Morgunblaðið - 22.05.2014, Page 48
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 142. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Máttu hvorki mála sig né fara í sund
2. Vann milljarð í Víkingalottóinu
3. Ræða hvort Halldór stígi til hliðar
4. Ákærður vegna andláts sjúklings
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppsetning Vesturports á ævintýr-
inu um Hróa hött, The Heart of Robin
Hood, hlaut 19. maí sl. tvenn leiklist-
arverðlaun í Boston kennd við leik-
listargagnrýnandann Elliot Norton
sem lést árið 2003. Gísli Örn Garð-
arsson fékk verðlaun fyrir fram-
úrskarandi leikstjórn og sýningin
hlaut einnig verðlaun fyrir sviðs-
hönnun en það var Börkur Jónsson
sem hannaði leikmyndina. Verkið var
sýnt í American Repertory Theater í
Cambridge í Bandaríkjunum frá 11.
desember í fyrra til 19. janúar á
þessu ári. „Þetta er mjög flott við-
urkenning á því sem við erum að gera
og heldur áfram að opna dyr fyrir
okkur í Ameríku,“ sagði Gísli Örn í
samtali við mbl.is í gær. Áætlað er að
The Heart of Robin Hood verði sýnt
bæði í New York og Toronto. Fleiri Ís-
lendingar koma að sýningunni auk
Gísla og Barkar, m.a. Selma Björns-
dóttir sem er aðstoðarleikstjóri,
Högni Egilsson sem samdi tónlistina
og ljósahönnuðurinn Björn Helgason.
Hjarta Hróa hattar
hlaut tvenn verðlaun
Eins og greint hefur verið frá á
mbl.is fóru tökur á Star Wars VII fram
hér á landi í lok apríl. Nú greinir vef-
urinn Bleeding Cool frá því að loðni
risinn Chewbacca, þ.e. Loðinn, komi
við sögu í þeim atriðum sem tekin
voru upp á Íslandi. Loðinn mun varla
hafa sótt landið heim þar sem tök-
urnar voru án leikara, eft-
ir því sem næst verður
komist. Loðni verður
því líklega skeytt inn
í myndskeiðin frá Ís-
landi. Engu að síður
góðar fréttir fyrir
íslenska aðdá-
endur Loðins.
Loðinn á Íslandi
Á föstudag og laugardag Suðlæg átt 5-10 vestanlands, skýjað og
rigning með köflum, en mun hægari austantil og víða léttskýjað
um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 12 stig, en hlýnar norðanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-8 m/s og skýjað að mestu
sunnan- og suðvestantil, en bjartviðri austantil. Hiti 5 til 13 stig,
hlýjast norðanlands.
VEÐUR
„Þetta var nokkuð öruggt
hjá mér að þessu sinni,“
svarar Ingibjörg Erla Grét-
arsdóttir sem varð Norð-
urlandameistari í taek-
vondo í fjórða sinn á
dögunum. Íslensku kepp-
endurnir unnu til 10 gull-
verðlauna og 11 silf-
urverðlauna í bardagahluta
mótsins. Þá unnu íslensku
keppendurnir gull-
verðlaun í formum í
fyrsta sinn. »2
Ingibjörg meistari
í fjórða sinn
„Ég er satt best að
segja ekki búin að
meðtaka þetta,“
sagði Fanney
Hauksdóttir úr
Gróttu við Morgun-
blaðið en hún gerði
sér lítið fyrir og
varð heims-
meistari ung-
linga í bekk-
pressu á
heimsmeist-
aramótinu í
bekkpressu
í Danmörku í
gær. »4
Ég er ekki búin að
meðtaka þetta
„Ég lít á þetta sem mjög ögrandi
verkefni. Lið Fram er ungt og efni-
legt. Ég er búinn að vera með eldri
leikmenn og þetta er því ný áskorun
fyrir mig,“ sagði Stefán Arnarson við
Morgunblaðið eftir að hafa ritað und-
ir þriggja ára samning við Fram í gær
um að þjálfa kvennalið félagsins í
handknattleik. Stefán gerði Val að Ís-
landsmeistara um helgina. »1
Stefán spenntur fyrir að
þjálfa yngri leikmenn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Yrkisefni barnanna í Barnaskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ í ljóðum
þeirra um vináttu og kærleika varð
að veruleika þegar þau gáfu þau út í
bók sem þau seldu og létu ágóðann
renna til stúlknaheimilisins Malaika
í Dar es Salaam í
Tansaníu.
Margrét Pála
Ólafsdóttir, stofn-
andi og einn eig-
enda Hjallastefn-
unnar, stofnaði
heimilið þar sem
nú búa 13 stúlkur
á aldrinum 4 til
12 ára. Heimilið
fer með forræði
þeirra og mark-
miðið er að þær fái tækifæri til að
búa þar við góðar aðstæður, fái
menntun og tækifæri til að búa við
lýðræði og kvenfrelsi. Langtíma-
markmið Malaika-heimilisins er að
mennta þessar ungu stúlkur til já-
kvæðra áhrifa í heimalandi sínu.
Malaika þýðir engill eða englar og
er heiti lags sem oft er sungið við
ýmis tækifæri í Barnaskóla Hjalla-
stefnunnar. Heimilið er rekið með
gjafafé og fjárhagslegum stuðningi
Foreldrafélags Malaika og stendur
öllum til boða að styrkja heimilið.
Mismunandi aðstæður barna
Rætt var um aðstæður stúlknanna
í svokallaðri vinalotu í skólanum ný-
verið og í framhaldinu voru börnin
áfjáð í að láta gott af sér leiða, að
sögn Þorgerðar Önnu Arnardóttur,
skólastjóra Barnaskóla Hjallastefn-
unnar í Garðabæ og eins stofnfélaga
Foreldrafélags Malaika.
„Við ræddum m.a. um skort,
nauðsynjar og ofgnótt. Börn eiga oft
erfitt með að átta sig á því hvað að-
stæður barna eru mismunandi; að ís-
lensk börn búa við aðstæður sem
víða myndu kallast lúxus,“ segir
Þorgerður Anna. Hún segir mörg
eldri barnanna hafa velt vöngum yfir
því hvers vegna heimilið sé bara fyr-
ir stúlkur. „Við útskýrum þá að
drengirnir séu settir í nám og þeir
fái fleiri tækifæri til að vinna. Stúlk-
urnar fá miklu færri tækifæri.“
Auk útgáfu ljóðabókarinnar út-
bjuggu börnin þrívíddarlistaverk
sem táknuðu efni ljóðanna og voru
verkin seld á uppboði. Alls söfnuðust
520.000 kr. sem voru afhentar við
hátíðlega athöfn á Hamingjutorgi
skólans síðastliðinn föstudag og var
lagið Malaika að sjálfsögðu
sungið. Spurð um nafn
torgsins segir Þorgerð-
ur Anna: „Þetta er lítið
torg hérna á torfunni
okkar þar sem við
komum saman. Það
er alltaf svo mikil
hamingja þar,
þannig varð nafn-
ið til.“
Áfjáð í að láta gott af sér leiða
Skólabörn af-
hentu söfnunarfé
á Hamingjutorgi
Ljósmynd/Hjallastefnan
Gríðarstór ávísun Margrét Pála Ólafsdóttir tekur við ávísun af stærri gerðinni úr höndum stoltra skólabarna síð-
astliðinn föstudag, 16. maí. Reyndar safnaðist nokkru meira fé en upphæðin á ávísuninni gefur til kynna.
Ljóðabók barnanna heitir Malaika – ljóð fyrir börn eftir börn. Hún inni-
heldur 180 ljóð eftir alla nemendur skólans sem eru á aldrinum 5-9 ára.
Hér koma tvö þeirra og að sjálfsögðu fær orðaval og stafsetning höfunda
að halda sér.
Heimurinn okkar
Heimurinn okkar er ekki alltaf
sama um frið.
af því að hann er ekki alltaf
sammála að kynréttindi séu
mið.
Ef það kæmi stríð myndi ég
hjálpa börnum og búa til lið.
Og ef einhver gæti hjálpað
börnum þá eruð það þið.
Snorri Logason, 8 ára
Vinátta
Vináttan er sönn,
Maður getur treyst á hana,
maður treystir ekki á vondan
vin,
maður verður að komast að
með vináttu og hlýrri,
góðri ást.
Emilía Ómarsdóttir,
8 ára
Heimurinn okkar og vináttan
LJÓÐ FYRIR BÖRN EFTIR BÖRN
Þorgerður Anna
Arnardóttir