Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Síða 21
AFP
Margir kjósa einfaldlega að ganga á eigin vegum um
borgina og til dæmis mynda veggjalist.
13.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Aðrar gagnlegar vefsíður
til að undirbúa göngu-
ferðir um London eru
t.d. www.walks.com og
www.londontown-
walks.com, en síðara
fyrirtækið býður m.a. upp
á sérstakar göngur um
sögusvið kvennabarátt-
unnar í London, göngur
tengdar sögufrægum per-
sónum á borð við Dic-
kens og Díönu prinsessu
og göngur sérstaklega
ætlaðar börnum og fjöl-
skyldum.
AÐRAR
GÖNGUR
London Premier Walking Tours er stórt
fyrirtæki sem býður upp á ýmsar göngur um
stræti Lundúnaborgar, t.d. „Leyndardóma
Kobba kviðristu“ (Jack the Ripper Secret Lond-
on) þar sem slóð raðmorðingjans um Austur-
London er rakin, sagt frá rannsókninni og fórn-
arlömbunum.
Ef þig langar að rifja upp söguna eilítið er
hægt að fara í göngu sem heitir „Kóngar,
drottningar, stjórnmál og völd“ (Kings, Queens,
Politics and Power). Það er 2,5 klukkustunda
„vísindaferð“ sem hefst við höfuðstöðvar Scot-
land Yard og fer hratt yfir sögu konungsveld-
isins, stjórnarfarsins og styrjaldanna í gegnum
tíðina, með viðkomu í Buckingham-höll, West-
minster Abbey, Downingstræti 10, Big Ben,
breska þinginu og fleiri sögufrægum stöðum, og
lýsir því jafnframt hvernig London byggðist upp
og áföllunum sem borgin hefur orðið fyrir, t.d. í
sprengjuárásum seinni heimsstyrjaldar. Göngur
sem bera nöfnin „Hryðjuverk og njósnir“ (Ter-
ror and Espionage) og „Blóð og tár“ (Blood and
Tears) eru e.t.v. ekki fyrir mjög viðkvæma en
þar eru ferðamenn fræddir um svarta sögu
borgarinnar, leiddir á slóðir frægra raðmorð-
ingja, hryðjuverkaárása og hlýða á sögur af
Kalda stríðinu og áhrifum þess á aðgerðir
Breta.
Fyrirtækið býður líka upp á göngur með létt-
ara andrúmslofti, þ.á m. fjársjóðsleit um jarð-
lestakerfið, þar sem þátttakendur skipta sér í
lið, keppa við klukkuna og elta vísbendingar
þvers og kruss um miðborgina með jarðlestum.
Það felst kannski ekki mikil útsýnisferð í því en
mikið fjör og keppendur glöggva sig betur á
jarðlestakerfinu í London.
Fyrirtækið býður reglulega upp á sérstaka
viðburði og auglýsir þá sérstaklega á vefsíðu
sinni: www.londonpremiumwalking-
tours.co.uk
SÖGUGANGA
ÍSLENSKT FJÖLSKYLDUFRÍ!
Fjórir saman í herbergi: Pegasos Royal
2 fullorðnir og 2 börn: öll fjölskyldan frá 459.000 kr.
TYRKLAND SUMARIÐ 2014: BEINT FLUG FRÁ KEFLAVÍK
Allt innifalið
Frábær strönd
Margar sundlaugar og
vatnsskemmtigarður
Aðstaða þriggja hótela
Íslenskir fararstjórar
Íslenskur barnaklúbbur
Sundskóli, dansskóli
Unglingaklúbbur
Handklæði fyrir
sundlaug og strönd
Ís!
STÓRAR FJÖLSKYLDUSVÍTUR
Fyrir
9 manns:
IC Residence
Lúxussvíta með
eigin sundlaug
Fyrir
6 manns:
Royal Palace
Algjör
lúxus!
Fyrir
7 manns:
Eftalia Village
Nýr strand-
skemmtigarður
Fyrir
5 manns:
Pegasos
World
Uppáhald
Íslendinganna
nazar.is · 519 2777
Öll
fjölskyldan*
frá
339.998kr.
*
m
.v
.2
fu
llo
rð
na
og
2
bö
rn
á
al
lt
in
ni
fa
lið
hó
te
lin
u
Bo
n
A
pa
rt
íA
la
ny
a