Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Húseignir til sölu
Íslandsbanki auglýsir til sölu húsin við Lækjargötu 12 og
Vonarstræti 4b (bakhús) í Reykjavík. Óskað er eftir tilboðum
í húsin fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 5. júní 2014.
Lækjargata 12
Hýsir í dag útibú Íslandsbanka auk annarrar starfsemi.
Húsið er á fimm hæðum auk kjallara og er birt stærð
þess 2.272 m². Bílastæði fylgja á báða vegu.
Vonarstræti 4b
Bakhús aftan við Lækjargötu 12 og hýsir í dag
Hönnunarmiðstöð Íslands. Húsið er á tveimur hæðum
og er birt stærð þess 293 m².
Lóðin sem húsin standa á er á besta stað í miðbænum,
á horni Lækjargötu og Vonarstrætis. Stærð lóðarinnar er
2.062 m² og samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt
byggingamagn á lóðinni 7.340 m² ofanjarðar auk 814 m²
bílakjallara.
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
4
0
1
Hægt er að bóka skoðun hjá
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka:
Narfi Snorrason, s. 440-4541
Sigrún Hjartardóttir, s. 440-4748
Húsið verður sýnt miðvikudaginn
28. maí nk. kl. 10.00-15.30.
Brettaskip sem sækja frosnar af-
urðir í Ísbjörninn, frystigeymslu
HB Granda, eru einu flutn-
ingaskipin sem koma í gömlu höfn-
ina í Reykjavík, fyrir utan olíu-
flutninga um Eyjagarð.
Brettaskipin koma nokkrum sinn-
um á ári og minna á umsvif fyrri
ára í höfninni.
Brettin fara laus um borð í skip-
in, ekki fyrst í gáma. Síðan er siglt
með fiskinn beint á markað. Smári
Einarsson, sölustjóri hjá HB
Granda, segir að oftast séu þessi
skip notuð til að flytja fisk á mark-
að í Austur-Evrópu en einnig sé
mögulegt að láta þau sigla til Rot-
terdam og á aðrar hafnir í Evrópu.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, segir að með byggingu
frystigeymslunnar hafi útgerð og
fiskvinnslu verið sköpuð aðstaða í
vesturhöfninni.
Jákvætt sé að brettaskipin taki
afurðirnar beint því það dragi úr
gámaflutningum af hafnarsvæðinu
í gegn um miðborgina.
helgi@mbl.is
Brettaskip sækja
afurðir í Ísbjörninn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bannað að leggja Brettaskipið Belbek siglir til hafnar í Reykjavík til að taka afurðir úr Ísbirninum.
Fundur stjórnar
Varðar, fulltrúa-
ráðs sjálfstæðis-
félaganna í
Reykjavík, í há-
deginu í gær var
ekki boðaður sér-
staklega til að
meta stöðu Hall-
dórs Halldórs-
sonar, oddvita
sjálfstæðismanna
í Reykjavík. Þær fréttir bárust fyrir
fundinn að ræða ætti stöðu flokksins
í borginni og hvort Halldór ætti að
stíga til hliðar vegna lélegs gengis
flokksins í skoðanakönnunum.
Óttarr Guðlaugsson, formaður
Varðar, sagði í samtali við mbl.is að
um hefði verið að ræða vikulegan
fund stjórnar Varðar og rætt hefði
verið um væntanlegar kosningar og
verkefnin framundan á fundinum.
Stjórn Varðar sendi frá sér yfir-
lýsingu eftir fundinn í gær þar sem
stjórnin ítrekar „einróma fullan
stuðning við framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins og oddvita hans,
Halldór Halldórsson“. Stjórnin lýsti
jafnframt ánægju sinni með þann
baráttuanda sem ríkti meðal fram-
bjóðenda flokksins. „Okkar megin-
verkefni í dag er að koma málefnum
okkar betur á framfæri. Það eru
verkefni númer eitt, tvö og þrjú,“
sagði Óttarr.
„Við erum klárlega með bestu
stefnu stjórnmálaflokka í Reykja-
vík,“ sagði Halldór Halldórsson,
oddviti lista Sjálfstæðisflokksins.
„Við ætlum að laga húsnæðismálin
en viljum ekki að þau verði niður-
greidd af borgarbúum eins og núver-
andi meirihluti boðar. Við viljum að
foreldrar ungra barna fái greitt til að
brúa bilið á milli fæðingarorlofs og
hefðbundins leikskóla. Við viljum
einnig laga rekstur borgarsjóðs og
lækka kostnað borgarbúa af að búa í
Reykjavík,“ segir Halldór.
Ítreka
stuðning
við Halldór
Halldór
Halldórsson
Stjórn Varðar
með vikulegan fund
Kynbundið of-
beldi gagnvart
fötluðum konum
er umfjöllunar-
efni fyrirlestrar
Kerstin Krist-
ensen frá Svíþjóð
sem fer fram hjá
Stígamótum í
dag. Kristensen
fjallar um rann-
sóknir og eigin
reynslu af því að veita fötluðum
konum stuðning sem hafa orðið fyr-
ir kynbundnu ofbeldi. Hún vinnur
nú að doktorsritgerð á þessu sviði.
Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði
Sígamóta að Laugavegi 170 og
stendur frá kl. 14 til 16. Fyrir-
lesturinn er á ensku.
Ofbeldi gagnvart
fötluðum konum
Rætt um ofbeldi
gagnvart fötluðum.