Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Malín Brand malin@mbl.is Það er ástæðulaust að látasér leiðast þegar fólk hætt-ir að vinna. Þetta er ekkinýr sannleikur en sjálfsagt að rifja upp endrum og sinnum. Eldri borgurum á Akureyri stendur fjölmargt til boða og má þar meðal annars nefna ýmiss konar námskeið tengd handverki sem haldin eru í Víðilundi. Það var á einu slíku námskeiði sem Hildur Marinósdóttir lærði listina að orkera. „Þetta var mikið gert með skyttu í gamla daga. Þá voru gerðar blúndur framan á peysuföt,“ segir Hildur um þetta áhugaverða handverk sem er afar fíngert. Hildur notar skyttuna ekki mikið heldur er það nýjasta nálar- orkeringin. „Hún er að sumu leyti einfaldari en skyttan og það má segja að þetta sé nokkurs konar kappmelling, þá er kappmellað utan um nálina. Þegar maður er kominn með eins marga hnúta og maður vill hafa í mynstrinu þá er nálin dregin í gegn,“ útskýrir hún. Nálin sem Hild- ur notar er nokkuð mjó og löng. Þær eru til fínni og gófari þannig að þessi er svona tiltölulega venjuleg. Mynstrin sem hnútarnir mynda geta verið margvísleg og hefur Hildur á síðastliðnum tveimur árum prófað sig áfram með þau og gert ýmiss konar hálsmen, dúka, jólaskraut, armbönd og fleira. „Ég nota bómullargarn mikið því það er bæði mjúkt og létt.“ Á sumu skartinu er segull notaður og það verður að segjast eins og er að það er þægilegra þegar armband er fest.“ Miðlar þekkingunni Þó svo að orkeringin sé nýjung í handavinnu Hildar er hún reynslu- mikil hannyrðakona og rak sauma- stofu ásamt tveimur vinkonum um nokkurra ára skeið. Henni er mikið í mun að hin aldagamla aðferð við að orkera gleymist ekki. Þess vegna hefur Hildur kennt öðrum og haldið námskeið heima hjá sér. „Þá erum við ekki fleiri en sex í einu og ég hef sett auglýsingu í Dagskrána,“ segir Hildur sem finnur að áhuginn er mikill. Í sumar mun hún koma við á hinum ýmsu mörkuðum víða um land og selja orkerað skart. „Ef fólk er með sérstakar óskir um liti eða mynstur þá er velkomið að hafa samband,“ segir listakonan á Ak- ureyri. Hægt er að finna handverkið á Facebook undir Hm handverk. Skart búið til úr or- keruðum blúndum Orkering er ævagömul hannyrðaaðferð sem hefur verið notuð hér á landi í nokkr- ar aldir. Áður fyrr var orkering notuð til að skreyta föt og punta heimilið. Hildur Marinósdóttir hætti að vinna fyrir fáeinum árum og notar tímann vel til að hanna og búa til skartgripi og beitir hún hinni aldagömlu aðferð að orkera. Hið gamla handbragð vekur athygli og er vinsælt að punta sig með orkeruðu skarti. Skapti Hallgrímsson Listakona Hildur Marinósdóttir nýtur þess að orkera skartgripi. Fjölbreytt Skartgripirnir eru margskonar og litirnir eins margir og ímyndunaraflið leyfir. Hildur býr gjarnan til hálsmen og armbönd í stíl. Íslenski hesturinn er gegnheilt ein- kenni þjóðararfsins, hvort sem hann er í lausagöngu á hálendinu, taminn til að vinna verkin eða bera okkur á bakinu. Hann er óendanleg upp- spretta andagiftar, sem brýst út í menningarsögu Íslands, skáldskap og samtímalist. Á morgun hefst í Norræna húsinu kl 15 sýningin Tölt, óður til íslenska hestsins, þar sem ís- lenskum samtímalistamönnum og hönnuðum er gefinn laus taumur til að skapa og sýna listaverk sem inn- blásin eru af íslenska hestinum; feg- urð hans og þokka; litum og örlögum. Vefsíðan www.norraenahusid.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Íslenski hesturinn Stór hluti þess hvernig Íslendingar skilgreina sig sem þjóð. Tölt, óður til íslenska hestsins Kærustuparið María Birta og Elli Egilsson ætla að vera með fatamark- að á morgun sunnudag í Gym & To- nic-salnum á KEX hosteli við Skúla- götu frá klukkan 12-17. Þau ætla að vera með fullt af flottum fatnaði, bæði fyrir stelpur og stráka, skó og gríðarlega mikið af „vintage“ skart- gripum. Gera má ráð fyrir að þarna verði úr mörgu skemmtilegu að moða, María Birta á jú og rekur fata- verslunina MANIA við Laugaveg og er auk þess fræg fyrir að vera mikil tískudrottning. Á fatamarkaði sem þessum gildir sannarlega: Fyrstur kemur, fyrstur fær. Endilega … … skellið ykkur á fatamarkað Morgunblaðið/Golli Tískudrottning María Birta. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Kanadamaðurinn Guy Stewart segir það hafa verið skyndiákvörðun þeg- ar hann fór í inngangsnámskeið í ís- lensku í Manitoba-háskóla á sínum tíma. „Það sem orkaði sterkast á mig þegar ég fór að kynnast Íslend- ingum í háskólanum og afkom- endum Íslendinga, voru djúpstæð tengsl þeirra við bókina. Ég er áfjáður í að vita hvort heimsmenn- ingin meti bóklega hugsun svo mik- ils að sérstakur tími verði helgaður henni. Einkum og sér í lagi langar mig þó að vita hvort Íslendingar eigi eftir að gera það,“ segir Guy sem hefur búið á Íslandi síðan 1994. Hann hefur unnið sem leikari, grunnskólakennari og hönnuður. Á morgun sunnudag kl 15 hefst sýn- ing á Flugdrekabók Guy í aðalsafni Borgarbókasafnsins við Tryggva- götu. Yfirskrift sýningarinnar er „Sjáum-k eg meir um Munin“ og veltir Guy fyrir sér þeim breytingum sem eiga sér stað á því hvernig við hugsum með tilkomu nýrra miðla eins og internetsins. „Lestur minn á Internetinu hófst með því að ég fór að glugga í alls konar greinar. Það tók mig dágóðan tíma að viðurkenna minnisleysið sem smám saman gerði vart við sig samfara lestrinum. Að hverju var ég aftur að leita? Sögur herma að slíkt minnisleysi sé algengur og út- breiddur fylgifiskur lesturs á Inter- netinu. Minnisleysinu fylgdi brengl- un á tímaskyninu. Er klukkan virkilega orðin tvö? Tíminn sem Int- ernetið byrjaði að éta upp voru stundirnar sem ég var vanur að lesa bækur. Að fljúga flugdreka er ekki að fljúga eins og fugl en með að- stoð ímyndunaraflsins líkist það því. Þannig er það með bókina; þótt hún sé ekki reynslan sjálf, þá líkist hún sjálfri reynslunni með aðstoð ímyndunaraflsins.“ Minnisleysi er algengur fylgifiskur lesturs á Internetinu Að fljúga flugdreka er ekki það sama og að fljúga eins og fugl Guy Stewart Pælir í bókum og neti. Viðskiptavit er ekki meðfætt - það er lært VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD BS nám í viðskiptafræði Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á metnaðarfullt, fjölbreytt og framsækið nám. Deildin hefur gegnt forystuhlutverki í menntun stjórnenda og sérfræðinga á sviði viðskiptafræði í sjö áratugi. Þetta er nám sem gerir kröfur samhliða því að veita góða fræðilega undirstöðu, virkja sköpunarkraftinn og hvetja til agaðra vinnubragða. Það er metnaður Viðskiptafræðideildar að tryggja nemendum góða menntun sem nýtur trausts í samfélaginu og hefur á sér gæðastimpil. Umsóknarfrestur er til 5. júní Hægt er að sækja um rafrænt á www.vidskipti.hi.is. Umsókninni þarf að fylgja afrit af stúdentsprófsskírteini. Boðið er upp á fjögur kjörsvið til BS gráðu í viðskiptafræði: • Fjármál • Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti • Reikningshald • Stjórnun www.hi.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.