Morgunblaðið - 22.05.2014, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Listahátíð í Reykjavík, sú 28. í röðinni, hefst
við Reykjavíkurtjörn í dag kl. 17.30 með
flutningi á 15 mínútna löngu tónverki
Högna Egilssonar, Turiya, sem hann samdi
sérstaklega fyrir hátíðina. Verkið flytur
Högni með Bjöllukór Tónstofu Valgerðar
Jónsdóttur og með klukkum Hallgríms-
kirkju og Landakotskirkju.
Högni sækir titil verksins í austræna
heimspeki og segir í tilkynningu að Turiya
standi fyrir fjórða og æðsta tilverustigið
sem liggi handan vöku og drauma og
draumlauss svefns. Turiya sé hið fullkomna
vitundarstig sem feli í sér kjarna tilver-
unnar. Grunntónninn sé sleginn við tjörnina,
djúpið, og söngurinn rísi úr vatninu á meðan
tröllin tvö á Skólavörðuholti og Landakoti
kallist á. „Söngurinn ómar yfir borgina, inn
í Esjuna og ofan í Eilífsdal sem liggur að
baki henni. Verkið endurspeglar lífsreisu
mannverunnar, þar sem Turiya er kjarn-
inn,“ segir Högni um verkið í tilkynningu.
Snortinn af hljómi bjöllukórs
Spurður að því hvers vegna hann hafi
ákveðið að fara þessa óvenjulegu leið, að
flytja verkið með kirkjuklukkum og bjöllu-
kór, segist Högni hafa orðið mjög snortinn
af plötu kórsins, Hljómfang, sem kom út
fyrir tveimur árum. „Mér fannst tónninn og
hljómurinn í kórnum vera svo sérstakur og
fallegur og þegar ég hóf að vinna að þessu
verki vissi ég að mig langaði að vinna með
þeim,“ segir Högni. Hljómurinn passi vel
við þann huglæga tón sem manneskjan sé
alltaf að reyna að fanga og rannsaka í gegn-
um helgisiði sína og trúariðkun, leit sem
hafi verið honum hugleikin síðustu misseri.
„Ég sá að þarna voru möguleikar með þess-
ar tvær kirkjur sem eru sterkar og þessar
tvær hæðir sem eru okkar höfuðáttir, bæði
huglægt og hvað staðsetningu varðar, að
skapa ákveðið samhengi sem hefur aldrei
verið gert áður.“
– Þú hefur væntanlega aldrei samið fyrir
svona hljóðfæri áður, voru einhverjar hindr-
anir fólgnar í því?
„Nei, nei, í rauninni ekki. Þetta er verk
sem verður til í gegnum þær auðlindir sem
þú skapar og músíkin er takmörkuð við það
sem þessar kirkjur geta spilað og bjöllukór-
inn. Þetta er ekki beint það sem skiptir
máli, mig langaði til að setja þetta í þessa
samsetningu, hún kallaði á mig,“ segir
Högni.
Snúið samtal
Spurður að því hvort verkið hafi verið æft
við sömu aðstæður og það verður flutt í dag
segir Högni svo ekki vera. „Það er verið að
hlaða upp í ákveðinn atburð, ákveðið augna-
blik sem er verið að handsmíða,“ segir
hann. „Það er varla hægt að forskrifa en
það er reynt eftir bestu getu.“
Hvað sjónrænan hluta verksins varðar,
hvernig hann verði, segir Högni að ákveðin
táknræna komi fram í því líkamlega í gjörn-
ingnum. „Í performanslist má ekki tala um
performansinn, það deyðir listina að tala um
hana,“ segir Högni en bætir við að það sé
lykilatriði að listin eigi sér stað í raunveru-
leikanum og að talað sé um hana. „Þetta er
svolítið snúið samtal,“ segir Högni kíminn
og á þar væntanlega við samtalið um listina
en ekki samtal hans við blaðamann.
Hið fullkomna vitundarstig mannsins
Högni Egilsson flytur nýtt verk við opnun
Listahátíðar í Reykjavík Leikið af bjöllukór og
á klukkur Hallgrímskirkju og Landakotskirkju
Hugmyndaríkur Högni Egilsson, tónlistarmaður og tónskáld, fer ekki troðnar slóðir í list-
sköpun sinni og frumflytur í dag verk sem hann samdi fyrir bjöllukór og kirkjuklukkur.
Listahátíð í Reykjavík 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Eldur geisar undir“ er yfirskrift
fyrstu tónleikanna af fernum í tón-
leikröðinni Rýmin og skáldin sem
fram fer á Listahátíð í Reykjavík
dagana 25.-30. maí. Á fyrstu tónleik-
unum sem fram fara í Hannesarholti
laugardaginn 25. maí kl. 16 flytja
Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjóns-
dóttir sópran verk eftir Ígor Stra-
vinskíj, Leif Þórarinsson og Þórð
Magnússon. Tríó Sírajón var stofn-
að árið 2010 af þremur afkomendum
síra Jóns Þorsteinssonar í Reykja-
hlíð, þeim Laufeyju Sigurðardóttur
fiðluleikara, Einari Jóhannessyni
klarínettuleikara og Önnu Áslaugu
Ragnarsdóttur píanóleikara.
Verkin sem þau leika eru „Þrjú
lög fyrir einleiksklarínett“ og „Saga
dátans“ eftir Stravinskíj, „Áfangar“
fyrir fiðlu, klarínett og píanó eftir
Leif Þórarinsson auk þess sem
heimsfrumflutt verður tónverkið
„Gunnarshólmi“ fyrir sópran, fiðlu,
klarínett og píanó eftir Þórð Magn-
ússon við ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar sem tekur um 20 mínútur í
flutningi.
Áskorun að semja við Jónas
„Tilurð verksins er tvíþætt.
Mamma mín skaut þeirri hugmynd
að mér að ég ætti að skrifa tónlist
við „Gunnarshólma“ og ég var kom-
inn langleiðina með það þegar Einar
kom til mín og falaðist eftir verki
fyrir klarínett, fiðlu og píanó. Eftir
smá umhugsun komst ég að þeirri
niðurstöðu að þessi hljóðfæra-
samsetning hentaði upphaflegu hug-
myndinni ágætlega og nefndi við
Einar hvort ég mætti ekki bæta
söngrödd við, honum leist vel á það
og stakk þá upp á Ingibjörgu,“ segir
Þórður í samtali við Morgunblaðið
þegar hann er inntur eftir tilurð tón-
list sinnar við „Gunnarshólma“.
Aðspurður segir Þórður heilmikla
áskorun felast í því að semja tónlist
við texta þjóðskáldsins. „Þetta er
engin hefðbundin ferskeytla,“ segir
Þórður og bendir á að Jónas hafi í
kvæði sínu ort undir bragarhætti
sem settur var saman úr tveimur
fornum suður-evrópskum formum
sem á tímum skáldsins voru ný í ís-
lenskri ljóðlist, þ.e. tersínunni eða
þríhendunni og oktövunni eða átt-
hendunni. „Bæði bragarform voru
algeng á Ítalíu á miðöldum, en
Dante Alighieri gerði tersínuna
fræga m.a. í Gleðileiknum guð-
dómlega,“ segir Þórður.
Vísar í rímnalög
Segist hann sökum þessa hafa
ákveðið að vinna tónverk sitt ekki út
frá dæmigerðu sönglagaformi held-
ur semja tónverk með hægt líðandi
uppbyggingu sem fylgdi ljóðlín-
unum að fullu. „Verkið er í tveimur
köflum. Fyrri kaflinn er langur og
fremur hægur, í nokkurs konar til-
brigðaformi. Seinni kaflinn er aftur
á móti stuttur, hraður og taktboð-
arnir og hrynurinn fylgja áhersl-
unum í ljóðlínunum til hins ýtrasta.
Þannig má segja að ég hrynsetji lag-
línuna á líkan hátt og kvæðamaður,“
segir Þórður og bendir á að hann
vísi í rímnalög í verki sínu. „Í fyrri
kaflanum er vísunin það falin að ég
held að enginn muni kveikja á því,
en í seinna kaflanum ljóstra ég því
betur upp hvaða rímnalag ég hef í
huga,“ segir Þórður leyndardóms-
fullt.
Spurður hvort hann geri miklar
tæknilegar kröfur til þeirra tónlist-
armanna sem flytja verk hans svar-
ar Þórður því játandi. „Ég geri alltaf
kröfur, en þetta er allt syngjanlegt
og spilanlegt. Það er hins vegar gott
að eiga góða að og geta sett verk sín
í hendurnar á fólki sem maður getur
treyst. Þessar flóknu laglínur mínar
steinliggja hjá Ingibjörgu.“
„Ég geri alltaf kröfur“
Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir frumflytja tónverkið Gunnarshólma eftir Þórð Magnússon
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Græðandi og
slakandi
Ég var með slæmt sár í fimm mánuði eftir skurðaðgerð og búin að reyna
allskonar krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu gerði kraftaverk
og sárið greri á einni viku. Svo er það líka gott á sprungur, útbrot og
þurrkbletti. Slakandi olían er góð fyrir húðina og himnesk í baðið!
– Lena Lenharðsdóttir
www.annarosa.is
Sáramyrslið græðir sár og
sprungur og hefur líka gefist
afar vel við kláða, frunsum,
sveppasýkingum og bleiuútbrotum.
Slakandi olían
hefur róandi áhrif
og er frábær nudd-