Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 27

Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Kynning Verkið Fantastar verður frumsýnt í Brims-húsinu við Geirsgötu í dag og af því tilefni var „risakræklingi“ komið fyrir í sjónum við Suðurbugt í gær, en verkið er hluti af Listahátíð. Árni Sæberg Borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík í lok þessa mánaðar eru þýðingarmestu kosn- ingar í borginni um áratugaskeið. Aðeins eitt framboð í borginni berst af heilum hug gegn því að SV/NA braut, þ.e. neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar, verði lögð niður, sem mun án nokkurs vafa kosta mannslíf í framtíðinni, ef af verður. Hér á ég við sameiginlegt framboð Framsóknar og flugvall- arvina, þar sem fjórar konur úr ýms- um stjórnmálaflokkum hafa komið til liðs við flugvöllinn og þann yfirgnæf- andi meirihluta Reykvíkinga og ann- arra landsmanna, sem vill þá aug- ljósu almanna- og öryggishagsmuni, sem felast í núverandi Reykja- flugvelli með þrem brautum og yfir 98% nothæfisstuðli. Ef neyðarbrautin fer fellur þetta hlutfall í 93,8%, sem er undir öryggis- viðmiði Alþjóðaflug- málastofnunarinnar, og þar með er flugvöll- urinn lokaður í 23 daga á ári, sem þýðir að hann er kominn í ruslflokk og orðinn ónothæfur. Það er nánast óhugnanlegt, að 12 núverandi borg- arfulltrúar úr öllum flokkum hafi greitt atkvæði með Að- alskipulagi, sem gerir ráð fyrir þessu, fyrr á þessu ári. Reynslan er ólygnust Sá sem þetta ritar þekkir sögu, skipulagsmál, öryggisstaðla og stað- reyndir flugvallarmálsins vel, allt frá því að hann tók sæti í borgarstjórn árið 1990. Það sama ár skipaði Stein- grímur J. Sigfússon, þáverandi sam- gönguráðherra Alþýðubandalagsins, nefnd um staðsetningu Reykjavík- urflugvallar undir forystu flokks- systur sinnar, Álfheiðar Ingadóttur, síðar heilbrigðisráðherra. Nefndin skilaði fljótt áliti, enda enginn fagleg- ur rökstuðningur fyrir því áliti henn- ar, að flugvöllurinn ætti að fara úr borginni. Síðan skall sú ógæfa yfir, árið 1994, að R-listinn náði meiri- hluta í borginni. Á hans forsendum var kosið um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar árið 2001. Svo illa vildi til að oddviti sjálfstæð- ismanna, Inga Jóna Þórðardóttir, hvatti fólk til að hundsa flugvall- arkosninguna, með þeim árangri að aðeins 37% borgarbúa tóku þátt í kosningunni, sem gaf minnihluta flugvallarandstæðinga tækifæri á að vinna kosninguna með 19% atkvæð- isbærra Reykvíkinga gegn 18%. Við þessa niðurstöðu hafa vinstri menn í borginni haldið sig og kolfellt allar tillögur mínar um nýjar flugvall- arkosningar með atfylgi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, nú innanrík- isráðherra, og félaga hennar í Sjálf- stæðisflokknum og loks á kjör- tímabilinu 2006-2010 felldu allir 14 kjörnir fulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur, endurtekið, tillögur mínar til stuðnings Reykjavík- urflugvelli. Það hefur verið sárt að horfa upp á framgöngu borgarfull- trúa í þessu máli á því kjörtímabili, sem senn er á enda. Sem fyrrverandi landsbyggðarlæknir þekki ég það af reynslu, að sekúndurnar skipta öllu máli, þegar lífshættulega neyð ber að höndum og brýnt er að koma sjúk- lingi eða slösuðum á skurðstofu eða hátæknisjúkrahús sem allra fyrst. Í því sambandi er vert að minnast þess, að greiðar og öruggar sam- göngur á láði, legi og í lofti eru stoð- kerfi öryggismála og atvinnulífs á Ís- landi. Eini valkostur flugvallarvina Ég hvet Reykvíkinga eindregið til þess að kjósa nýtt framboð flugvall- arvina, bæði í ljósi reynslunnar og með tilliti til framgöngu innanrík- isráðherra, Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, og vinstri flokkanna, í flug- vallarmálinu, fyrr og síðar. Framboð B-lista Framsóknar og flugvallarvina er vel skipað, með vaskar og hrein- lyndar konur og einlæga flugvall- arvini í öndvegi. Munum það á kjör- dag, um leið og við björgum mannslífum og öðrum almannahags- munum. Eftir Ólaf F. Magnússon » ...þar með er flug- völlurinn lokaður í 23 daga á ári, sem þýðir að hann er kominn í ruslflokk og orðinn ónothæfur. Ólafur F. Magnússon Höfundur er læknir og fv. borgarstjóri. Björgum neyðarbraut og mannslífum Nýlega var hér í blaðinu viðtal við framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem því var haldið fram að hinn frábæri listamað- ur Vladimir Ashke- nazy hefði bæði stofn- að Listahátíð í Reykjavík og ýtt úr vör að reisa tónlistar- hús í Reykjavík. Hér er um misskilning að ræða. Nú þegar enn á ný er blásið til Listahátíðar virðist því ástæða til að rekja aðdraganda þessara mála enn einu sinni. Hugmyndin um listahátíð í Reykjavík á eins eða tveggja ára fresti var gamall draumur Banda- lags ísl. listamanna sem nokkrum sinnum hafði staðið að slíkum listahátíðum, en ekki á föstum reglubundnum grunni. Hafði sá draumur oft verið viðraður við stjórnvöld. Þegar svo Norræna húsið varð að veruleika opnaðist nýr vettvangur, bæði hvað fé og stað snerti til að stofna til slíks fyrirtækis. Stað- reyndin er sú, að þarna tóku sig saman ríki og borg, fyrst og fremst Gylfi Þ. Gísla- son menntamálaráð- herra og Geir Hall- grímsson borgarstjóri, og hétu viðbótarfé til framkvæmda. Stofnað var um 30 manna fulltrúaráð og síðan valin fimm manna stjórn; voru þar fulltrúar bæði borgar og ríkis, forseti Bandalags ísl. lista- mana, sem var Hannes Kr. Dav- íðsson og tveir aðrir listamenn kosnir af fulltúaráðinu; var sá sem hér heldur á penna annar þeirra og er sá eini sem nú er á lífi úr fyrstu stjórninni. Fyrirtækið var til húsa í Norræna húsinu og fyrsti forstjóri þess, Ivar Eskeland, var fyrsti framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík sem haldin var 1970. Vel má vera að Vladimir Ashke- nazy hafi viðrað svipaðar hug- myndir við stjórnvöld, en hann kom aldrei formlega að stofnun né stjórnun Listahátíðar. Hins vegar sat hann stundum sem gestur fundi stjórnarinnar og gaf góð ráð; framlag hans þar reyndist betra en ekkert, því að hann hafði oft milli- göngu um að fá hingað fyrsta flokks listafólk sem jók til muna bæði orðstír og gæði þess sem í boði var á upphafsárunum. Í annan stað er rétt að rifja upp hvernig sú hreyfing sem lauk á því að Harpa var vígð fór af stað. Árið 1983 flutti Sinfóníuhljómsveit Ís- lands níundu sinfóníu Beethovens undir stjórn Jean-Pierre Jacquil- lat. Aðsókn var svo mikil að ákveð- ið var að flytja sinfóníuna tvívegis. Mikil umræða skapaðist þá meðal unnenda sinfóníunnar vegna að- stöðuleysis í slíkum tilvikum. Það varð til þess, að mikill tónlistar- áhugamaður, Ármann Örn Ár- mannsson framkvæmdastjóri, rit- aði grein í Morgunblaðið, sem mikla athygli vakti, enda dró hann þar saman rök, sem árum saman höfðu verið í loftinu fyrir byggingu sæmilegs húss fyrir tónlistina í landinu. Í kjölfarið kom Jón Þór- arinsson tónskáld að máli við mig og bað mig fyrir hönd hljómsveit- arinnar að flytja hvatningarávarp í lok síðari tónleikanna sem fóru fram síðdegis á laugardegi; það gerði ég og nefndi: Það vantar eitt hús. Í kjölfar þessara skrifa Ármanns og annarra sem eftir fylgdu voru svo stofnuð formleg Samtök um byggingu tónlistarhúss. Einnig þar var stofnað fulltrúaráð og kosin framkvæmdastjórn, þar sem auk Ármanns áttu sæti mætir og ósér- hlífnir menn úr öllum stjórn- málaflokkum og ýmsum greinum lista. Ráðist var í samkeppni um teikningu að slíku húsi og sitthvað fleira til að vinna að framgangi þessa máls, og var oft á brattann að sækja hjá stjórnvöldum Þeir tónleikar sem Ashkenazy stóð að og stýrði af rausnarskap í Lundúnum til stuðnings þessu máli og oft er vísað til, voru hins vegar haldnir hálfu ári síðar en samtökin voru stofnuð. Þær staðreyndir sem hér er vís- að til eru studdar fundargerðum beggja, Listahátíðar og Samtaka um byggingu tónlistarhúss, og vís- ast að öðru leyti til þeirra, svo og t.d. í prentaða dagskrá Listahátíð- ar 1970. Á þetta er ekki bent til að gera lítið úr því mikla framlagi sem Ashkenazy hefur fært ís- lensku menningarlífi, heldur til þess að staðreyndir flytjist óbrenglaðar frá einni kynslóð til annarrar. Eftir Svein Einarsson »Hugmyndin um listahátíð í Reykja- vík á eins eða tveggja ára fresti var gamall draumur Bandalags íslenskra listamanna. Sveinn Einarsson Höfundur er fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri. Hafa skal heldur það sem sannara reynist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.