Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 19

Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Íbúar þriggja sveitarfélaga geta varið kjördeginum til annars en að fara á kjörstað. Aðeins einn listi barst og var sjálfkjörið í sveit- arstjórnirnar. Vesturbyggð er stærsta sveitar- félagið sem ekki þarf að kjósa í. Þar barst aðeins einn framboðslisti, D- listi sjálfstæðismanna og óháðra. Þar er Friðborg Matthíasdóttir, nú- verandi forseti bæjarstjórnar, í efsta sæti. Ásthildur Sturludóttir er bæjarstjóraefni listans og verður því áfram bæjarstjóri. Fulltrúar af H-listanum í Skútu- staðahreppi eru sjálfkjörnir því enginn annar listi er boðinn fram. Yngvi Ragnar Kristjánsson fram- kvæmdastjóri er efsti maður. Sömu sögu er að segja úr Tjörneshreppi. Óhlutbundnar persónukosningar fara fram í átján sveitarfélögum, meðal annars víðar þar sem lista- kosningar hafa verið viðhafðar. Nefna má Dalabyggð, Hvalfjarð- arsveit, Grenivík, Tálknafjörð og Reykhólasveit. helgi@mbl.is Sjálfkjörið í þrjár sveit- arstjórnir  Sjálfkjörinn bæjar- stjóri í Vesturbyggð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Patreksfjörður 950 búa í Vest- urbyggð. Þar verður ekki kosið. „Utangarðsfólk í borginni er hópur sem við viljum koma betur til móts við. Þessu fólki hefur Hjálpræð- isherinn sinnt ágætlega með Dag- setrinu, en starfsemi þess er hins vegar þröngur stakkur sniðinn,“ segir Björk Vilhelmsdóttir, borg- arfulltrúi og formaður velferðarráðs Reykjavíkur. Á fundi ráðsins í síð- ustu viku var samþykkt að fela starfsfólki velferðarsviðs að taka upp viðræður við Hjálpræðisherinn um rekstur Dagsetursins við Eyja- slóð í Örfirisey. Dagsetrið hefur verið starfrækt í nokkur ár og þar getur fólk sem er á götunni fengið hjálp. Setrið er op- ið frá morgni til síðdegis og þar fær fólk sem er á götunni og hugs- anlega í vímuefnaneyslu mat, getur þrifið sig og fleira. Borgin hefur styrkt þessa starfsemi um fimm milljónir króna á ári – auk þess sem nokkrir starfsmenn hennar einbeita sér að þjónustu við ut- angarðsfólkið. Hvað Dagsetrið áhrærir vantar nú peninga svo því megi halda opnu í júlí næstkomandi og um helgar út árið. „Hjá borginni er vilji til þess að tryggja að þetta gangi eftir,“ segir Björk Vilhelmsdóttir. Tillaga um framansagt var samþykkt sam- hljóða á fundi velferðarráðsins en nákvæmari tillaga og kostnaðar- áætlun á að liggja fyrir á næsta fundi þess. Á fundinum í sl. viku lét Elín Oddný Sigurðardóttir, fulltrúi Vinstri grænna, bóka að undirbúa ætti dagúrræði fyrir útigangsfólk sem rekið yrði af borginni sjálfri. sbs@mbl.is Herinn fái meiri peninga Morgunblaðið/Golli Hjálparsetur Dagsetur Hjálpræðishersins við Eyjaslóð í Örfirisey.  Utangarðs fái hjálp í Dagsetri  VG vill opinberan rekstur Hægt verður í næstu viku að sækja um að fá að ráðstafa séreign- arsparnaði inn á lán sem tekin voru vegna kaupa á íbúðarhúsnæði. Um er að ræða hluta af aðgerð- um ríkisstjórn- arinnar í skulda- málum heimilanna sem samþykktar voru á lokadegi þingsins. Tugir þúsunda hafa sótt um leið- réttingu fasteignaveðlána á vefnum leidretting.is frá því að hann fór í loftið seinasta sunnudag. Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að flókn- ara verði að sækja um ráðstöfun sér- eignarsparnaðar. Ekki sé nóg að sækja um heldur þurfi hver og einn að benda á tiltekin atriði sjálfur. Hægt að sækja um í næstu viku Tryggvi Þór Herbertsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.