Morgunblaðið - 22.05.2014, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.05.2014, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Þingmenn Efnahagsfrelsisbaráttumanna (EFF) vöktu athygli þegar nýtt þing Suður-Afríku kom saman í Höfðaborg í gær. Flokkurinn vann 25 þingsæti af 400 í þingkosningum fyrr í þessum mánuði en hann var stofnaður til höfuðs Afríska þjóðarráðinu, ANC, sem Julius Malema, leiðtogi EFF, segir hafa brugðist trausti fátækra blökku- manna. Þingmenn EFF klæddust því rauðum göllum og húfum til stuðnings verkamönnum. Rauðliðar sóru þingmannaeiða AFP Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Flóðunum sem hafa átt sér stað á Balkanskaga undanfarið hefur ekki aðeins verið líkt við hörmungarnar í borgarastríðinu á 10. áratug síð- ustu aldar heldur hefur vatnið bók- staflega fleytt gömlum draugum þess upp á yfirborðið aftur. Um það bil tveimur milljónum jarðsprengna var komið fyrir í jörðinni í Bosníustríðinu sem stóð frá 1992 til 1995. Síðan þá hefur verið unnið ötullega að því að fjar- lægja þær en engu að síður hafa jarðsprengjur grandað um 1.800 Bosníumönnum frá því að stríðinu lauk. Talið var að um 120.000 væru enn eftir á vel merktu svæði en flóðin hafa sett stórt strik í reikn- inginn. „Við eyddum tíu árum í að merkja svæðið með viðvörunar- merkjum. Á örfáum dögum er það allt á brott,“ segir Ahdin Oraho- vac, aðstoðarforstöðumaður aðger- ðamistöðvar gegn jarðsprengjum í Bosníu og Hersegóvínu, við banda- ríska ríkisútvarpið NPR. Vandamálið breiðir úr sér Fjöldi tilkynninga hefur þegar borist frá fólki á flóðasvæðunum sem hefur fundið ósprungnar sprengjur, handsprengjur og önn- ur sprengiefni. Sumar jarð- sprengjurnar eru úr plasti og því hafa þær getað flotið með vatns- straumnum. Starfsmenn aðgerðamistöðvar- innar gera sitt besta til kortleggja hverja tilkynningu um jarð- sprengju en þeir segja að þörf sé á meiri mannafla og fjármunum til að taka á vandanum. Einnig er óttast að vatnselgur- inn og aurskriður hafi ýtt jarð- sprengjum inn í nágrannalöndin og hafa starfsmennirnir unnið með yfirvöldum í Serbíu og Króatíu vegna þessa. „Þetta er orðið svæðisbundið vandamál núna,“ segir Orahovac. Flóðin ýfa upp gömul sár  Jarðsprengjur sem lagðar voru í Bosníustríðinu skjóta aftur upp kollinum eftir flóðin á Balkanskaga  Fjöldi tilkynninga um ósprungnar sprengjur á svæðunum AFP Hætta Sprengjusérfræðingur leitar að landsprengjum eftir flóðin. Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir fjárdrátt af dómstól í heimaland- inu. Tveir synir Mubaraks, Alaa og Gamal, voru einnig sakfelldir fyrir sömu sakir. Þeir hlutu fjögurra ára fangelsisdóm hvor. Þremenningarnir voru dæmdir til að greiða sekt að jafnvirði tæpra 340 milljóna króna og til að end- urgreiða tæpa tvo milljarða króna sem þeir voru ákærðir fyrir að stela úr opinberum sjóðum. Átti að fara í forsetahallir Mubarak, sem er 86 ára gamall, er einnig ákærður fyrir valdamis- notkun og að leggja á ráðin um dráp á mótmælendum í uppreisn- inni árið 2011 sem kom honum frá völdum. Árið 2012 var forsetinn fyrrver- andi dæmdur í lífstíðarfangelsi fyr- ir þær sakir en áfrýjunardómstóll fyrirskipaði að réttað yrði yfir hon- um að nýju af tæknilegum ástæð- um. Honum hefur verið haldið í stofufangelsi á hersjúkrahúsi í Kaíró frá því í ágúst í fyrra. Feðgarnir voru ákærðir fyrir að hafa notað tæpa tvo milljarða króna sem átti að verja í viðhald á forsetahöllum til þess að gera upp þeirra eigið persónulega húsnæði. Þeir hafa neitað öllum sökum og sagt málatilbúnað ákæruvaldsins byggjast á sandi þar sem fjárdrátt- urinn hafi aldrei átt sér stað. Ekki liggur fyrir hvort þau þrjú ár sem Mubarak og synir hans hafa þegar setið í haldi verða dregin frá fangelsisdómunum yfir þeim. Eins er óvíst hvort Mubarak verður sendur aftur á hersjúkrahúsið þar sem hann hefur dvalist eða hvort hann verður sendur í fangelsi. Mubarak og synir dæmdir í fangelsi  Drógu sér tæpa tvo milljarða króna AFP Dæmdur Mubarak veifar úr búri sínu við réttarhöldin í Kaíró í gær. Rússneski orku- risinn Gazprom skrifaði í gær undir risasamn- ing við kínverska ríkisolíufyr- irtækið um sölu á rússnesku jarð- gasi til þrjátíu ára. Áætlað er að heildarverðmæti samningsins nemi um 400 milljörðum dollara. Viðræður um samninginn hafa staðið yfir í meira en áratug. Salan á gasinu hefst árið 2018 og sam- kvæmt samningnum verða 38 millj- arðar rúmmetra af gasi fluttir til Kína á ári hverju. Í honum er einn- ig að finna ákvæði um möguleikann á aukningu upp í 61 milljarð rúm- metra. Gasið verður flutt með nýrri gasleiðslu sem tengir löndin tvö. Samningurinn skiptir Rússa miklu enda er jarðgas um 60% af útflutningsafurðum þeirra. Hingað til hafa Evrópuríki verið stærstu kaupendur gassins. Spenna út af at- burðum í Úkraínu hefur verið rúss- neskum stjórnvöldum hvati til að leita á fleiri mið til að vera ekki eins háð Evrópu. RÚSSLAND Skrifuðu undir risasamning við Kínverja Samkynhneigð pör í Pennsylvaníuríki í Bandaríkjunum flýta sér nú að gifta sig eftir að alrík- isdómstóll ógilti lög ríkisins sem bönn- uðu hjónabönd þeirra. Skrifstofur sýslumanna í Fíla- delfíu sem gefa út giftingarvott- orð hafa verið opnar fram eftir og í Pittsburg hefur verið tekið við umsóknum rafrænt. Flýtirinn or- sakast af því að hugsanlegt er að ríkisstjórinn, repúblikaninn Tom Corbett, áfrýi niðurstöðu dóm- stólsins og það myndi fresta rétt- aráhrifum hans. Það gerðist í Idaho í síðustu viku þar sem sams- konar lög höfðu verið ógilt. BANDARÍKIN Nýta tækifæri til að ganga í hjónaband ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur Sími: 540 7000 • www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.