Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 17

Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 17
Ráðhús Hagaskóli Hlíðaskóli Laugardalshöll Breiðagerðisskóli Vættaskóli Borgir Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi, Dalhúsum Árbæjarskóli Íþróttamiðstöðin Austurbergi Ölduselsskóli Ingunnarskóli Klébergsskóli Í dag, laugardaginn 31. maí 2014, fara fram kosningar til borgarstjórnar í Reykjavík. Kjörfundur hefst kl. 9.00 og honum lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er vakin á því að íbúar við Efstaleiti, Hvassaleiti, Kringluna, Miðleiti, Neðstaleiti og Ofan- leiti kjósa nú íHlíðaskóla en ekki Breiðagerðisskóla. Á www.reykjavik.is/kosningar má fletta kjósendum upp eftir kennitölu til að kanna hvar þeir eru á kjörskrá. Einnig er vakt í manntali í Ráðhúsi Reykjavíkur allan kjördag í s. 411 4915, netfang manntal@reykjavik.is. Þar eru fúslega veittar upplýsingar um hvar fólk á að kjósa og hvað annað sem kjósendur vilja spyrja um. Aðgengi fyrir hjólastóla er tryggt á öllum kjörstöðum. Ekki gleyma að hafa skilríki meðferðis á kjörstað. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hefur aðsetur í Ráðhúsinu á kjördag. Hún er í s. 411 4910 og er með netfangið yfirkjorstjorn@reykjavik.is. Á www.reykjavik.is/kosningar má einnig fylgjast með þróun kjörsóknar yfir daginn og nálgast ýmsar hagnýtar og áhugaverðar upplýsingar sem tengjast kosningum. Talning atkvæða fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hún hefst kl. 22.00 og er opin almenningi meðan húsrúm leyfir. Allar nánari upplýsingar eru veittar í manntali, s. 411 4915, netfang:manntal@reykjavik.is. Kæru borgarbúar Gleðilegan kjördag! Skrifstofa borgarstjórnar Yfirkjörstjórn Reykjavíkur Kjörstaðir í Reykjavík í dag eru eftirfarandi:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.