýning-
arpallana þannig að kúnninn hefur miklu
meiri þekkingu á tísku og veit meira hvað
hann vill. Kúnninn sér flík sem honum líst á
og vill ekki bíða í sex mánuði til að komast
að því hvort hún verður til í Bergdorf eða
ekki og hvort að hún verður í réttri stærð.“
Nýtt netfyrirtæki í bígerð
Hlutverk vefsíðunnar Moda Operandi var að
tengja kúnnann við tískuhúsið nógu snemma
eða áður en tískuhúsið gerði pöntunina sína
hjá verksmiðjunni. Fyrirtækið gekk út á það
að sýna allan fatnaðinn sem birtist á sýning-
arpallinum. „Þannig gat fólk bara pantað það
sem það vildi af sýningunni og tryggt það í
sinni stærð og verið visst um að vera meðal
þeirra fyrstu til þess að fá vöruna,“ segir Ás-
laug sem stofnaði Moda Operandi ásamt
Lauren Santo Domingo sem starfaði áður
hjá Vogue.
Moda Operandi fór af stað í febrúar 2011,
á tískuvikunni í New York og naut strax
mikillar velgengni. „Við unnum með 300
tískuhúsum um allan heim og við gerðum
svolítið af því að fara til útlanda og leita að
flottum merkjum. Það hefur alltaf verið
spennandi og við urðum svolítið þekkt í Am-
eríku fyrir að vera staðurinn til þess að finna
nýju merkin. Við heyrðum það meira að
segja að sumar búðirnar, samkeppnisaðilar
okkar, færu á hverjum morgni á síðuna til
þess að skoða merkin okkar,“ segir Áslaug
og hlær en hún hætti sem forstjóri Moda
Operandi í maí í fyrra og er síðan búin að
vera að vinna að nýju netfyrirtæki sem verð-
ur opnað fljótlega og heitir Tinkertailor.com.
Áslaug segist alltaf hafa verið metn-
aðargjörn, bæði í námi og starfi. „Ég myndi
ekki segja að ég væri mikið að miða mig við
annað fólk, ég hef frekar verið að keppa við
sjálfa mig. Ég hef alltaf vilja gera vel og
standa mig vel en með tískuna finnst mér
það ekkert alltaf vera vinna. Auðvitað er það
stundum vinna og maður er oft uppgefinn en
almennt séð þá hef ég svo rosalega gaman af
þessu. Það sem gerir mig hamingjusama er
samskiptin við hönnuðina, það er alveg uppá-
haldsparturinn af þessu en einnig að byggja
eitthvað frá grunni. Að stofna Moda Oper-
andi er það skemmtilegasta sem ég hafði
gert fram að þessu og að sjá fólk vinna fyrir
mig sem hefur ástríðu fyrir hugtakinu. Ég
horfði stundum yfir herbergið þegar 80
manns unnu þarna, þetta var ótrúlegt að allt
þetta fólk vildi vinna hérna í fyrirtækinu
mínu,“ segir Áslaug og hlær og bætir við að
það sé mikil væntumþykja í fyrirtækinu sem
hún byggði upp frá grunni.
Lykilatriði þess að vera góður í tísku og
starfa í tískuheiminum segir Áslaug að hafa
ágætis vit á tísku. „Ég þarf auðvitað að geta
skoðað myndir og dæmt hvort þær séu nógu
góðar eða ekki og skoðað merki og metið
hvort þau séu nógu góð. Það eru auðvitað
aðrir sem eru miklu betri í því sem ég ræð í
störf hjá mér en ég held að það sé ómögu-
legt að vera góður í tískutengdu starfi nema
að nota bæði hægra og vinstra heilahvel. En
ég veit að minn styrkleiki er á viðskipta-
hliðinni.“
Gott fyrir konur að
vera frumkvöðlar
Spurð hvernig það sé að vera kona í for-
stjórastöðu segir Áslaug það að vissu leyti
erfitt en þó séu konur orðnar mun virtari en
áður í fyrirtækjum í Bandaríkjunum. „Það er
örugglega þægilegra í tískubransanum en
mörgum öðrum að vera kona. Að vera for-
stjóri sem kona held ég að geti verið erfitt, í
tísku er auðvitað ofsalega mikið af konum,
það hefur verið svolítið skemmtilegt að síð-
ustu árin hafa margir af frumkvöðlum sem
hafa verið að stofan tískufyrirtækin verið
konur,“ segir Áslaug en fyrirtæki á borð við
Guilt, Rent-a-Runway og Net-a-porter voru
öll stofnuð af konum. „Ég segi að það sé gott
fyrir konur að vera frumkvöðlar, en ég veit
að það er erfiðara fyrir þær tölfræðilega að
afla fjármagns heldur en karla. Það er við-
urkennt að karlmenn fjárfesta frekar í ung-
um karlmönnum heldur en konum. Aðal-
atriðið er að hafa ástríðu fyrir því sem
maður er að gera og vera góður í því, þá
nær maður langt. Ég held þó að þetta sé allt
að breytast rosalega hratt og eftir fimm ár
verður örugglega miklu auðveldara að vera
kona. Maður horfir á unga fólkið á vinnu-
staðnum og það er miklu meiri viðurkenning
á konum og körlum á jafnan hátt. Auðvitað
er það öðruvísi í smærri borgum en í stór-
borgunum í Ameríku finnst mér konur vera
komnar ansi langt.“
Netið er framtíðin
Áslaug segir netið hafa breytt miklu varð-
andi rekstur verslana. „Þegar við vorum að
byrja að vinna í Moda var ennþá slatti af
tískuhúsum sem seldu ekki vörur sínar á
netinu, en ef þetta er skoðað í dag þá selja
eiginlega allir á netinu. Chanel, Tom Ford og
Céline eru eiginlega þau einu af stóru merkj-
unum sem selja ekki á netinu. Það eru ekk-
ert allir með sína eigin vefsíðu en flestallir
selja hjá einhverjum netverslunum. Þannig
að það hefur gjörbreyst, 50-60% tískuhúsa
seldu á netinu árið 2010 en núna eru það um
90-95%.“
Áslaug segir jafnframt fólk orðið öruggara
að versla á netinu. „Það er engin spurning
að þetta er framtíðin og maður heyrir að
sumar af stóru búðunum í Bandaríkjunum
hafa haft það frekar erfitt síðasta árið, vegna
þess að netverslunin er yfirleitt orðin stærri
heldur en búðirnar þeirra. Ég ætla að halda
áfram á þeirri hlið,“ segir Áslaug og hlær.
Ostwald Helgason í uppáhaldi
Áslaug festi nýverið kaup á húsi í Reykjavík
og á meðan á síðustu dvöl hennar hér stóð
kynnti hún sér það helsta sem er að gerast á
Íslandi í sambandi við tísku. Spurð hverjir
séu efnilegastir á Íslandi segist Áslaug halda
meðal annars upp á Ostwald Helgason, Far-
mers Market og Jör.
„Ostwald Helgason er auðvitað í miklu
uppáhaldi hjá mér. Bæði merkið sjálft og
hönnuðirnir. Það er voða spennandi að sjá ís-
lenskan hönnuð ná svona mikilli velgengni
úti. Við unnum með Ostwald Helgason hjá
Moda Operandi og höldum alltaf góðu sam-
bandi. Þau eru orðin ákveðið afl í tískubrans-
anum. Það er auðvitað erfiðara að byggja
upp merki búsett á Íslandi. Varðandi sköpun
er gott að vera hérna en viðskiptalega er erf-
iðara að flytja varning út og heimamarkaður-
inn er svo lítill. Margir hönnuðir byggja á
heimamarkaðinum til þess að byrja með og
vaxa svo, það er ekkert hægt á Íslandi eða
er mjög erfitt,“ segir Áslaug. „Mér fannst
Jör rosalega flott sýning, bæði fatnaðurinn
mjög skemmtilegur og sýningin skemmtilega
upp sett, förðunin flott og tónlistin. Svo þyk-
ir mér Farmers Market merki sem er ekki
hátíska heldur mjög seljanlegt, ég held að
það gæti gert vel í Ameríku, og það er ro-
samargt spennandi að gerast hérna. Hildur
Yeoman finnst mér rosaflott.“
Áslaug vonast til þess að verja meiri tíma
á Íslandi. „Sonur minn er búsettur á Íslandi.
Hann er tvítugur og er í Háskólanum í
Reykjavík núna. Við viljum eyða meiri tíma
á íslandi, enda býr stórfjölskyldan mín þar,
sonur minn, foreldrar, bróðir og tugir
frænkna og frænda sem við viljum verja
meiri tíma með.“
* „Ég segi að það sé gott fyrir konur að verafrumkvöðlar, en ég veit að það er erfiðara fyr-ir þær tölfræðilega að afla fjármagns heldur en
karla. Það er viðurkennt að karlmenn fjárfesta
frekar í ungum karlmönnum heldur en konum.“
www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100
Rekstrarland býður mikið úrval af borðbúnaði og
veisluvörum, s.s. dúkum, servíettum, diskum, glösum
og kertum. Kíktu við og fáðu aðstoð við að strika af
verkefnalistanum á hagkvæman máta.
Ertu að plana
brúðkaup?