Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.04.2014, Síða 22
Japanska þjóðin er sú langlíf-
asta í veröldinni. Vísindamenn
sem rannsakað hafa japanskt mat-
aræði á langlífustu svæðum Japans
segja að í afar stuttu máli snúist
mataræði þeirra um fisk-
neyslu þrisvar í
viku, heil-
kornafæðu, græn-
meti. Einnig
borða þeir
meira tófú
en allar
aðrar
þjóðir og
smokk-
fiskur er
gjarnan á mat-
seðlinum, sem
lækkar kólesteról og blóð-
þrýsting.
Morgunblaðið/Golli
Þunglyndi og kvíði
eru algengustu geð-
sjúkdómar sem eldri
borgarar glíma við.
Mikilvægt er fyrir að-
standendur að hvetja
eldri ættingja og að-
stoða þá við að leita
læknis ef grunur leik-
ur á að um þunglyndi
sé að ræða. Einkennin
eru meðal annars
reiði, neikvæðni og
ergelsi en vandinn er
mjög oft vangreindur.
Vísindamenn við DUKE-NUS
læknaháskólann í Singapúr hafa í
fimm ár rannsakað tengsl ein-
manaleika og langlífis. Fólk sem
upplifir sig einmana lifir að með-
altali 10% styttra en þeir sem
skilgreina sig ekki einmana. Þegar
aldurinn færist yfir og kvarnast
fer úr vinahópnum er sérstaklega
mikilvægt að fjölskylda og afkom-
endur rækti afa og ömmur.
Heilaleikfimi er ekki síður
mikilvæg en sú líkamlega. Það
þarf ekki að vera flókið en með
aldrinum er gott að þyngja þær
þrautir sem fólk er vant að leysa
örlítið, hvort sem það eru
krossgátur, sudoku, púsluspil eða
flóknari uppskriftir í eldhúsinu.
Eftir fimmtugt framleiðir maginn minna af
magasýrum og líkaminn á því erfiðara með
að taka upp B-12 vítamín. Því er mælt með
stærri skammti af B-12 vítamíni og einnig
þarf að passa að taka nóg af D-vítamíni.
BETRA LÍF Á EFRI ÁRUM
Atriði er hjálpa
til við að eldast vel
ANDLEG OG LÍKAMLEG HEILSA ER BROTHÆTTARI EFTIR ÞVÍ
SEM FÓLK ELDIST. HÆGT ER AÐ AUKA LÍFSGÆÐIN OG LÍFS-
LÍKUR ÁN ÞESS AÐ SNÚA TILVERUNNI Á HVOLF.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Tilfinning fyrir þorsta
breytist talsvert með aldr-
inum þannig að fólk þarf
oft meiri vökva en því
finnst. Því er mikilvægt að
drekka nægan vökva, um
tvo lítra samkvæmt ráð-
leggingum Lýðheilsu-
stöðvar. Í þessu samhengi
þurfa nýrun líka meiri
vökva til að losa sig við
salt. Saltneyslu ætti því
einnig að stilla í hóf.
V
ið lifum lengur en það er ekki það sem öllu skiptir heldur það að
geta notið efri áranna sem lengst og liðið vel á líkama og sál. Til
þess þarf að huga vel að grunnþáttum eins og svefni, góðu mat-
aræði og reglubundinni hreyfingu. Fólk er misgott til heilsunnar
og fólk sem er lélegt til hennar skyldi leita læknis áður en hugað er að
daglegri hreyfingu. Hins vegar er meginreglan sú að fólk sem er komið á
efri ár hreyfi sig daglega og það í um hálftíma á dag. Hér til hliðar má
sjá nokkur góð ráð um hvernig má auka lífsgæðin.
Allir geta aðstoðað eldra fólk sem er
ekki heilsuhraust og þar er til dæmis
hægt að byrja á almenningssamgöngum.
Bresk rannsókn hefur leitt í ljós að að-
eins 2 af hverjum 5 hraustum fullorðnum
einstaklingum bjóða eldra fólki, oft aug-
ljóslega lasburða, sætin sín. Þetta einfalda
atriði getur látið mörgum líða betur.
Hreyfigeta
eldra fólks er
mismunandi en
mjög mikilvægt
er að takmarka
kyrrsetu. Land-
læknisembættið
mælir með að
eldra fólk
hreyfi sig rösk-
lega í 30 mín-
útur dag hvern.
Heilsa og
hreyfing
Mjúkar hreyfingar
AFP
*Tai-chi er ævafornt kínverskt æfingakerfi sem byggist á fornumkínverskum lækningaaðferðum. Tai-chi einkennist af afslöpp-uðum og mjúkum hreyfingum sem eru sagðar þjálfa í senn lík-ama og huga. Æfingarnar eiga að hafa góð áhrif á miðtauga-kerfið, öndun, meltingu, svefn og styrkja hjartað að sögn þeirrasem stunda og kenna þetta forna æfingaform. Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, er mikið fyrir
hreyfingu og í heimsókn sinni og dætra sinna til Kína í mars
reyndi hún sig í tai-chi með námsmönnum í Chengdu.