Morgunblaðið - 22.05.2014, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndaleikstjórinn Guðmundur
Arnar Guðmundsson hlaut í fyrra
dómnefndarverðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes fyrir stuttmynd-
ina Hvalfjörður ásamt framleiðanda
myndarinnar, Antoni Mána Svans-
syni. Guðmundur og Anton eru
snúnir aftur á hátíðina í Cannes, að
þessu sinni til þess að kynna fyrstu
kvikmynd sína í fullri lengd, Hjarta-
stein, sem er á handritsstigi og hef-
ur hlotið vilyrði um framleiðslustyrk
frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Kynningin er hluti af Cannes
Residency, fjögurra og hálfs mán-
aðar langri leikstjórasmiðju sem
Guðmundur var valinn til þátttöku í
og fer að mestu fram í París. Hann
segir hugmyndina með smiðjunni þá
að leikstjórar fái næði til að þróa
verkefni sín, vinna í handritum og
þeir séu auk þess kynntir fyrir fjár-
festum, söluaðilum og öðrum leik-
stjórum í Frakklandi. Guðmundur
segir handritið að Hjartasteini langt
á veg komið og að smiðjan sé rétt
rúmlega hálfnuð.
„Við erum komnir með u.þ.b.
helminginn af fjármagninu og svo er
hitt í ferli og lítur mjög vel út. Við
erum búnir að finna fyrir miklum
áhuga, erum hugsanlega að fara að
meðframleiða hana með Danmörku
og erum að skoða Þýskaland og
Frakkland sem þriðja landið,“ segir
Guðmundur um Hjartastein. Þeir
Anton hafi átt marga góða fundi í
Cannes. „Við höfum fundið fyrir
miklum áhuga en höfum ekki lokað
neinum samningum hérna. Við erum
búnir að byggja upp mjög gott
tengslanet í gegnum þessa leik-
stjórasmiðju og svo er Anton líka í
vinnusmiðju fyrir framleiðendur.
Frá því við vorum í Cannes í fyrra
höfum við verið að byggja upp
tengslanet og möguleika á fjár-
mögnun og svo kemur í ljós á þessu
ári hvaða lönd verða með.“
Dramatísk ár
Hjartasteinn fjallar um þrettán
ára pilt, Þór, sem er að uppgötva
kynhvötina og reyna að yfirstíga
ótta sinn við hitt kynið. „Hann býr í
litlu sjávarþorpi, er líkamlega sein-
þroska og líður svolítið fyrir það.
Hann er skotinn í Betu, sætri stelpu
í þorpinu. Kristján, besti vinur hans,
verndar hann þegar hann kemur sér
í vandræði og þegar Kristján sér
hvað Þór á erfitt með þessa stelpu
fer hann að hjálpa honum að reyna
að ná í hana. Í gegnum það ferli átt-
ar Kristján sig á því að hann ber
sterkar tilfinningar til Þórs og það
flækir samband þeirra,“ segir Guð-
mundur.
– Nú voru börn líka aðalpersónur
Hvalfjarðar. Er þetta að verða
þema hjá þér, þroskasögur ung-
menna?
Guðmundur hlær og segist vera
með nokkrar slíkar sögur í kollinum.
„Mér fannst svo auðvelt að tengja
við barnæskuna þegar ég fór að
skrifa. Nú eru að koma fleiri hug-
myndir sem tengjast líka full-
orðnum þannig að ég sé fram á að
gera líka myndir um eldra fólk en
eins og er þá eiga þessi ár hug minn
allan enda eru þau mjög dramatísk.“
Spurður út í framleiðslukostn-
aðinn við Hjartastein segist Guð-
mundur ekki þora að segja til um
hann en líklega verði hann um 200
milljónir króna og að um helmingur
þeirrar upphæðar muni koma frá
erlendum aðilum. Ef allt gengur að
óskum hefjast tökur á myndinni
næsta sumar, væntanlega á Vest-
fjörðum og segist Guðmundur vona
að myndin verði fullkláruð fyrri
hluta árs 2016.
„Höfum fundið fyrir miklum áhuga“
Guðmundur Arnar Guðmundsson vinnur að fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd, Hjartasteini, í
leikstjórasmiðju í Frakklandi Kynnir myndina með framleiðanda á kvikmyndahátíðinni í Cannes
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Tvíeyki Guðmundur Arnar (t.h.) og Anton í sumarblíðunni í Cannes í gær. Þeir eru þar staddir til að kynna fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd, Hjartastein.
Bandaríski tónlistarmaðurinn Just-
in Timberlake hlaut sjö verðlaun á
Billboard tónlistarverðlaunahátíð-
inni sem fram fór 18. maí og þá m.a.
sem besti tónlistmaðurinn, besti
R&B tónlistarmaðurinn og fyrir
bestu R&B-plötuna, The 20/20 Ex-
perience. Timberlake mun halda
umfangsmikla tónleika í Kórnum í
Kópavogi, 24. ágúst nk., ásamt
hljómsveit, dönsurum og bakradda-
söngvurum.
Timberlake sópaði
að sér verðlaunum
Ljósmynd/Frank Micelotta
12
12
12
★ ★ ★ ★ ★
EMPIRE
9,3 - IMDB
93% - Rottentomatoes.com
STANSLAUS SPENNA OG BRJÁLAÐ SKEMMTANAGILDI.
LANGBESTA X-MYNDIN!
T.V. , biovefurinn og s&h
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
X-MEN 3D Sýnd kl. 5:20 - 8- 10:40(P)
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 5:20 - 8 - 10:40
BAD NEIGHBOURS Sýnd kl. 8 - 10:10
THE OTHER WOMAN Sýnd kl. 5:40
„Meinfyndin og heldur húmornum alla leið“
T.V. - Bíóvefurinn
★★★
14
„Besta íslenska kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
GODZILLA KL.3D:5:20-8-10:402D:6-9
GODZILLAVIP2D KL.5:20-8-10:40
WALKOFSHAME KL.5:50-8-10:10
BADNEIGHBOURS KL.5:50-8-10:10
DIVERGENT KL.5:15
TRANSCENDENCE KL.8
CAPTAINAMERICA22D KL.10:40
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST3DKL.5:10-8-10:50
GODZILLA2D KL.5:20-8-10:40
WALKOFSHAME KL.5:50-8
OLDBOY KL.10:10
X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST3DKL.5:15-8-10:45
WALKOFSHAMEKL.5:50-8-10:10
GODZILLA KL.3D:8-10:40 2D: 6:50-9:30
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
LOS ANGELES TIMES
CHICAGO SUN TIMES
THE
BATTLE FOR
THESTREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
AKUREYRI
GODZILLA3D KL.5:20-8-10:30
WALKOFSHAME KL.5:50-8-10:10
KEFLAVÍK
GODZILLA3D KL.8-10:40
VONARSTRÆTI KL.8-10:40
VINSÆLASTA MYNDIN
Í HEIMINUM Í DAG
CHICAGO TRIBUNE
ROGEREBERT.COM
FRÁBÆR GAMANMYND
MEÐ ELIZABETH BANKS
FILM.COM
T.V., BÍÓVEFURINN OG S&H
STANSLAUS SPENNA OG BRJÁLAÐ SKEMMTANAGILDI.
LANGBESTA X-MYNDIN!