Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 12

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 12
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nú er rétti tíminn til að takmarka að- gengi að 40 ára verðtryggðum jafn- greiðslulánum enda eru þau að lík- indum farin að ýta undir hækkun fasteignaverðs og auka líkur á bólu- myndun. Slík lán gefa tekjulágum kost á að kaupa eignir sem þeir hefðu ella ekki ráð á og ýta þannig undir hækkanir, en svonefnd staðganga gæti verið milli eftirspurnar á leigu- markaði og 40 ára lána. Þannig kunna margir nú að velja 40 ára íbúðalán vegna hás leiguverðs. Lán- takar sætta sig því við litla sem enga eignamyndun á fyrri hluta lánstíma. Þetta er mat Magnúsar Árna Skúlasonar, sérfræðings hjá Reykja- vík Economics, sem telur að Seðla- bankinn eigi að grípa inn í lánsfjár- hlutfall, frekar en að hækka stýrivexti og slá þannig á eftirspurn. „Íbúðamarkaðurinn er kominn úr kreppu og við sjáum fyrir endurreisn á honum. Við sjáum ekki fast- eignabólu enn þá. Ef hækkanir á fasteignamarkaði næstu mánuði verða eins miklar og undanfarna tvo mánuði er ástæða fyrir peningamála- yfirvöld að fylgjast með,“ segir Magnús en íbúðaverð hefur hækkað um 11,2% síðustu 12 mánuði. Eins og gröfin hér til hliðar sýna spáir Seðlabankinn meiri verðbólgu á næstu árum. Er tekið fram í nýjum Peningamálum „að heldur meiri líkur séu á að verðbólgu sé vanspáð á seinni hluta spátímans en að henni sé ofspáð“. Þá sýnir hitt grafið að verð- tryggð lán eru að sækja í sig veðrið. Veita nú allt að 90% lán – Telurðu að bankar muni draga úr útlánum á íbúðamarkaði til að sporna við spennu á markaði? „Það er ekki víst. Það getur vel verið að það séu samkeppnishvetj- andi þættir til þess að veita jafnvel hærri lán, 90% lán, eins og dæmi eru um þessa dagana. Þar er um að ræða eignir þar sem seljandalán er á eign líka. Það er frekar að Seðlabankinn beiti þeim þjóðhagsvarúðartækjum sem getið var um í síðustu fjármála- stöðugleikaskýrslu, en þar var rætt um að lækka lánshlutfall verð- tryggðra lána, eða láta draga úr 40 ára jafngreiðslulánum. Greiðslubyrði slíkra lána er lægri en svo virðist sem fólk horfi frekar til greiðslubyrði en íbúðaverðs og eigna- myndunar. Við gætum séð 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán fara niður í 65% eða 70% af kaupverði eignar en að af- gangurinn þyrfti að vera óverð- tryggður til þess að draga úr hækk- unum, ef sú tilgáta mín stenst að aukning í 40 ára verðtryggðum jafn- greiðslulánum sé að hækka íbúða- verð. Það gæti leitt til þess að hækk- un á fasteignaverði stöðvist. Slík ráðstöfun myndi að minnsta kosti kæla niður íbúðamarkaðinn.“ –Hvaða tæki hefur Seðlabankinn til þess að stýra útlánum? „Hann gæti í samvinnu við Fjár- málaeftirlitið bannað ákveðin láns- veðhlutföll á löngum, verðtryggðum íbúðalánum, þannig að 80% lán yrðu ekki í boði, færu niður í 70%.“ Þá segir Magnús aðspurður að meiri eftirspurn en framboð á fast- eignamarkaði geti ýtt undir meiri áhættu í útlánum bankanna, enda sé nú virkur markaður fyrir eignir ef lántaki getur ekki staðið í skilum. Oddgeir Á. Ottesen, aðalhagfræð- ingur IFS Greiningar, telur ekki að bann við 40 ára verðtryggðum jafn- greiðslulánum muni hafa mikil áhrif á þróun fasteignaverðs. Ýti tekjulágum af markaði „Það eru horfur á að fasteignaverð muni hækka. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að 40 ára verðtryggð lán séu ekki aðalorsökin fyrir hækkunum … Ég get ekki séð að bann við verð- tryggðum jafngreiðslulánum bæti hag almennings. Ef slík lán verða bönnuð þá mun það ekki leiða til mikillar verð- lækkunar á húsnæði. Bannið mun hafa áhrif á hverjir kaupa húsnæði. Lágtekjufólk mun síður hafa efni á að kaupa íbúðir. Í stað þess að lág- tekjufólk kaupi íbúðir verða það leigu- félög, sem leigja svo út íbúðirnar. Leigumarkaðurinn gæti stækkað.“ Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að nú sé rétti tíminn til að afleggja 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán, að minnsta kosti hætta að veita þau með ríkisábyrgð af Íbúðalánasjóði. „Mér sýnist tímasetningin vera góð nú þegar fasteignamarkaðurinn er byrjaður að hitna. Hin svonefndu Íslandslán sem eru 40 ára verðtryggð lán með jafngreiðslum eiga að mínu mati stóran þátt í þeirri bólu sem varð á fasteignamarkaði 2004-8 þar sem einkenni slíkra lána er mjög lág upphafsgreiðsla sem hafi gefið hvata til of mikillar skuldsetningar. Það er einkenni þessara lána að ekkert er greitt af höfuðstól á fyrri hluta láns- tíma og lánin hækka þótt greitt sé af þeim. Það virðast margir lántakar eiga erfitt með að skilja.“ Blönduð lán heppilegri Ásgeir telur að heppilegt væri að beina lántökum að blöndu verð- tryggðra og óverðtryggðra íbúða- lána. Verðtryggði hlutinn geti verið að hámarki til 25 ára. Þá telur hann aðspurður að það gæti reynst bjarnargreiði að veita tekjulágum 40 ára verðtryggð fasteignalán þar sem höfuðstóll slíkra lána hækki verulega með verðbólgu og geti mjög hæglega leitt til neikvæðrar eiginfjárstöðu, líkt og gerðist á árunum 2008-2010. Þórarinn G. Pétursson, aðal- hagfræðingur Seðlabanka Íslands, segir það skoðun bankans að ekki séu rök fyrir því að banna tiltekin form íbúðalána. Þá vísar hann á síðustu út- gáfu Fjármálastöðugleika. Þar er rætt um þá tillögu starfs- hóps um afnám verðtryggingar af neytendalánum að jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára verði bönnuð. Segir í Fjármálastöðugleika að ef ekki verði hægt að veita slík lán til lengri tíma en 25 ára muni léttasta greiðslubyrði íbúðalána sem standa til boða aukast um 25-30%. „Íslandslán“ sögð ýta á hækkanir  Sérfræðingur telur að nú sé rétti tíminn til að takmarka 40 ára verðtryggð íbúðalán  Slík aðgerð kæli niður markaðinn og dragi úr líkum á bólumyndun næstu mánuði  Spáð er meiri verðbólgu Verðbólguspá og óvissumat Grunnspá PM 2014/2 Verðbólgumarkmið 50% líkindabil 75% líkindabil 90% líkindabil Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 2012 2013 2014 2015 2016 2017 8 7 6 5 4 3 2 1 0 Þróun nýrra íbúðalána að frádregnum uppgreiðslum Í milljónum króna tímabilið 2013-2014* Ný óverðtryggð íbúðalán, samtals Ný verðtryggð íbúðalán, samtals Ný íbúðalán, samtals Hlutdeild óverðtryggðra íbúðalána Hlutdeild verðtryggðra íbúðalána 34.545 1.964 903 1.546 21.939 406 816 1.728 56.484 2.370 1.719 3.274 61,2% 82,9% 52,5% 47,2% 38,8% 17,1% 47,5% 52,8% Jan. 14 Feb. 14 Mars. 14 Samtals 2013 *Frá 1.1. 2013-31.3. 2014. Heimild: Seðlabanki Íslands 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Stjórnendur Landspítala hafa tekið við ákæru ríkissaksóknara á hendur spítalanum og starfsmanni á gjör- gæsludeild spítalans, vegna atviks á árinu 2012, þar sem maður lést. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Landspítalinn sendi frá sér í gær. Segir þar jafnframt að þetta sé í fyrsta sinn sem Landspítali og starfsmaður hans séu ákærð fyrir atvik af þessu tagi og standi íslensk heilbrigðisþjónusta því á kross- götum. „Það er nýr veruleiki fyrir bæði starfsmenn og stofnunina að standa frammi fyrir því í störfum sínum að atvik sem þessi fari í farveg refsi- máls sem rekið er fyrir dómstólum. Þetta eru straumhvörf sem skapa óvissu í störfum heilbrigðisstarfs- manna,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að Landspítali muni á næstu dögum fara frekar yfir efni ákærunnar með lögmönnum sínum. Harmað sé að þetta atvik hafi átt sér stað og hugur stjórnenda spítalans sé hjá aðstandendum mannsins. Hvorki fengust frekari upplýs- ingar um ákæruna hjá spítalanum né embætti ríkissaksóknara. En fram kom í fjölmiðlum í fyrra, að andlát manns, sem lá á gjörgæslu- deild spítalans í október árið 2012, var rakið til mistaka hjúkrunarfræð- ings á deildinni. Morgunblaðið/Júlíus Landspítali Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur spítalanum og starfsmanni á gjörgæsludeild vegna andláts manns þar í október 2012. Starfsmaður Land- spítala ákærður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.