Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Jóhönnu-heilkennið
má kalla það, þegar
hrært er í málum sem
eru í góðu lagi á með-
an þarfamálin eru lát-
in nær ósnert. Þetta
var alþekkt á lands-
vísu í stjórnartíð
Samfylkingar og
Vinstri grænna árin
2009-2013. Borg-
armálin fóru líka í
þennan farveg með
Besta flokknum og
Samfylkingu sl. fjög-
ur ár og nú virðist
Dagur Bergþóruson
Eggertsson stefna í
að fá umboð borg-
arbúa til þess að
halda þeirri stefnu
áfram af krafti næstu
fjögur árin.
Samfylkingin
bakvið tjöldin
Reykjavíkurdætur
eru í hrifningarstormi
á Facebook yfir Degi
B., en mættu aðeins
styrkja sig í hnjáliðunum og líta á
líklegar afleiðingar þess að fá
Samfylkinguna yfir borgarmálin af
fullum krafti. Síðastliðin fjögur ár
hefur hún unnið ýmis verk bakvið
leiktjöldin, sérstaklega í mörg
hundruð milljóna króna óþarfa-
verkum eins og breytingar-
tillögum á Aðalskipulagi Reykja-
víkur og Hverfaskipulagi, sem
gera átti ónothæft.
Daglegu lífi raskað
Daglegt líf þorra Reykvíkinga,
nágranna þeirra og Íslendinga al-
mennt nær að verða fyrir nei-
kvæðum áhrifum þess að Samfylk-
ingin og Björt framtíð fullkomna
ídealisma sinn um breytingar á
lífsstíl fólks að þeirra hætti. Síðan
þegar íbúarnir fá nóg, þá er það
orðið of seint: aðal- umferðaræðar
eins og Hringbraut verða þrengd-
ar, Reykjavík verður þekkt fyrir
bílastæðaskort þrátt fyrir gnótt
landsvæðis, flugvöllur höfuðborg-
arinnar verður fjarlægður með öll-
um sínum afleiðingum og fé-
lagsíbúðir á kostnað Reykjavíkur-
búa reistar í staðinn á dýrasta
stað í borginni. Í stað greiðfærra
brauta sem lágmarka tímasóun
þorra borgarbúa, þá er yfirlýst
stefna beinlínis að hægja á umferð
með stíflun hennar. Hagur út-
hverfanna er yfirleitt hundsaður.
Aðhald
En ofangreindir ókostir, sem
liggja fyrir sem staðreyndir nú
þegar, duga líklegast ekki til þess
að kom Degi & Co frá völdum í
borginni. Sjarminn blífur og
skuldasöfnun okkar í gegnum
hann er líkleg til þess að taka
undir sig stökk. Þó er von til þess
að kjósendur beiti hópinn aðhaldi,
helst með því að
kjósa hann ekki í
komandi kosningum,
en annars með því að
fara ofan í saumana á
m.a. þessum mál-
efnum.
Raunverulegt
val íbúanna
Íbúalýðræði Dags
& Co hefur hingað til
verið Facebook-
lýðræði og álíka lýð-
skrum eins og Betri
Reykjavík, þar sem
kosið er um hvort
bekkur verði settur
upp hér eða hellur
lagðar þar. Krefjast
þarf alvöru kosninga
íbúa hvers hverfis um
alvörumál áður en
þau eru sett af stað,
sérstaklega þegar um
er að ræða þéttingu
byggðar í grónum
hverfum, sem bæði
Samfylking og Björt
framtíð setja á odd-
inn. Þegar síðan ná-
grannabyggðir hafa
verulegra hagsmuna að gæta, þá
verður að vera full sátt um að-
gerðir áður en vaðið er í þær. Sel-
tjarnarnes hefur t.d. rétt á því að
Hringbraut sé haldið greiðfærri,
þó ekki sé nema vegna öryggis-
hagsmuna.
Krefjumst upplýsinga
Borgaryfirvöld Dags & Co hafa
talað um opna stjórnsýslu á tylli-
dögum, en ómögulegt er að nálg-
ast jafnvel samþykktar tillögur
Borgarráðs, sem opinbera þær af-
arhugmyndir sem eru í gangi.
Krefjumst þess að allt sé birt og
gert aðgengilegt, svo að borg-
arbúar megi sjá í hvaða villu er
verið að leiða þá. Við höfum að-
eins nokkra daga núna til um-
hugsunar fyrir kosningar.
Jóhönnu- heilkenn-
ið í Reykjavík
Eftir Ívar Pálsson
»Þegar íbú-
arnir fá nóg,
þá er það orðið
of seint: aðal-
æðar þrengdar,
Reykjavík þekkt
fyrir bílastæða-
skort, flugvöll-
urinn farinn og
úthverfin
hundsuð.
Ívar Pálsson
Höfundur er viðskiptafræðingur með
eigið útflutningsfyrirtæki.
fyrirheitnu landa kommanna.
Þetta var hinsvegar mun erfiðra
hjá krötunum. Þeir voru svo marg-
ir orðnir iðnaðarmenn, sem höfðu
lokið sínu námi í kvöldskóla með
sinni vinnu hjá meistara og sumir
einnig aflað sér meistararéttinda
og farið að vinna sem slíkir. Það
var síðan 6. september 1952 sem
haldin var fyrsta Iðnsýningin í
hálfbyggðu skólahúsi Iðnskólans í
Reykjavík. Þar sýndu á þriðja
hundrað fyrirtækja framleiðslu
sína. Á sýninguna komu 73 þúsund
gestir. Það sem einkenndi þennan
tíma var bjartsýni í öllum iðnaði. Í
málmiðnaðinum voru til dæmis
framleidd öll tæki og búnaður til
fiskvinnslu, mjölvinnslu, fryst-
ingar, mjólkurvinnslu sem og bún-
aður til hvers konar matvæla-
vinnslu. Einnig var nokkuð öflug
bátasmíði hér á landi, þótt stál-
skipasmíðin hafi ekki verið hafin.
Þá var sett upp Iðnfræðsluráð á
vegum ríkisins og skyldi það hafa
umsjón með allri fræðslu innan
löggiltra iðngreina. Var stofnun og
rekstur iðnfræðsluráðs ef til vill
aðeins yfirvarp, til að hindra það
að iðnaðurinn næði að eflast og
dafna og bæta þjóðarhag? Núna
þegar ég lít til baka yfir þau 25 ár
sem ég starfaði sem fram-
kvæmdastjóri Samtaka vinnuveit-
enda í málmiðnaðargreinum (SMS)
þá sýnist mér, að í raun hafi verið
unnið að því að hefta alla þróun í
iðnaði, að fiskiðnaði meðtöldum.
Því um leið og atvinnugreinin
hættir að hafa bein áhrif og bera
fulla ábyrgð á menntun innan
greinarinnar, þá byrjar henni fljótt
að hnigna. Þessir háskólamennt-
uðu starfsmenn ráðuneytanna
þekkja yfirleitt lítið til rekstrar og
tækniþróunar innan viðkomandi
iðngreinar, þó sú þekking sé og
verði alltaf undirstaða þróunar.
Fram yfir 1965 bar ekki mikið á
hnignuninni í málmiðnaðinum,
fljótlega upp úr 1970 var farið að
bera á því að iðnaðurinn væri
hættur að hafa efni á því að end-
urnýja framleiðslutæki sín. En
hingað til lands bárust bæklingar
frá dönskum fyrirtækjum sem
seldu notaðar vélar og tæki og
stærðu sig af því að flytja út til Ís-
lands og Afríku. Bankavaldið heim-
ilaði ekki neinar fjárfestingar í
þessum nýju tölvustýrðu fram-
leiðsluvélum og búnaði.
Hinsvegar er afar sorglegt að
sjá hvað menntasnobbið gerði erf-
itt fyrir á öllum sviðum. Fólk er
hvatt til bóknámsins, án þess að
fyrir liggi nokkur greining á því
hverjir starfsmöguleikarnir eru að
námi loknu. Allar atvinnugreinar
þurfa sína starfsmenntun, allt frá
prófessorum til umönnunarfólks á
vistheimilum aldraðra.
Síðan er reynt að búa til störf
fyrir þetta menntaða fólk hjá hinu
opinbera, því menntunin nýtist lítið
við þau störf sem eru laus á hverj-
um tíma. Menntun sem ekki nýtist
til nýrrar atvinnusköpunar verður
alltaf byrði fyrir þjóðfélagið í heild
sinni. Og að nota ákveðnar próf-
gráður sem launaviðmið í kjara-
samningum ætti að banna, nema
sem lágmarkslaunataxta, sem þá
gilti fyrir öll lágmarkslaun fyrir
launþega, öryrkja og lífeyrisþega.
Höfundur er ellilífeyrisþegi.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar