Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Sveitarfélögin hafa á seinni árumaukið mjög umsvif sín. Ekki er langt síðan borgarfulltrúar í Reykjavík gegndu slíku starfi sam- hliða fullri vinnu en nú væri það tæpast möguleiki. Og jafnvel í Kópa- vogi hafa komið fram þau sjón- armið að bæjarfull- trúastarfið eigi að vera fullt starf.    Þá hefur fjölgaðvíða í bæjarstjórnum og sam- kvæmt gildandi lögum er hætta á holskeflu í þeim efnum eftir fjögur ár verði ekki að gert.    Þessi þróun í umfangi starfs ogfjölda sveitarstjórnarmanna er afleiðing af því að sveitarstjórnir sinna mun fleiri verkefnum en áð- ur, auk þess sem regluverk allt og eftirlit er umfangsmeira. Þetta er að hluta til vegna ákvarðana sveit- arstjórnarmannanna sjálfra en að hluta til vegna ákvarðana annarra.    Ein alvarlegasta afleiðing þess-arar þróunar er að skattar á íbúana hafa hækkað umtalsvert.    Útsvarið er víðast hvar í hæstulögleyfðu hæðum og fátítt er að fregnir berist af lækkun útsvars eða annarrar skattlagningar og gjalda.    Þessi neikvæða þróun hefurmestmegnis gerst hægum skrefum sem er sennilega skýr- ingin á að almenningur hefur ekki veitt henni mikla athygli og þar með að frambjóðendur ræða lítið um hana í þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir.    Full ástæða er fyrir einhverjaþeirra að gera útþensluna og skattahækkanirnar að umtalsefni. Hægfara þróun í öfuga átt STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.5., kl. 18.00 Reykjavík 11 heiðskírt Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 5 léttskýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 5 skúrir Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 16 skúrir Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 20 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 17 léttskýjað London 17 léttskýjað París 20 þrumuveður Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 27 heiðskírt Berlín 27 heiðskírt Vín 25 skýjað Moskva 27 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 17 skýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 23 heiðskírt Winnipeg 7 skýjað Montreal 18 léttskýjað New York 21 léttskýjað Chicago 25 léttskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:50 22:59 ÍSAFJÖRÐUR 3:24 23:36 SIGLUFJÖRÐUR 3:05 23:20 DJÚPIVOGUR 3:12 22:36 Aflífa þurfti snæugluna sem hlúð var að á Náttúrufræðistofnun, eftir að hún fannst særð á væng í apríl síðastliðnum. „Vel gekk í fyrstu að hlúa að sárinu og hún fóðraðist einnig vel en hún náði umbúðunum af sér og komst í sárið. Eftir það var ekki annað í stöðunni en að af- lífa hana. Því miður,“ sagði Guð- mundur A. Guðmundsson, dýravist- fræðingur á Náttúrufræðistofnun. Snæuglan féll í manna hendur því hún var ófleyg með sár og sýk- ingu í öðrum vængnum. Starfs- menn fiskeldisstöðvar á Tálknafirði fundu hana flækta í net og komu starfsmenn Náttúrustofu Vest- fjarða með hana til Reykjavíkur um miðjan apríl. Snæuglan var því í tæpan mánuð á stofnuninni. Talið var að hún væri um tveggja ára gömul kvenugla. thorunn@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Snæugla Vel gekk í fyrstu að hlúa að sárinu og fóðraðist hún einnig vel. Snæuglan aflífuð eftir að hún tók umbúðir af sárinu Umfjöllun um ásakanir á hendur Gunnari Þorsteinssyni, sem jafnan er kenndur við Krossinn, um kynferð- isbrot var í góðri trú og byggð á um- mælum nafngreindra kvenna sem stigu fram og báru hann sömu eða sambærilegum sökum. Miðlunin átti fullt erindi til almennings. Þetta sagði lögmaður fyrrverandi ritstjóra Press- unnar, Steingríms Sævars Ólafs- sonar, í gær en þá lauk aðalmeðferð í meiðyrðamáli Gunnars gegn Stein- grími, útgáfufélagi Pressunnar og tveimur talskonum þeirra kvenna sem sökuðu Gunnar um kynferðisbrot. Lögmaður Steingríms, Bjarki H. Diego, sagði að Pressan hefði dregið gríðarlega mikið úr þegar fjallað var um ásakanir kvennanna, umfjöllunin hefði verið fagleg og Gunnari ávallt gefinn kostur á að svara þeim ásök- unum sem bornar voru á hann. Þá benti lögmaður talskvennanna, þeirra Ástu Sigríðar H. Knútsdóttur og Sesselju Engilráðar Barðdal, m.a. á að Gunnar hefði veitt mörg viðtöl eft- ir að málið komst í fjölmiðla og að konurnar hefðu ekki átt annarra kosta völ en að grípa til varna. Sagði Pressuna hafa dregið mikið úr  Gunnar fékk ávallt kost á að svara Morgunblaðið/Þórður Meiðyrði Dómur í málinu verður kveðinn upp innan fjögurra vikna. Skannaðu kóðann til að lesa meira um dómsmálið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.