Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Blaðsíða 20
Sögufræg stræti
Lundúnaborgar
Engum þarf að leiðast í Lundúnum. Götulistamenn eru víða og vekja jafnan athygli vegfarenda.
M
argvíslegar gönguferðir um
London eru í boði og ýmsar
þeirra fela í sér kíkk á þessa
hefðbundnu ferðamannastaði;
konungshallir, turna, torg og garða sem
ARKAÐ UM MEÐ LEIÐSÖGN
FERÐALANGAR Í IÐANDI STÓRBORG Á BORÐ VIÐ LONDON ÞURFA
ÓHJÁKVÆMILEGA AÐ GANGA MIKIÐ, JAFNVEL ÞÓTT ALMENNINGS-
SAMGÖNGUR SÉU NOTAÐAR. EN FREKAR EN AÐ RÁFA STEFNU-
LAUST UM OG SKIMA Í KRINGUM SIG, EÐA STARA NIÐUR Á KORT
EÐA GRANDSKOÐA GANGSTÉTTIRNAR Í HÖFUÐBORG BRETLANDS,
HVERS VEGNA EKKI AÐ UPPGÖTVA NÝJAR GÖNGULEIÐIR TIL AÐ
FRÆÐAST UM ÞESSA STÓRBROTNU BORG?
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
London er þekkt fyrir. En ef þú vilt prófa
eitthvað allt annað og fá bæði góða skemmt-
un og fræðslu í leiðinni er ekki úr vegi að
leggjast í smárannsóknir á netinu til að sjá
hvað fleira er í boði.
Annað fyrirtæki, að nafni Great British
Tours, býður upp á allavega ferðir, t.d. rútu-
ferðir hingað og þangað um England og
Skotland, en fjölbreyttar gönguferðirnar um
London gleðja margar hverjar bragðlauk-
ana. Í „Frábær matur“-göngunni (Great Fo-
od Tour) er reynt að afsanna mýtuna um að
breskur matur sé hræðilegur og ekki einungis
smakkað á hefðbundnum enskum þjóðarréttum
heldur einnig nokkrum af þeim vinsælu réttum sem
innflytjendur hafa gert ómissandi í fjölmenningarsam-
félaginu í London. Þú getur þó reitt þig á að það er alltaf
boðið upp á góðan tebolla í lokin, nema hvað. Great Brit-
ish Tours bjóða líka upp á „Súkkulaðigöngu“ (Chocolate
Tour) þar sem helstu súkkulaðimeistarar í London eru heim-
sóttir og afurðir þeirra smakkaðar. En sykursætasta gangan er tví-
mælalaust „Álfakökur og makkarónur“ (Cupcake and Macaron) þar sem
gengið er milli kökugerða í Covent Garden, Soho og Mayfair og stoppað á sjö stöð-
um til að fá smakk. Aðrar göngur í boði hjá fyrirtækinu eru t.d. „Graff“-túr (Graffiti)
þar sem stóru nöfnunum í veggjalistinni í Shoreditch-hverfinu er veitt sérstök athygli,
„Draugaganga“ (Ghost Walk) sem innifelur bátsferð eftir Thames þar sem bent er á
hvar er helst reimt í borginni og hlustað á hræðilegar draugasögur, allar dagsannar að
sjálfsögðu. Sumar göngurnar eru það vinsælar að nauðsynlegt er að panta pláss
fyrirfram á vefsíðu fyrirtækisins: www.greatbritishtours.com.
SÚKKULAÐIGANGA
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.4. 2014
Ferðalög og flakk
Einn af nýjustu túrunum í London, og senni-
lega sá athygliverðasti að sinni, er „Klósett-
gangan“ (The Loo Tour). Þar gengur Kló-
settdaman (The Loo Lady) í broddi fylkingar
með drullusokk í annarri hendi og leiðir for-
vitna ferðalanga milli almenningssalerna sem á
einhvern hátt eru áhugaverð eða sögufræg. Í
leiðinni læðir Klósettdaman inn ýmsum fróð-
leik um salerni yfir höfuð og segir skemmti-
sögur af salernum. Tvær mismunandi göngu-
leiðir eru í boði í hverri viku og að auki er einu
sinni í mánuði boðið upp á „Kráapostulíns-
rölt“ (Porcelain Pub Prowl) að
kvöldlagi, þar sem áherslan
er lögð á salerni ýmissa
kráa borgarinnar og í
leiðinni sötraður mjöð-
ur til að auka líkurnar á
að þátttakendur komist
í snertingu við postulín-
ið á einn eða annan hátt.
www.lootours.com.
KLÓSETTGANGA
Fyrirtækið Brit Movie Tours býður ýmsar
ferðir tengdar kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum og þar á meðal t.d. gönguferðir um
söguslóðir þáttanna Ljósmóðirin (Call the Mid-
wife) sem sýndir eru á RÚV. Þar er ekki einungis
rakin saga Nonnatus-ljósmæðranna heldur einn-
ig skoðaðir tökustaðir og sagðar sögur af því
sem gerst hefur baksviðs við gerð þáttanna.
Einnig er boðið upp á Sherlock-göngur, þar
sem tökustaðir hinna vinsælu BBC-þátta eru í
fyrirrúmi, frekar en söguslóðir hinna upp-
runalegu Sherlock Holmes-sagna. Þessar sér-
stöku þemagöngur eru aðeins í boði á völdum
dögum og þarf að panta þær sérstaklega fyrirfram á
vefsíðunni: www.britmovietours.com.
STJÖRNUGANGA
Kate Middleton og Vilhjálmur
prins með litla prinsinn
Georg. Í sögugöngu um Lund-
únir er vinsælt að skoða
Buckinghamhöll og aðra
íverustaða kóngafólksins, þótt
ólíklegt verði að teljast að
ferðamenn muni sjá þeim
bregða fyrir.
Jude Law lék í Sherlock
Holmes og ætti að
þekkja stræti Lundúna
vel enda hefur hann búið
í borginni alla tíð.