Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 44

Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014 Raflost er heiti framsækinnar há- tíðar fyrir nýja list sem haldin verð- ur næstu daga í Reykjavík, þar sem rafmagn og tækni eru notuð við sköpun eða flutning verkanna. Há- tíðin hefst í kvöld með tónleikum norska hópsins AJO ensemble í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskóla Íslands. Hópurinn mun flytja verk- in „Hljóðs bið ek“ eftir Hilmar Þórðarson tónskáld og Harald Karlsson vídeólistamann og „Kon- takte“ fyrir píanó, slagverk og seg- ulband eftir Karlheinz Stockhausen. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem „Kontakte“ er flutt á Íslandi. Það var frumflutt árið 1960 og er al- mennt talið hafa brotið blað í tón- listarsögunni, en það tengir rafhljóð og hljóðfærahljóm saman á ein- stakan hátt. Opin fyrir skilgreiningum Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar segir að viðburðirnir tengi til dæmis saman tónlist, dans, myndlist og raflist, og þá er listinn alls ekki tæmandi. Hátækni, tölvur og forritun verða að snertifleti fyrir listamenn með ólíkan bakgrunn. „Við erum mjög opin fyrir skilgrein- ingum á því hvað þetta getur verið. Samhliða hátíðinni höldum við nám- skeið í Listaháskólanum, þar sem nemendur í öllum greinum koma og vinna saman. Þá geta allir fengið að kíkja út fyrir sinn venjulega ramma,“ segir Ríkharður H. Frið- riksson, einn skipuleggjendanna. Hann segir margt að sjá á þessu sviði. Allt sem unnið er með raf- eindatækni í listum sé undir hatt- inum. „Bara að það sé raf-eitthvað.“ Þegar spurt er um hvers vegna raflist sé áhugaverð, svarar Rík- harður að menn hafi eflaust ólík svör við því. „Sjálfur kem ég inn í þetta gegnum raftónlist, hef mikinn áhuga á hljómi en þeir sem eru í raf- myndlist eru í öðrum pælingum. En þetta snýst um áhuga á að nota tækni, og nútímatækni byggist nán- ast öll á rafmagni. Við viljum nota tækni til að skapa; nýjar listir fyrir nýja tíma.“ Hann segist vonast til að fólk skundi á atburðina, og þá ekki síst ungt fólk. „Þess er framtíðin, og við reynum að vísa veginn þangað.“ Hátíðin er haldin árlega og er áhersla lögð á að rækta grasrót ís- lenskrar raflistar með því að kynna nýjustu strauma og hugmyndir og þá, eins og Ríkharður segir, sér- staklega upprennandi kynslóð raf- listamanna. Markmiðið er að búa til vettvang tilraunakenndrar raflistar og stuðla að samræðu yngri og eldri, erlendra og innlendra lista- manna. Dagskrá Raflosts Í kvöld, fimmtudag kl. 20, eru tónleikar AJO ensemble í Sölvhóli, tónleikasal LHÍ. Á föstudagskvöld klukkan 20 verður afrakstur vinnu- stofu nemenda í Listaháskólanum sýndur í húsnæði skólans í Laug- arnesi og klukkan 22 er dagskráin „Raflöstur“ með flytjendunum dj. flugvél og geimskip, portal2extacy og Páli Ivan frá Eiðum og ógeðs- legu hljómsveitinni hans. Á laugardag klukkan 15 verður „Pure Data samkoma“ hjá Siglinga- félagi Reykjavíkur, Ingólfsgarði, og um kvöldið klukkan 20 verða „Stór- leikar“ í Sölvhóli, með blandaðri dagskrá, verkum úr ýmsum áttum sem notast við alla mögulega miðla. efi@mbl.is „Nýjar listir fyrir nýja tíma“ Fjölbreytilegt Eygló Harðardóttir myndlistarkona var einn gesta síðustu Raflosts-hátíðar.  Raflosts-hátíðin hefst í Reykjavík  Allskyns raflist til skoðunar  „Þetta snýst um áhuga á að nota tækni, og nútímatækni byggist nánast öll á rafmagni“ Ríkharður H. Friðriksson Hilmar Þórðarson Sænski fatahönnuðurinn Ann-Sofie Back hlýtur sænsku hönn- unarverðlaunin Torsten och Wanja Söderberg í ár og hlýtur að launum eina milljón sænskra króna. Back er fyrsti sænski fatahönnuðurinn sem hlýtur verðlaunin sem eru ein þau virtustu í heimi. Grafíski hönn- uðurinn Hjalti Karlsson hlaut þau í fyrra. Back á að baki hönnunarnám í Beckmans hönnunarháskólanum í Stokkhólmi og Central St. Martins lista- og hönnunarháskólanum í Lundúnum. Hún hefur frá árinu 2001 hannað föt í eigin nafni og ár- ið 2005 hleypti hún af stokkunum fatamerkinu BACK. Frá árinu 2009 hefur hún verið hönnunarstjóri BACK og Cheap Monday. Ljósmynd/Anders Edström Verðlaunahönnun Fyrirsæta í kjól úr vorlínu Ann-Sofie Back fyrir árið 2014. Back hlaut Söder- berg-verðlaunin Helena Eyjólfsdóttir heldur tón- leika ásamt hljómsveit í Súlnasal Hótels Sögu á laugardagskvöldið kl. 21. Að tónleikum loknum verður slegið upp dansleik og dansað fram til kl. tvö eftir miðnætti. Um er að ræða sömu dagskrá og Helena bauð upp á í Súlnasalnum sl. haust í tengslum við útgáfu endurminn- inga sinna. „Það var óskaplega skemmtilegt og okkur fannst við verða að gera þetta aftur. Ég fer þarna yfir feril minn og kem fólki svolítið á óvart,“ segir Helena. Einvalalið hljóðfæraleikara kem- ur fram með Helenu og að sjálf- sögðu tekur Þorvaldur Halldórsson lagið með henni. „Ég held aldrei tónleika án hans,“ segir hún hlæj- andi. „Raddirnar okkar eiga alltaf jafn vel saman og svo er þetta bara svo góður vinskapur.“ Lög sem gaman er að syngja Helena segir efnisskrána ekki endilega samanstanda af lögum sem heyrst hafa mest með þeim Þorvaldi gegnum tíðina, heldur lög- um sem þeim þyki gaman að syngja á dansleikjum. Allir ættu þó að kannast við þau. „Þegar það er gaman hjá hljómsveitinni skilar það sér alltaf út í salinn.“ Tónleikarnir standa í um tvær klukkustundir. Aðspurð segir Hel- ena það vissulega mál að renna beint í dansleik, „en við leggjum það með glöðu geði á okkur“. Hún segir fólk alltaf hafa jafn- gaman af því að dansa, ekki síst við þessi gömlu góðu dægurlög. „Fólk tekur þessu fegins hendi enda ekki á hverjum degi sem það kemst á dansleik. Hvað þá á svona huggu- legum stað eins og Súlnasalnum.“ Sami hópur var á ferð á Græna hattinum á Akureyri um síðustu helgi og segir Helena þá tónleika hafa verið ægilega vel heppnaða. „Það var fullt hús og fólkið mjög ánægt. Það er líka svo góður hljóm- burður á Græna hattinum sem ger- ir allt miklu betra.“ Helena hitar upp fyrir tónleikana með því að syngja í beinni útsend- ingu hjá Óla Palla í Stúdíó 12 á Rás 2 á morgun kl. 14.30. „Óli Palli bað sérstaklega um „Hvíta máva“. Vill heyra hvernig ég syng það lag í dag en ég var bara sextán ára þegar ég söng það inn á plötu.“ Spurð hvort röddin hafi mikið breyst svarar Helena: „Ótrúlega lít- ið. Ég er afskaplega þakklát fyrir að geta ennþá sungið.“ orri@mbl.is Kem fólki svolítið á óvart  Helena Eyjólfs í Súlnasalnum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímssson Þakklát Helena Eyjólfsdóttir lætur sér ekki nægja að halda tónleika í Súlnasalnum á laugardaginn, hún slær líka upp dansleik fram á rauða nótt. Soffía Björg Óð- insdóttir heldur útskrift- artónleika í kvöld kl. 20 í salnum Kaldalóni í Hörpu og lýkur þar með BA-námi í tónsmíðum frá tónlistardeild Listaháskóla Ís- lands. Flutt verð- ur verkið Orfia fyrir rytmasveit, söngvara, strengjakvartett, tréblást- urskvintett og hörpu. Orfia er sam- vinnuverkefni Soffíu og Arnars Eld- járns en hvort tónskáld fékk eina hlið á vínylplötu fyrir tónverk og lagasmíðar. Útskriftartónleikarnir eru því einnig útgáfutónleikar. Útskriftar- og útgáfutónleikar Soffía Björg Óðinsdóttir –– Meira fyrir lesendur : Morgunblaðið gefur út glæsilegt sumarblað um Tísku og förðun föstudaginn 6. júní 2014 Tíska & förðun Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 2. júní. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna sumarið 2014 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.