Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 21

Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Eldhús • Álfelgur • Aðeins 250 kg Áratuga reynsla á Íslandi Umboðsaðili Camp-let á Íslandi tjaldast ásamt fortjaldi með einu handtaki TjaldvagnarHeitt ákönnunni og veiting ar fyrir börn in um helginaStórsýning 100.000 kr. af öllum vögnum og 15% afsláttur af aukahlutum út maí Kynningarafsláttur Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ Sími 534 4433 - www.isband.is OPIÐ laugardag og sunnudag 11-15 Opið virka daga 10-18 Birgðir af Appelsín, Pepsi, Pepsi Max, Kit Kat og Chupa sleikjó fylgja með seldum vagni í maí Ef horft er samantekið til allra sex dreifiveitna raforku á Íslandi er meirihluti kerfisins á lágri spennu nú þegar í formi jarðstrengja, eða um 54%. Nær allar nýframkvæmdir og viðhald á kerfinu er lagt í jarð- strengjum. Þetta kom fram á vor- fundi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, nýverið. Ef horft er til kerfisins í heild, sem er um 14.483 km, er meirihlut- inn í loftlínu eða um 57%. Allur þorri kerfisins á hærri spennu er í loftlín- um eða 96%. Mikill kostnaður við að leggja streng með hærri spennu í jörð Ástæðan fyrir þessu háa hlutfalli hærri spennu í loftlínu er m.a. kostn- aður. „Enn í dag er kostnaðurinn meiri við að leggja streng með hærri spennu í jörð; því fylgja oft tækni- legar áskoranir og stundum veldur það meira umhverfisraski en það er þó ekki algilt,“ sagði Gústaf Adolf Skúlason, framkvæmdastjóri Sam- orku. Hann segir kerfið stefna allt í jörð þar sem það er tæknilega fýsilegt og hagkvæmt. Þá telur Gústaf að það verði eflaust hagkvæmara með ár- unum að koma háspennu í jarð- strengi en eins og staða sé núna þá sé það miklu dýrara. Jafnframt benti hann á að ef þau fyrirtæki sem eru í sérleyfisrekstri tækju ákvörð- un um dýrara lausn þá tækju þau ákvörðun um hækkun gjaldskrár fyrir alla sína viðskiptavini. Þessar sex dreifiveitur raforku á Íslandi eru: Rarik, Orkuveita Reykjavíkur, HS veitur, Orkubú Vestfjarða, Norðurorka og Rafveita Reyðarfjarðar. thorunn@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Loftlínur Meirihluti raforkukerf- isins er í loftlínu eða um 57%. Meirihluti raflína á lágri spennu í jörðu  Flestar nýframkvæmdir í jarðstreng með ásættanlegum hætti því ann- ars væri hætta á að mikilvæg grunnvinna fyrir vernd og sjálf- bæra nýtingu náttúru Íslands færi forgörðum og þjóðhagslegum ávinningi af verkefninu yrði fórn- að. Áætlað var að frá Evrópusam- bandinu kæmu yfir 600 milljónir króna, en sú tala lækkar um 200 milljónir króna. Reiknað með 17 ársverkum Jón Gunnar segir að margir hafi komið að þessu starfi, innan stofn- unar og utan hennar. Reiknað hafi verið með 17 ársverkum starfs- manna stofnunarinnar á þessu ári og það verði nálægt lagi þrátt fyrir breytingar. Um 90% verkþátta á vettvangi hafi verið lokið og það sem eftir var hafi verið skorið niður eins og mögulegt hafi verið. Ríkið hleypur undir bagga  Náttúrufræðistofnun nær að ljúka Natura Island-verkefninu  ESB sagði upp samningum um IPA-styrk  Niðurskurður og hagræðing án uppsagna Ljósmynd/Sigurður H. Magnússon Á vettvangi Mikil vinna hefur verið lögð í kortlagningu á vettvangi í náttúru Íslands. Samkomulag við umhverfis- og auðlindaráðuneyti gerir Náttúrufræðistofnun kleift að ljúka verkefni þar sem vistgerðir landsins eru flokkaðar. BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samkomulag hefur tekist á milli Náttúrufræðistofnunar Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytis- ins um aðgerðir sem gera NÍ kleift að ljúka verkefninu Natura Island. Í því felst m.a. að flokka land frá fjöru til fjalla í vistgerðir. Lok verkefnisins voru í uppnámi eftir að Evrópusambandið sagði upp samningi um það í lok mars, en með vilyrði fyrir auknu fjár- magni frá ríkinu, niðurskurði og hagræðingu, án þess að til upp- sagna komi, reiknar Jón Gunnar Ottósson, forstjóri NÍ, með að verkefninu ljúki með ásættanleg- um hætti í árslok 2015 eða byrjun árs 2016. Það er tæpu ári síðar en upphaflega var ráðgert að ljúka verkefninu. Sambland af mörgum þáttum „Við náum að ljúka þessu með samblandi af mörgum þáttum,“ segir Jón Gunnar. „Verkefnið hef- ur verið endurskoðað og skorið niður um 45 milljónir króna. Einn- ig hefur verið skorið niður í öðrum rekstri hjá stofnuninni eins og hægt er til að fjármagna verkefnið. Síðast en ekki síst höfum við fengið vilyrði fyrir auknu fjár- magni frá ríkinu á þessu ári og því næsta, sem gerir okkur kleift að ljúka þessu og ný rekstraráætlun sem byggist á þessu hefur verið samþykkt.“ Jón Gunnar vill að svo stöddu ekki nefna tölur sem felast í auknu framlagi ríkisins. Lækkar um 200 milljónir Á ársfundi Náttúrufræðistofnun- ar fyrir mánuði greindi Jón Gunn- ar frá uppsögn Evrópusambands- ins á IPA-samningi vegna Natura Ísland verkefnisins. Hann sagði að uppsögin setti rekstraráætlun 2014-2015 úr skorðum því hún byggðist að verulegu leyti á verk- efninu. Leggja þyrfti áherslu á að finna leið til að ljúka verkefninu Evrópusambandið sagði samn- ingnum formlega upp í lok mars- mánaðar með tveggja mánaða fyrirvara þannig að styrktíma- bilinu lýkur 25. maí og verður þá gengið frá lokauppgjöri við ESB. Jón Gunnar segir að Náttúru- fræðistofnun fái í ár um 80 millj- ónir frá ESB, en ef samningur hefði verið í gildi allt árið hefði upphæðin verið nær 200 millj- ónum. Aðspurður hvort málinu ljúki með þessum hætti gagnvart Evr- ópusambandinu eða hvort hugs- anlega verði farið í skaða- bótamál segir Jón Gunnar það ólíklegt. „Við höfum í sjálfu sér ekki lokað á eitt eða neitt. Samtök at- vinnulífsins eru að skoða mögu- leika sína vegna fræðslumiðstöðvar samtakanna og við fylgjumst vel með því máli.“ Fylgjast náið með SA SKAÐABÓTAMÁL EKKI LÍKLEGT Jón Gunnar Ottósson 100. Íslandsmótið í skák fer fram í Stúkunni við Kópavogsvöll dagana 23. maí - 1. júní. Fyrsta Íslands- mótið var reyndar haldið fyrir 101 ári (1913) en mótið hefur fallið nið- ur tvisvar og því er mótið það hundraðasta sem fram fer. Landsliðsflokkurinn er sá sterk- asti í sögunni þar sem sjö stórmeist- arar eru skráðir til leiks. Eftirtaldir taka þátt í landsliðs- flokki: Hannes Hlífar Stefánsson (2548 elo-stig), Héðinn Stein- grímsson (2537), Hjörvar Steinn Grétarsson (2530), Stefán Krist- jánsson (2494), Henrik Danielsen (2483), Helgi Áss Grétarsson (2462), Bragi Þorfinnsson (2459), Guð- mundur Kjartansson (2439), Þröst- ur Þórhallsson (2437) og Björn Þor- finnsson (2389). Meðalstigin eru 2478. Hvorki hafa meðalstig verið hærri né hafa fleiri stórmeistarar tekið þátt í Ís- landsmótinu í skák. Í fyrstu umferð mætast meðal annars Hjörvar og Héðinn en umferðin hefst kl. 16 á föstudag. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, setur mótið og leikur fyrsta leik þess. Íslandsmót kvenna og áskor- endaflokkur fara fram á sama tíma og þar er skráning í fullum gangi. Sterkasta Íslands- mótið Meistari Hannes Hlífar Stefánsson hefur oftast orðið Íslandsmeistari. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.