Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Nýr og fullkominn vélarrúmshermir var vígður í málmdeild Verkmennta- skóla Austurlands í Neskaupstað á mánudag. Viðstaddir vígsluna voru starfsmenn skólans og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem styrktu kaup- in á herminum en það voru Síldar- vinnslan, Samvinnufélag útgerðar- manna og Olíusamlag útvegsmanna. Hermirinn er tölvubúnaður þar sem með nákvæmum hætti er unnt að líkja eftir starfsemi véla í skipum og framkalla allskonar bilanir í vél- búnaðinum. Hann mun nýtast við kennslu á vélstjórnarbraut sem mun taka til starfa við skólann í haust. Við brautina verður boðið upp á nám sem veitir réttindi til að gegna starfi yfirvélstjóra og á skipum með vélarafl 1.500 kW og minna og undir- vélstjóra á skipum með 3.000 kW vélarafl og minna. Einnig er stefnt að því að nemendur á vélstjórnar- braut geti að námi loknu gengist undir sveinspróf í vélvirkjun. Haft er eftir Gunnþóri Ingvasyni, framkvæmdastjóra SVN, að þessi áfangi sé mjög ánægjulegur fyrir at- vinnulífið á Austurlandi. „Með til- komu þessa nýja og öfluga vélar- rúmshermis skapast traustur grundvöllur fyrir nám í vélstjórn í heimabyggð og það er afar þýðing- armikið … Tel ég að það gæti verið áhugavert framhald á samvinnu Verkmenntaskólans og atvinnulífs- ins að taka frumkvæði í því að skapa starfsþjálfunarpláss úti í atvinnulíf- inu fyrir nema í vélstjórn bæði um borð í fiskiskipum og í framleiðslu- fyrirtækjum í landi,“ er m.a. haft eft- ir Gunnþóri. Kennsla á vélstjórnarbraut Ljósmynd/Hákon Viðarsson Vélarrúmshermir í VA Gestir skoða tæki og tölvuskjái verkmenntaskólans.  Fullkominn vélarrúmshermir í VA í Neskaupstað Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Á góðum degi er yndislegt að vera úti á Skjálfandaflóa, verst hvað það hefur verið léleg veiði,“ segir Bragi Sigurðsson á Húsavík. Hann gerir út trilluna Árna ÞH 127 og hefur gert í 44 ár. Hann gagnrýnir tvískinnungs- hátt í umræðum um sjómennsku og sjávarútveg. Sjómannadeginum ætl- ar Bragi að fagna með fjölskyldu sinni. Bragi segir lítið æti hafa verið á miðum Húsavíkurbáta undanfarið. Það hafi ekki aðeins komið niður á afla netabáta, heldur einnig þeirra sem eru með línu eða á strandveiðum. Veðrið hafi alls ekki truflað veiði- skapinn, þessa vikuna hafi veður ver- ið einmuna gott og í gær var flóinn eins og spegill og sól og hiti á Húsa- vík. Um þetta leyti árs hefur Bragi oft- ast síðustu áratugi verið kominn langt á grásleppuvertíðinni, en sleppti þeim veiðiskap í ár vegna lágs verðs og dræmrar veiði. Hann segir að grásleppuafli hafi aðeins glæðst síðustu daga, en aðeins tveir Húsa- víkurbátar eigi eftir að ljúka sínum veiðidögum. Fisklaust í þrjár vikur „Venjulega hef ég verið á grá- sleppu á vorin og svo á línu, en ég ákvað að prófa þorskanetin í ár,“ seg- ir Bragi. „Það hefur ekki gengið neitt sérstaklega og upp úr sjómannadegi fer ég að huga að línunni aftur. Hér hefur verið nánast fisklaust í einar þrjár vikur og það er eins og ætið vanti alveg í flóann. Það gæti verið að breytast því ég frétti af hval vestur undir Kinnar- fjöllum og hugsanlega er ætið komið þangað. Svo er það oft þannig að þeg- ar hvalurinn kemur hreinsar hann ætið og fiskurinn forðar sér.“ Aflaheimildir á Árna ÞH eru tæp- lega 27 tonn í þorskígildistonnum og segist Bragi sækja á vorin og fram á haust. Smábátar eigi ekkert erindi út á sjó yfir háveturinn og til þess hafi hann tekið tillit öll þau 44 ár, sem hann hafi verið með bátinn. Vetrar- tímann notar hann til að sinna við- haldi á bátnum og huga að grásleppu- netum og öðru sem fylgi útgerðinni. „Svo verð ég löggiltur á næsta ári svo maður er farinn að hægja á sér,“ seg- ir Bragi. Hann segir sjómannadaginn á Húsavík verða með hefðbundum hætti. Kappróður, koddaslagur, skemmtisigling, ræður, heiðranir og sjómannahóf á laugardagskvöldi. Reynt sé að sinna öllum aldurshópum og margt sé um að vera á Húsavík eins og annars staðar. Sjálfur reri hann ekki í gær og ætlar að taka því rólega um sjómannadagshelgina með fjölskyldu sinni. Síðasta brauðsneiðin tekin af sjómönnum „Ég var alltaf með menn með mér, en með niðurskurði varð maður að minnka við sig og hagræða,“ segir Bragi. „Vitleysan í kringum kvóta- kerfið fer illa með marga og svo eru allar þessar afætur. Það heimta allir sitt, hvort sem það er ríkið eða bær- inn, svo lítið verður eftir. Ég er hræddur um að það verði víða erfitt á þessum minni bátum seinni hlutann á árinu. Það þarf að borga veiðigjöld, hafnagjöld, skatta og hvað þetta heit- ir allt. Svo er búið að taka af okkur 360 þúsund krónur á ári sem við höfð- um í sjómannasaflátt. Á sama tíma fá opinberir starfsmenn yfir 20 þúsund krónur í dagpeninga og gistingu ef þeir fara bæjarleið. Undir það síðasta höfðum við sjómenn 260 krónur á dag í sjómannaaflsátt, en nú er búið að taka þá brauðsneið af okkur líka. Við Íslendingar skiljum það ekki alltaf, og þá síst stjórnmálamenn- irnir, að þú veiðir ekki sama fiskinn nema einu sinni. Byggðarlög sem eru kvótalítil heimta að fá kvóta frá Byggðastofnun. Þá kemur einhver stærri útgerð og kemur með kvóta á móti, en þá er verið að taka aflaheim- ildir frá þeim stað sem þær voru á áð- ur og minna hráefni verður til að vinna úr á þeim stað. Pottarnir í fiskveiðikerfinu hafa verið að stækka, en þeir verða ekki til af sjálfu sér. Fiskurinn í þeim er tek- inn frá einhverjum öðrum eins og til dæmis í strandveiðunum. Þær sveitarstjórnir sem jarma mest eru margar stærstu kvótasal- arnir og seldu kvóta frá sér á sínum tíma. Bæjarútgerðirnar eru farnar og núna er verið að heimta þær til baka. Hér á Húsavík og víða á landsbyggð- inni eiga heimamenn færri fyrirtæki en áður og svo standa menn vælandi og vilja að ríkið komi og hjálpi þeim,“ segir Bragi Sigurðsson að lokum. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Rjómablíða Bragi Sigurðsson og Jakob Þór Bergþórsson, dóttursonur hans, draga netin á Skjálfanda á þriðjudag. Gagnrýnir tvískinnungsháttinn  „Á góðum degi er yndislegt að vera úti á Skjálfandaflóa,“ segir Bragi Sigurðsson á Húsavík  Margar afætur í kerfinu  „Bæjarútgerðirnar eru farnar og núna er verið að heimta þær til baka“ Árni ÞH 127 er 7,6 brúttótonna, tæplega 10 metra trébátur, byggður 1961 í skipasmíðastöð Svavars Þorsteinssonar á Akur- eyri. Bragi eignaðist bátinn 1970 ásamt Sigurði bróður sín- um og fékk báturinn þá nafnið Árni ÞH. Bragi hefur gert hann einn út frá árinu 1985. Upphaflega bar báturinn nafnið Hafræna EA 42 og var gerður út frá Árskógssandi. Í febrúar 1962 fékk hann nafnið Bára ÞH 127 og var gerður út frá Flatey á Skjálfanda af feðgun- um Hermanni Jónssyni og son- um hans, Jóni og Ragnari. Bragi lét taka bátinn í gegn veturinn 1987-8 og fékk hann þá það útlit sem nú er á honum. Stýrishús- inu var breytt, öll bönd voru endurnýjuð og hann var hækk- aður um eitt borð. Breyting- arnar annaðist Trausti Adams- son skipasmiður á Akureyri. Reri frá Flat- ey um tíma MIKIÐ BREYTT 1987 Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Á bryggjunni Bragi stígur léttan dans við hrognatunnu fyrir fimm árum. Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Verð: 41,9 millj. Sandavað1 1 0Reykjavík Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Samtals að stærð 126,3 m² Sér hannaðar allar innréttingar Mikil lofthæð og innfeld lýsing Útgengi út á svalir úr stofu og baðherbergi Stæði í bílakjallara Glæsileg íbúð með útsýni allan hringinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.