Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 39

Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 39
ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 95 ára Jósef Magnússon 85 ára Guðlaugur Gíslason Jens Kristjánsson Sigurjón Steinsson 80 ára Anna Kristjánsdóttir Fanney Guðmundsdóttir Helga I. Jóelsdóttir Ingveldur L. Hjaltested Ólöf I. Klemenzdóttir Sigurbjörn Davíðsson 75 ára Guðmundur Sigurðsson Margrét Sigríður Einarsdóttir Stella Einarsdóttir Sveinbjörn Ásgrímsson 70 ára Árni O. Sigurðsson Halldóra F. Arnórsdóttir Jóhann Þorsteinsson 60 ára Bjarney Ragnh. Finnbogadóttir Bogdan Kaliszewski Guðbjörg Jónsdóttir Guðríður Gía Ólafsdóttir Kolfinna Hjálmarsdóttir Kristín S. Guðmundsdóttir Margrét Sigurðardóttir Ómar Óskarsson Sigurlaug Oddný Björnsdóttir Steinn Oddgeir Sigurjónsson Þorbjörg Guðnadóttir Blandon Þorsteinn S. Guðjónsson 50 ára Birkir Þór Guðmundsson Eggert Karvelsson Guðmundur Oddur Víðisson Guðrún Steinþórsdóttir Jón Jónsson Maria Josefina Diaz Kristinsson Ragnar Áki Ragnarsson Renata Bogusz Þórhallur Arnarson 40 ára Anna María Kristinsdóttir Edda Hrund Halldórsdóttir Friðrik Ingvi Helgason Harpa Edwald Koranan Nuanging Liusheng Shi Skúli Rúnar Jónsson 30 ára Andri Hlynur Bjarkason Daði Júlíusson Daði Steinn Björgvinsson Halldór Þór Svavarsson Karen Sesselja Mörk Mohammed Awal Abdallah Zakaria Valentin Jules Georges Dezalle Til hamingju með daginn 40 ára Guðný er Reykvík- ingur og er grunnskóla- kennari í Sæmundarskóla. Maki: Andri Stefánsson, f. 1972, jarðefnafræðingur. Börn: Hjörtur, f. 2003, Hlynur Örn, f. 2006, og Lilja, f. 2010. Foreldrar: Guðlaugur Þorgeirsson, f. 1940, fv. vörubílstjóri, og Hafdís Þórhallsdóttir, f. 1944, vann lengi á leikskóla og síðan á geðdeild Borgar- spítalans. Guðný Guðlaugsdóttir 30 ára Bergný býr í Kópavogi og er leikskóla- kennari. Maki: Guðni Tómasson, f. 1975, iðnaðarmaður. Börn: Dalrós Jóna, f. 2009, Diljá Mist, f. 2011, og Ísey Myrra, f. 2012. Stjúpdóttir Bergnýjar er Arndís Lilja, f. 2005. Foreldrar: Sigurður Ís- leifsson, f. 1962, sölustjóri hjá Bílabúð Benna, og Guðbjörg Pálsdóttir, f. 1959, starfsm. á leikskóla. Bergný Ösp Sigurðardóttir 40 ára Kristján ólst upp á Dalvík en býr á Akureyri og er stýrimaður á Ljósa- felli SU. Maki: Kolbrún Sjöfn Magnúsdóttir, f. 1974, sjúkraliði og er í kenn- aranámi. Börn: Magnea Björg, f. 2000, og Guðrún Ragna, f. 2004. Foreldrar: Gunnar Friðrik Sigursteinsson, f. 1952, og Björg Ragúels, f. 1955, reka Vélvirkja á Dalvík. Kristján Gísli Gunnarsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Kaupmannahafnarháskóla byrjaði ég fullorðinsstarfsferil minn sem má segja að snúist allur um samskipti og miðlun.“ Sigurður vann fyrst sem prófarkalesari á dagblaði, þá auglýs- ingafulltrúi, því næst blaðamaður og svo sem ritstjóri Vikunnar. „Eftir það var ég útgáfustjóri Almenna bókafélagsins, tók eitt sumar í að rövla í Reykjavík síðdegis og var svo seinna um árs skeið útgáfustjóri bókaforlagsins Iðunnar. Að því loknu flutti ég mig yfir á Sjónvarpið þar sem ég var ritstjóri dægurmálasjón- varpsþáttarins Dagsljóss og síðar dagskrárstjóri. Eftir það hóf ég vinnu við almannatengsl í tveimur fyrirtækjum sem ég tók þátt í að stofna og átti eftir atvikum að hluta eða öllu leyti. Ég vann meðal annars með tveimur sonum mínum á þessum tíma og hafði ánægju af. Þetta tímabil spannaði níu ár en eftir hrun má segja að ég hafi sogast hægt en örugglega inn í Fjármálaeft- irlitið þar sem ég vinn nú með mörgu góðu fólki.“ Trommuleikari í Spöðunum „Meðfram þessum störfum hef ég eins og hver annar Íslendingur tekið mér ýmislegt fyrir hendur. Ég tók góða rispu í djassi á þrítugsaldi með hljómsveitinni Nýja kompaníinu. Síðar gekk ég til liðs við Hina ást- sælu Spaða sem ég tromma með enn mér til mikillar ánægju. Við komum fram svona einu sinni til þrisvar á ári og gefum reglulega út diska.“ Sigurður hefur verið pistlahöf- undur í útvarpi og sjónvarpi. Hann skrifaði líka á árum áður dálítið af leiknu sjónvarpsefni, einkum fyrir börn og einkum með Sveinbirni I. Baldvinssyni. „Ég hef einnig setið í stjórn Félags íslenskra bókaútgef- enda, verið í slatta af norrænum nefndum og sat í stjórn Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins í fimm ár. Ég hef enn fremur verið þokkalega eftirsóttur í alls kyns út- hlutunar- og valnefndir á sviði bók- mennta, kvikmynda og leiklistar. Þá hef ég verið stjórnarmaður í Bók- menntahátíð í Reykjavík frá 1987 og formaður stjórnar frá 2007. Undanfarin þrjú ár hef ég skrifað leiklistargagnrýni í Morgunblaðið og síðustu tvo vetur ræddi ég um bækur í Kiljunni. Helstu áhugamál eru bók- menntir, leiklist, trommuleikur og hjólreiðar sem ég stunda mikið.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Valgerður Stefánsdóttir, f. 8.9. 1953, for- stöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra Foreldrar: Stefán Guðnason, f. 5.8.1911, d. 3.4.1988, forstjóri í Reykjavík, og Anna Þórarinsdóttir sjúkraþjálfari, f. 23.7. 1918. d. 24.6. 2006. Börn: Stefán Sigurðsson, f. 10.11. 1972, forstjóri í Reykjavík, maki: Ragna Sara Jónsdóttir; Valgeir Þórður Sigurðsson, f. 30.1. 1980, húsasmíðameistari í Hafnarfirði, maki: Brynja Björk Jónsdóttir; Guðni Sigurðsson, f. 20.12. 1982, verkefnastjóri í markaðsdeild Isavia, maki: Elfur Hildisif Hermannsdótt- ir; Hrefna Sigurðardóttir, 12.5. 1989, BS í iðnaðarverkfræði og hönn- unarnemi, maki: Brynjar Úlfarsson. Sigurður og Valgerður eiga sex barnabörn. Systkini: Halldór Valgeirsson, f. 1.12. 1937, d. 17.2. 2014, fyrrverandi endurskoðandi í Kópavogi; Elísabet Valgeirsdóttir, f. 29.9. 1940, blóma- skreytir í Hafnarfirði; Böðvar Val- geirsson, f. 6.2. 1942, fyrrverandi for- stjóri í Reykjavík; Þórey Valgeirsdóttir, f. 4.12. 1946, fyrrver- andi framkvæmdastjóri í Reykjavík; Ásta Dóra Valgeirsdóttir, f. 6.10. 1949, skrifstofumaður í Snæfellsbæ; Þuríður Valgeirsdóttir, f. 18.3. 1956, leikskólakennari í Hafnarfirði. Foreldrar: Valgeir Þ. Guðlaugs- son, f. 18.7. 1910, d. 26.12 1989, versl- unarmaður í Reykjavík, og Hrefna Sigurðardóttir, f. 2.6. 1916, d. 1.4. 1995, kjólsaumsmeistari og húsmóðir í Reykjavík. Úr frændgarði Sigurðar G. Valgeirssonar Sigurður G. Valgeirsson Sigríður Jónasdóttir húsmóðir í Drangshlíð Böðvar Böðvarsson bakari í Hafnarfirði Elísabet Böðvarsdóttir kaupmaður í Hafnarfirði Hrefna Sigurðardóttir kjólasaumsmeistari í Reykjavík Sigurður Sigurðsson íþróttafréttaritari Sigurður Sigurðsson kaupmaður í Reykjavík Hildur Sigurðardóttir húsmóðir í Reykjavík Guðni Guðmundsson rektor Menntaskólans í Rvík Sigríður Jafetsdóttir húsmóðir, f. í Reykjavík Sigurður Einarsson útvegsbóndi í Litla-Seli í Reykjavík Friðsemd Guðmundsdóttir húsmóðir Magnús Auðunsson sjómaður í Hafnarfirði Halldóra Magnúsdóttir húsmóðir í Hafnarfirði Guðmundur Magnússon skipstjóri í Hafnarfirði Guðmundur Í. Guðmundsson ráðherra Valgeir Þ. Guðlaugsson verslunarmaður í Reykjavík Guðlaugur Jónasson sjómaður í Hafnarfirði Margrét Bjarnadóttir húsmóðir, frá Stóra- Hálsi í Grafningi Jónas Hannesson bóndi í Magnúsfjósum í Kaldaðarnesi Hrund Scheving Thorsteinsson hefur varið doktorsritgerð sína: „Hjúkr- unarfræðingar og gagnreyndir starfs- hættir: Virkni og spáþættir“ frá Hjúkr- unarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Megintilgangur rannsóknarinnar var að lýsa hversu vel íslenskir hjúkr- unarfræðingar eru í stakk búnir til að veita hjúkrun sem byggist á gagn- reyndri þekkingu, og að bera kennsl á þætti sem spá fyrir um virkni hjúkr- unarfræðinga og viðhorf hvað varðar gagnreynda starfshætti (GSH). Með GSH má bæta gæði og árangur heil- brigðisþjónustu og auka öryggi sjúk- linga. Ritgerðin byggðist á 4 tengdum rannsóknum þar sem ólíkum aðferð- um og tölfræðiaðgerðum var beitt. Umræðan um og gagrýni á gagn- reynda starfshætti var skoðuð og greind í rannsókn I m.t.t. áhrifa á klín- ískt starf og hjúkrunarþekkingu. Í rannsókn II voru tvö viðurkennd GSH- mælitæki, sem notuð voru í könnunum III og IV, þýdd, staðfærð og próf- fræðilegt mat gert á öðru þeirra. Rannsókn III var lýsandi þversniðs- könnun, gerð á landsvísu, þar sem notað var slembiúrtak 998 íslenskra hjúkrunar- fræðinga; þátt tóku 540. Í rannsókn IV var safnað upplýsingum um GSH frá einsleitu úrtaki klínískra hjúkrunar- fræðinga og stjórnenda (N=343) á bráðadeildum Landspítala. Niðurstöður sýna að svigrúm er til umbóta hvað varðar GSH og jafnframt að innviði sem styðja við þá vanti á vinnustaði hjúkrunarfræðinga. Viðhorf til gagnreyndra starfshátta reyndust spá best fyrir um virkni hjúkr- unarfræðinga. Fram kom að samband milli spáþátta og þriggja lykilþrepa í GSH ferlinu er breytilegt eftir því hvaða þættir eiga í hlut, sem stað- festir margbreytileika GSH og að þrepin eru aðskilin. Niðurstöðurnar auðvelda þróun íhlutana til að efla GSH meðal hjúkrunarfræðinga og undirstrika mikilvægi þess að beita fjölbreyttum aðferðum við skoðun á flóknum viðfangsefnum. Doktor í hjúkrunarfræði  Hrund Sch. Thorsteinsson er fædd 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1977; BSc. prófi í hjúkrunarfræði frá Náms- braut í hjúkrunarfræði HÍ 1982 og MS prófi frá University of Wisconsin- Madison 1990. Hrund hefur starfað á ýmsum deildum Landspítala frá 1982, lengst af við stjórnun. Hún var árum saman í hlutastarfi sem lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Eiginmaður Hrundar er Gunnar Ingimundarson viðskipta- fræðingur og eiga þau fjögur börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.