Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 20
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Oddur Helgason, ættfræðingur og fyrrverandi sjómaður, hefur mikinn áhuga á að koma upp safni á Ak- ureyri um ferðir fólks af Norður- landi til Brasilíu á síðari hluta 19. aldar. Hann hefur augastað á plássi í hluta gömlu Gránufélagshúsanna á Oddeyri, þar sem veitingastaðurinn Bryggjan er nú til húsa. Oddur segir eigendur staðarins hafa tekið hug- myndinni vel.    Oddur hefur í áratugi gegnt við- urnefninu Spekingur, og er kunnur vegna starfa sinna hjá ættfræðiþjón- ustunni ORG. Þar á bæ hafa menn verið í góðu sambandi við Bras- ilíumenn og vegna þess samstarfs komst í fyrra á vinabæjarsamband á milli Akureyrar og bæjarins Curi- tiba í hinu mikla fótboltalandi.    Spekingnum finnst ekki nægi- lega vel haldið utan um þennan þátt sögu þjóðarinnar. „Fyrsta hópferð Íslendinga vestur um haf var þegar Norðlendingar fóru frá Akureyri til Brasilíu,“ segir hann við Morg- unblaðið. „Við erum með fullt af myndum og fleiri muni um þessi mál og langar að útbúa fallega sýningu,“ segir hann.    Brasilíumaðurinn Luciano Dutra notaði efni um umrædda ferð í ritgerð í íslensku við Háskóla Ís- lands fyrir nokkrum árum; fékk m.a. upplýsingar hjá Oddi og í framhaldi þess komst málið á skrið. Oddur segir þessa skemmtilegu sögu, sem er að finna í formála að ritgerð Dutra: „Skömmu eftir að ferðir hófust frá Íslandi til Brasilíu, voru kerlingar tvær í Þingeyj- arsýslu, sem heyrðu sagt frá því, hvað gott væri að vera í Brasilíu; þar sprytti t.d. kaffi og sykur. Kerling- unum þótti kaffi fjarska gott og töldu paradísarsælu að vera þar, sem nóg væri af því. Vildu þær nú fyrir hvern mun fara til Brasilíu.    Þær afréðu því, segir Oddur, að fara utan og tóku að afla sér upplýs- inga um leiðina. Var þeim þá sagt að þær þyrftu fyrst til Akureyrar. Þá þótti kerlingunum óvænkast ráð sitt, því að þær vissu að þá gátu þær ómögulega komist hjá því að fara yf- ir Fnjóská, og við svo erfiðum far- artálma höfðu þær ekki búist á veg- inum til Brasilíu. „Nei, það er svo fyrirkvíðanlegt að fara yfir hana Fnjóská, að við verðum að hætta við ferðalagið,“ sögðu kerlingarnar, og þar með var áætluninni um Bras- ilíuferðina lokið!    Norðanmenn komast í beinu flugi til Danmerkur í sumar kjósi þeir svo. Flugfélagið Greenland Ex- press hyggst bjóða upp á flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og þaðan áfram til Álaborgar. Frá þessu var greint á fundi um ferða- mál í höfuðstað Norðurlands í vik- unni.    Stefnt er að því að fyrsta beina flugið til Köben og Álaborgar frá Akureyri verði 11. júní og mögulegt verður að bóka ferðir í næstu viku ef að líkum lætur.    Forráðamenn Greenland Ex- press stefna að því að í framtíðinni verði flogið beint úr innbænum á Akureyri til móts við gömlu herra- þjóðina allt árið um kring en nú, í fyrsta atrennu, verður flogið reglu- lega til loka nóvember.    Talsmaður GE sagði í vikunni að miðaverð yrði sambærilegt og far- gjald frá Keflavík til Danmerkur. Það verður hollenskt flugfélag sem sér um að flytja farþega frá Ak- ureyri til Danaveldis fyrir græn- lenska félagið í 100 sæta Fokker vél.    Síðasti fundur bæjarstjórnar Akureyrar á kjörtímabilinu fór fram á þriðjudaginn. Ljóst er að sjö af 11 bæjarfulltrúum hætta að loknum kosningum; hafa sem sagt ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram. Haft var á orði við upphaf fundar, í léttum dúr, að síðar kæmi í ljós hvort fleiri hyrfu á braut í vor …    Þess verður að geta að sex af þessum sjö eru áfram á lista – allir nema Halla Björk Reynisdóttir – og tveir fráfarandi bæjarfulltrúa gönt- uðust með það á fundinum að þeir væru í baráttusætinu: Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista og Andrea Hjálmsdóttir, VG. Bæði skipa 11. sæti. Þá eru Oddur Helgi Hall- dórsson, L-lista, og Ólafur Jónsson, Sjálfstæðisflokki, báðir í heið- urssætum framboðanna.    Oddur Helgi, stofnandi L- listans, hefur setið langlengst allra í þessum hópi; hefur verið viðloðandi bæjarstjórn Akureyrar í 20 ár. Hann hefur verið bæjarfulltrúi L-listans frá stofnun, í 16 ár. Þar á undan var hann þrjú ár varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og eitt ár bæj- arfulltrúi flokksins.    Myndin af þeim sem hætta í vor var tekin rétt áður en forseti bæj- arstjórnar sló hamri sínum í borðið í og setti fund. Frá vinstri: Inda Björk Gunnarsdóttir, Oddur Helgi Halldórsson, Halla Björk Reyn- isdóttir, Geir Kristinn Aðalsteins- son, öll af L-lista, Sigurður Guð- mundsson, Bæjarlistanum, Ólafur Jónsson, Sjálfstæðisflokki, og Andr- ea Hjálmsdóttir, VG.    Aðeins fjórir af sitjandi bæj- arfulltrúum gefa kost á sér til endur- kjörs: Guðmundur B. Guðmundsson, Framsóknarflokki, Logi Már Ein- arsson, Samfylkingu, Tryggvi Gunn- arsson, L-lista, og Hlín Bolladóttir, sem er í bæjarstjórn fyrir L-lista en skipar fyrsta sæti á lista Dögunar við kosningarnar í vor.    Dúndurfréttir blása enn til tón- leika á Græna hattinum og verða nú bæði föstudags- og laugardagskvöld. Fyrri hluta tónleikanna tileinka þeir bestu verkum Pink Floyd en eftir hlé leikur sveitin lög með Led Zeppelin, Uriah Heep, Deep Purple, Kansas og fleiri slíkum. Af bæjarstjórn og Brasilíuferð Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sjö á förum Þau hætta í bæjarstjórn í vor. Frá vinstri: Inda Björk Gunnarsdóttir, Oddur Helgi Halldórsson, Halla Björk Reynisdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Sigurður Guðmundsson, Ólafur Jónsson og Andrea Hjálmsdóttir. Brasilía Oddur Helgason, ættfræðingur og fyrrverandi sjómaður, skoðaði aðstæður í gömlu Gránufélagshúsunum á Oddeyri á dögunum. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Áþreifanleg vellíðan EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is 82 ÁRA EDDA Heildverslun Draumur um góða nótt Heildverslun með lín fyrir: • hótelið • gistiheimilið • bændagistinguna • veitingasalinn • heilsulindina • hjúkrunarheimilið • þvottahúsið • sérverslunina Gæði og glæsileiki Heildverslunin Edda hefur um áratuga skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni. Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt sem minni nota allt lín frá okkur. Bjóðum einnig upp á lífrænt lín. Biskup Íslands hefur auglýst þrjú prestsembætti laus til umsóknar, eitt í Reykjavík og tvö í Eyjafirði. Embætti prests í Glerárpresta- kalli á Akureyri er laust til umsókn- ar og veitist það frá 1. september næstkomandi. Í Glerárprestakalli er ein sókn, Lögmannshlíðarsókn, með rúmlega sjö þúsund íbúa og tvær kirkjur, Glerárkirkju og Lögmanns- hlíðarkirkju. Umsóknarfrestur rennur út 10. júní næstkomandi. Þá hefur biskup auglýst laust til umsóknar embætti prests í Dalvík- urprestakalli frá 1. júlí 2014. Sam- kvæmt samþykkt kirkjuþings sem tók gildi 8. mars s.l. sameinast Hrís- eyjar-, Möðruvalla- og Dalvík- urprestakall frá sama tíma. Heiti prestakallsins verður Dalvík- urprestakall. Prestssetrið og skrif- stofa prests verður á Möðruvöllum. Í Dalvíkurprestakalli eru átta sóknir, þær eru: Miðgarðasókn, Grímsey, Tjarnarsókn, Upsasókn, Urðasókn, Vallasókn, Hríseyj- arsókn, Stærra-Árskógssókn og Möðruvallaklausturssókn og mynd- ar prestakallið eitt samstarfssvæði. Íbúar prestakallsins eru tæplega þrjú þúsund. Umsóknarfrestur rennur út 3. júní n.k. Loks hefur biskup aulýst laust til umsóknar embætti prest í Graf- arvogsprestakalli í Reykjavík. Þar er ein sókn, Grafarvogssókn, með um átján þúsund íbúa og eina kirkju, Grafarvogskirkju. Grafarvogs- prestakall er á samstarfssvæði með Grafarholtsprestakalli og Árbæj- arprestakalli. Umsóknarfrestur rennur út 5. júní n.k. Biskup Íslands skipar í embætti presta til fimm ára. sisi@mbl.is Þrjú prestembætti laus til umsóknar Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Glerárkirkja Embætti prests við kirkjuna hefur verið auglýst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.