Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 40

Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Stundum getur smá dirfska borgað sig en samt er sígandi lukka best. Fjöldi hug- mynda er að brjótast um í þér þótt sumar séu ekki sérlega hagnýtar. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft ekki að vera uppistandari til að vera í mikilli þörf fyrir nýtt efni til að vinna með. Farðu á listsýningar og njóttu þess að vera úti í náttúrunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gætir komist að hneykslis- eða leyndarmálum í dag. Líttu það jákvæðum augum og ræddu málin við vini þína. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Stundum skilur fólk ekkert í því að það stofnaði til sambands í upphafi, en það er engin tilviljun að þið eruð saman. Auður er þinn fæðingarréttur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert óvenju hlédræg/ur í dag þar sem þér finnst þú ekki hafa neitt fram að færa. Láttu faguryrði ekki blekkja þig, það er svarta letrið sem gildir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er engu líkara en að öll heimsins vandamál hellist inn á þitt borð. Rífðu þig lausa/n og gerðu það sem þú þarft til þess að ástandið geti lagast án þess þó að það særi aðra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er tilvalið að kenna börnum nýja hluti. Losaðu þig við óþarfa. Vertu opin/n fyr- ir nýju fólki því ókunnugir eru í raun vinir sem þú hefur ekki enn kynnst. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að láta fjölskyldumál til þín taka en þú þarft einnig að sinna þér. Eng- inn er friðhelgur og jákvæð gagnrýni getur verið mjög uppbyggileg. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að stinga við fótum og standa fast á þínu máli þótt að þér sé sótt úr öllum áttum. Reyndu að gefa eitthvað af þér á meðan. Sama hvað það er. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast það að ganga of langt í þeim efnum. Mistökin eru til þess að læra af þeim. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ef þú gengur ekki fram fyrir skjöldu og tekur af skarið, munu hlutirnir danka áfram uns allt er orðið um seinan. Farðu samt að öllu með gát því ekkert liggur á. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gættu þess að lenda ekki milli tveggja elda. En til að taka miklu framförum, verður þú að einbeita þér. Eyddu ekki orku í rifrildi, illindin líða hjá. Bjarni Stefán skrifar á Leirinn ísíðustu viku: Mér heyrist ég heyra í gesti með helling af útrunnu nesti. Hann kemur og fer, já kemur og fer, á fjögurra ára fresti Kristján Eiríksson gerir þá at- hugasemd að „gestirnir séu fleiri en einn samanber þessar gömlu vís- ur þar sem gestir þessir eru kynntir undir bragarhætti þeim er nefndur hefur verið sauðsháttur og ein- kennist gjarnan af einhvers konar valkvíða: Hjá Vinstri grænum bið um brauð, bregst ei listugt smjaður. „Svona er að vanta veraldarauð og vera drykkjumaður.“ Þótt Framsókn missi fé og hold finn ég mitt skjólið þarna „meðan gróa grös í mold og glóir nokkur stjarna“. Og Íhaldið kýs ég, elskan mín, ó, hve það fagurt syngur: „hani, krummi, hundur, svín, hestur, mús, tittlingur.“ Styð ég þig, sæla Samfylking, síst er það út í bláinn, „þegar allt er komið í kring kyssir torfa náinn“. Frjálslyndra ég fylli hjörð, frækn í snörpum brýnum. „Því er alltaf einhver hörð arða í skónum mínum?“ Framtíð björt mót sumri og sól seiðir líkt og guðinn Bragi. „Engir hemlar ónýt hjól, allt í þessu fína lagi.“ Pírata er geðið grand, gott hjá þeim að dreyma. „Nú er horfið Norðurland, nú á ég hvergi heima.“ Fornólfur orti þessa manvísu í júní 1908: Æskumikil er hún, af öðrum fegurð ber hún, heldur í fasi frjáls; lokkurinn langr og dökkur liðar sig og hrökkur kringum hvítan háls. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af gestakomu, sauðs- hætti og Fornólfi Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ LEIGJA EKKI ÞESSA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bíða eftir því að sjá bílljósin hans. PÚÐLUHUNDUR PÚÐLUFUNDUR ÞEGAR ÉG VAR YNGRI HÉLT ÉG AÐ HEIMURINN SNERIST Í KRINGUM MIG! SVO GIFTIST ÉG ... ... OG KOMST AÐ ÞVÍ AÐ HANN SNÝST Í KRINGUM KONUNA MÍNA. PASSIÐ YKKUR Á HUNDINUM! SIÐ R Á NUM! PASSIÐ YKKUR Á HUNDINUM! TAKK FYRIR TILLITS- SEMINA. Karl Bretaprins líkti Pútín við Hit-ler,“ var ein af fréttum gærdags- ins, sem kom svo sem ekki á óvart, enda prinsinn af Wales duglegur við að koma sér í vandræði með orðum sínum, nokkuð sem hann hefur, að því er virðist, erft frá föður sínum. Víkverji hváði þó við, því að karlinn var nú búinn að yngjast heilmikið upp á meðfylgjandi ljósmynd, sem var þegar nánar var að gáð af yngri syni hans Harry. „Jæja, það var nú gott að Kalli prins var ekki orðinn rauðhærður allt í einu,“ hugsaði Vík- verji með sér, en skildi lítið í því hvernig hægt hefði verið að rugla þeim feðgum saman. x x x Ekki tók þó betra við síðar um dag-inn, því að þá bárust af því fregn- ir að breskir þingmenn hefðu stigið fram prinsi sínum til varnar, svona eins og þeirra skylda býður, og sagt hann vera í fullum rétti við að líkja gjörðum forseta Rússlands við einn óvinsælasta stjórnmálamann 20. ald- ar. Að þessu sinni var það þó Vil- hjálmur prins, sem átti að hafa látið þetta flakka. Myndin með fréttinni var þó af Karli föður hans, en ekki Vilhjálmi. Enda þeir nauðalíkir, eða hvað? x x x Pútín greyið getur því ómögulegavitað hvað var sagt og hver sagði það, svona fyrst svona óhönduglega tókst til við myndamálin. En hitt er svo annað mál að ummæli Karls (eða Vilhjálms) sýna það að bóndinn í Kreml ætti nú líklegast að vanda sín næstu skref, ætli hann sér ekki að falla í hóp óvinsæla fólksins, svona eins og Hitler, Stalín og Maó. x x x Líklega þarf Pútín þó að gæta sínmest á því að verða ekki „hjóna- djöfull“ í vinsælli popphljómsveit. Þá á hann það á hættu að vera talinn í hóp með Yoko Ono, en mesta furða er hversu lífseigt hatur sumra á þeirri ágætu konu er. Maður hennar sagði þó á einum tíma að hljómsveit sín væri „vinsælli en Jesús,“ og uppskar nokkrar óvinsældir fyrir. Það virðist hins vegar ekki vera vinsælt að vera vinsæll í heimi 21. aldarinnar. víkverji@mbl.is Víkverji Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. (Sálmarnir 16:11) Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.