Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. M A Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  120. tölublað  102. árgangur  HÖGNI FLYTUR NÝTT VERK VIÐ OPNUNINA HAGVÖXTUR Í HÆSTU HÆÐUM TAKA ÞÁTT Í HEIMS- MEISTARAKEPPNI Í RÚNINGI Á ÍRLANDI VIÐSKIPTABLAÐ LAGNI SKIPTIR ÖLLU 10LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 42 Morgunblaðið/Golli Allsherjarverkfall Boðað kl. 8 í dag.  Samningafundur í kjaradeilu sjúkraliða og félagsmanna í SFR sem vinna hjá Samtökum fyrir- tækja í velferðarþjónustu (SFV) stóð enn þegar blaðið fór í prentun. Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Félags sjúkraliða, og Árni St. Jónsson, formaður SFR, sögðu ómögulegt að segja hvort samn- ingar næðust. Launaliðir voru langt komnir og margt annað frá en erf- iðir þættir voru ófrágengnir. Að- allega bætur vegna svonefnds launaátaks og réttindamál. Unnið var í þessum málum í gærkvöld. Allsherjarverkfall var boðað kl. 8.00 í dag. Það nær til um 500 starfsmanna á 26 hjúkrunarheim- ilum og stofnunum. gudni@mbl.is Fundað í deilu sjúkraliða og SFR við SFV fram á nótt Sendibílar í sókn » Sala á sendibílum af stærri gerð á fyrsta ársfjórðungi var nærri tvöfalt meiri en sömu mánuði í fyrra. » Það þykir merki um bjart- sýni meðal fyrirtækja. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sala á dýrum bílum eykst mikið milli ára og nemur aukningin tugum pró- senta í sumum stærðarflokkum. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru seldir lúxusbílar fyrir tæpa 2 milljarða á Íslandi og er það 43% aukning milli ára. Þá jókst sala á minni fjórhjóladrifnum ökutækjum um 30% milli ára og er áætlað sölu- verðmæti þeirra 3,1 milljarður. Þetta má ráða af greiningu Brim- borgar á sölu nýrra bíla á fyrstu fjór- um mánuðum ársins sem tekin var saman að beiðni Morgunblaðsins. Sala á stærri fjórhjóladrifnum ökutækjum minnkar hins vegar og er verðmætið 2,55 milljarðar þessa mánuði í ár. Það er 12% samdráttur. Sé litið til markaðarins í heild var verðmæti innfluttra bíla á fyrsta árs- fjórðungi rúmlega 6,1 milljarður, en var tæpir 4,3 milljarðar sömu mán- uði í fyrra. Það er 43% aukning. Er hér vísað til verðmætis bílanna við afhendingu, að meðtöldum flutn- ingskostnaði og flutningstryggingu. Hin mikla söluaukning er vísbend- ing um að kaupmáttur hafi styrkst. MBílainnflutningur »6 Tveir milljarðar í lúxusbíla  Sala á lúxusbílum á fyrstu fjórum mánuðum ársins er 43% meiri en í fyrra  Verðmæti innfluttra bíla á fyrsta ársfjórðungi jókst einnig um 43% frá 2013 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Kannanir Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi fram- boðslista í tólf stærstu sveitarfélög- unum í komandi kosningum benda til þess að nýju flokkarnir, Björt framtíð og Píratar, nái mjög góðum árangri alls staðar þar sem þeir bjóða fram. Björt framtíð vinnur mikinn sigur, fær menn kjörna í sjö sveitarfélögum; fjóra í Reykjavík, tvo á Akureyri, Akranesi, Kópa- vogi, Garðabæ og Hafnarfirði og einn í Árborg. Píratar fá einn mann kjörinn í þremur sveitarfélögum og tvo fulltrúa í einu, Reykjanesbæ. Sjálfstæðisflokkurinn heldur hrein- um meirihluta á fjórum stöðum, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnar- nesi og Vestmannaeyjum. Flokk- urinn tapar aftur á móti meirihluta í tveimur, Árborg og Reykjanesbæ. Í Reykjavík er fylgi flokksins í sögulegu lágmarki. Fylgi í síðustu könnun dugar aðeins fyrir þremur borgarfulltrúum. Sjálfstæðismenn bæta við sig fylgi á Akureyri, Akra- nesi og í Kópavogi. Samfylkingin tapar fylgi eða stendur í stað víðast hvar á land- inu. Í Hafnarfirði, þar sem flokk- urinn er nú í meirihlutasamstarfi við Vinstri græn, stefnir í mikinn ósigur. Fylgið í Reykjavík er undantekning. Þar er flokkur- inn í mikilli sókn og bætir við sig tveimur borgarfulltrúum. Vinstri græn og Framsóknar- flokkurinn fara nær alls staðar halloka. Flokkarnir ná hvergi ár- angri í stóru sveitarfélögunum. Íbúalistar eins og Fólkið í bæn- um í Garðabæ og Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ, sem fengu menn kjörna síðast, þurrkast út. Þá blas- ir afhroð við L-listanum á Akureyri sem þar er núna einn í meirihluta. Fjarðalistinn í Fjarðabyggð eykur hins vegar fylgi sitt. Dögun sem býður fram í Reykjavík og á Ak- ureyri hefur nær ekkert fylgi. Sama er að segja um Alþýðufylk- inguna í Reykjavík. Greining á svörum þátttakenda sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur hlutfallslega lítinn stuðning meðal ungra kjósenda, háskóla- menntaðra og kvenna. Til þessara hópa sækir Björt framtíð einkum fylgi sitt. Píratar eiga mestan hljómgrunn meðal ungra karl- manna. »22-23 Björt framtíð og Píratar eru sterk  Gömlu flokkarnir tapa víða  Söguleg kosning í Reykjavík  Íbúalistar hverfa Þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í Hafnarfjarðarhöfn um kvöldmatarleytið í gær fann hann þar fyrir nokkur ungmenni sem voru að búa sig undir að stökkva fram af bryggjunni. Voru þau að taka Facebook-áskorun sem fer nú eins og eldur um sinu en hún gengur út á að hlaupa eða stökkva út í sjó, taka mynd eða vídeó og skora síðan á næsta mann að gera slíkt hið sama. Tóku Facebook-áskorun í Hafnarfjarðarhöfn Morgunblaðið/Eggert  Bandaríkjamönnum sem þykir Ísland mjög heillandi ferðamanna- staður hefur fjölgað í 49% í ár úr 37% árið 2012, samkvæmt könnun bandaríska rannsóknarfyrirtæk- isins Fluent fyrir Iceland Naturally. Á sama tíma hefur þeim fækkað sem þykir landið lítið heillandi í 10% úr 18%. Nellie Gregorian, stofnandi Flu- ent, segir að fyrir 15 árum hafi landið ekki verið á kortinu hjá bandarískum ferðamönnum en nú sé stór hluti landsmanna opinn fyr- ir því að ferðast til Íslands. »Viðskipti Kanar eru áhuga- samari um Ísland  Nú er heppi- legur tími til þess að takmarka 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán til íbúðakaupa. Það eru enda vís- bendingar um að slík lán ýti undir verðhækkanir, nú þegar skilyrði til bólumyndunar á fasteignamarkaði kunna að vera að skapast í náinni framtíð. Þetta er mat Magnúsar Árna Skúlasonar, sérfræðings hjá Reykjavík Economics, sem telur rétt að Seðlabankinn beiti sér gegn slíkum lánum. »12 Vill takmarka 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán Magnús Árni Skúlason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.