Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Skjaldborg, hátíð íslenskra heim- ildamynda, verður haldin í áttunda sinn núna um hvítasunnuhelgina. Venju samkvæmt verður hátíðin á Vestfjörðum, í hinum fallega bæ Pat- reksfirði. Hafsteinn Gunnar Sigurðs- son, einn skipuleggjenda hátíð- arinnar, segir úrval mynda á ár mjög gott en 13 nýjar íslenskar heimilda- myndir verða frumsýndar á hátíðinni. „Auk þess að frumsýna nýjar íslensk- ar heimildamyndir verður sýnt brot úr fimm verkum sem eru í vinnslu. Þar gefst gestum færi á að fá innsýn í vinnubrögð ólíkra kvikmyndagerð- armanna,“ segir hann. Galdur stafrænu tækninnar Hátíðin var fyrst haldin árið 2007 en þá var óljóst hvort hægt væri að halda heimildamyndahátíð á hverju ári. „Á þeim tíma vissum við ekki hvort það væri grundvöllur fyrir há- tíð þar sem frumsýndar væru íslensk- ar heimildamyndir á hverju ári,“ seg- ir Hafsteinn sem þakkar stafrænu tækninni gróskuna í íslenskri heim- ildamyndagerð. „Stafræna tæknin hefur gjörbylt kvikmyndagerð og heimildamyndagerð er einfaldari en áður hvað tæknina varðar.“ Auk íslensku myndanna verða sýndar þrjár myndir eftir heiðurs- gest hátíðarinnar, rússneska heim- ildamyndagerðarmanninn Victor Kossakovsky. Matur, skemmtun og bíó Heimildamyndahátíðin á Patreks- firði er meira en bara uppskeruhátíð íslenskra heimildamyndagerðar- manna. „Gestir hátíðarinnar koma aftur á hverju ári ef þeir geta enda margt í boði. Hér mun kvenfélagið á staðnum bjóða upp á plokkfisk og þá verður auðvitað sjávarréttaveisla, ekta sveitaball og ókeypis aðgangur í sundlaugina fyrir gesti hátíðarinnar.“ Patreksfjörður er einstakur staður og því ættu Skjaldborgargestir að finna sér margt að gera á milli þess að njóta þess besta sem íslenskur heimildamyndaheimur hefur upp á að bjóða á árinu. Í lok hátíðarinnar verður svo kosið um áhorfendaverðlaunin en þar velja gestir bestu myndina. Verðlaunagrip- urinn nefnist Einarinn, eftir Einari smíðakennara á staðnum. Heimildamynd Úr kvikmyndinni Finnboga Péturssyni í leikstjórn Hákons Más Oddssonar en hún fjallar um samnefndan hljóð- og myndlistarmann. Heimildamyndir á Patró  Frumsýndar verða 13 íslenskar heimildamyndir Áhrifamikill bandarískur tónlist- armaður, Arto Lindsay, kemur fram á tvennum tónleikum í menn- ingarhúsinu Mengi, Óðinsgötu 2, nú um helgina. Á fyrri tónleikunum, á laugardagskvöld, mun Lindsay flytja eigið efni sem er einskonar blanda af tilraunakenndum gít- arspuna í sambland við viðkvæmari og munúðarfulla tóna ættaða frá Brasilíu. Á seinni tónleikum, á sunnudags- kvöld, hyggst Lindsay spinna tón- list í félagi við íslenska spunatónlist- armenn. Hver útkoman verður er ómögulegt að segja til um en fullyrt er að það verði áhugavert enda um að ræða listamann sem hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda annarra listamanna. Nafn Arto Lindsay er órjúfanlega tengt þeim tilraunakenndu tónlist- arstraumum sem létu á sér kræla í kjölfar pönksenunnar í New York og fengu á sig „no wave“ stimpilinn. Áhrif brasilískrar tónlistar hafa alla tíð verið sterk í verkum hans og meðal listamanna sem hann hefur unnið með má nefna David Byrne, Laurie Anderson, John Zorn, Jean- Michel Basquiat, Andy Warhol og Matthew Barney. Áhrifamikill spuna- meistari í Mengi Ljósmynd/Marcelo Krasilcic Fjölhæfur Arto Lindsay hefur unnið með fjölda kunnra listamanna. Listahátíð í Reykjavík 2014 Fyrir rúmri viku var fyrsta opnun af fjórum á verkefninu The Five Live Lo Fi í Kling & Bang við Hverfis- götu. Um er að ræða fjórskipt verk, unnið í samstarfi íslenskra lista- nmanna og listahópsins E.S.P. TV frá New York, sem vinnur sjón- varpsefni og sendir út beint frá gjörningum Íslendinganna. Á laugardag klukkan 17 er komið að fjórðu og síðustu opnuninni. Þar er verkefnið sagt ná fyllingu sinni þegar rýmið rennur saman í eina heild og raddirnar koma saman. Lista- mennirnir eru Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, Kol- beinn Hugi Hös- kuldsson, Helgi Örn Pétursson og Rebekka Moran. Fjórða og síðasta opnun The Five Live Lo Fi Ásdís Sif Gunnarsdóttir L L L 16 12 ★ ★ ★ ★ ★ ÍSL TAL ÍSL TAL Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 5:35 - 8 - 10:30 TÖFRALANDIÐ OZ 3D Sýnd kl. 1:50 TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 2 - 3:40 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 4:10 - 5 - 8 - 10:40 BAD NEIGHBOURS Sýnd kl. 8 - 10:10 RIO 2 2D Sýnd kl. 1:50 „Meinfyndin og heldur húmornum alla leið“ T.V. - Bíóvefurinn ★★★ 14 „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið 20.000 manns á aðeins 10 dögum TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA EGILSHÖLLÁLFABAKKA EDGEOFTOMORROWKL.3D:3-5:30-8-10:302D:4-6:30-9 EDGEOFTOMORROWVIP2DKL.3-5:30-8-10:30 GODZILLA3D KL.2:30-5:20-8-10:40 WALKOFSHAME KL.3:40-5:50-8-10:10 BADNEIGHBOURS KL.3:40-5:50-8-10:10 THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.1:30 JÓNSIOGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2DKL.1:30 UNDRALANDIBBA ÍSLTAL2DKL.2 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI SPARBÍÓ MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT EDGEOFTOMORROW2DKL.5:30-8-10:30 X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST2DKL.2:20-5:10-8-10:50 GODZILLA2D KL.2:40-5:20-8-10:40 FROZENENSTAL2D SINGALONGKL.3 EDGEOFTOMORROW3DKL.5:30-8-10:30 AMILLIONWAYSTODIEINTHEWESTKL.5:30-8-10:30 X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST3DKL.2:30-5:15-8-10:45 WALKOFSHAMEKL.5:50 GODZILLA2D KL.8-10:40 FROZENENSTAL2D SINGALONGKL.2:30 THELEGOMOVIEÍSLTAL2DKL.3 JÓNSIOGRIDDARAREGLANÍSLTAL2DKL.3:40 AKUREYRI EDGEOFTOMORROW3DKL.5:30-8-10:30 GODZILLA2D KL.8-10:30 WALKOFSHAME KL.5:50 FROZENENSTAL2D SINGALONGKL.3 THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.3:40 KEFLAVÍK EDGEOFTOMORROW3DKL.8-10:30 AMILLIONWAYSTODIEINTHEWESTKL.8-10:20 X-MEN:DAYSOFFUTUREPAST2DKL.5 VONARSTRÆTI KL.5:30 LEGENDSOFOZ ÍSLTAL3D KL.1:30-3:30 RÍÓ2 ÍSLTAL2D KL.2 SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE T.V., BÍÓVEFURINN OG S&H  KLIKKUÐ SKEMMTUN STÚTFULL AF HÚMOR OG HASAR! EMPIRE  VARIETY  TOTAL FILM  BIOGAGNRYNI VALDIMARS  CHICAGO TRIBUNE  ROGEREBERT.COM  FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 300 KR. FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 300 KR. FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 300 KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.