Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
VANDAÐIR ÞÝSKIR
PÓSTKASSAR,
HENGILÁSAR OG
HJÓLALÁSAR.
MIKIÐ ÚRVAL
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka
daga frá 9-18
og lau frá
10-16
Dalaí Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, kom til Mumbai á
Indlandi í gærmorgun. Hér veifar hann til fylgismanna
sinna við komuna. Dalaí Lama er í fjögurra daga heim-
sókn á Indlandi og í gær hélt hann kynningarnámskeið
um búddatrú, í Mumbai og mun raunar gera það alla
dagana, sem hann dvelur í Mumbai, eða til 2. júní.
AFP
Dalaí Lama heldur námskeið á Indlandi
Lögregluyfirvöld í Kuala Lumpur í
Malasíu greindu frá því í gær að
þrettán manns hefðu verið hand-
teknir, þar á meðal faðir og tveir
synir hans, grunaðir um hópnauðg-
un á tveimur unglingsstúlkum.
Fram kom hjá lögreglunni að
stúlkurnar eru 15 og 17 ára og að
þeim hefði þann 20. maí sl. verið
hópnauðgað klukkustundum saman.
Jafnframt kom fram að 13 hafa
verið handteknir, allir frá sama
þorpi, en lögregla leitar fleiri. Lög-
reglan neitaði fyrri fréttum um að 40
manns hefðu tekið þátt í ódæðis-
verkinu, þeir væru færri, en stað-
festi um leið að einhverjir mannanna
hefðu nauðgað stúlkunum oftar en
einu sinni.
Um 3 þúsund nauðgunarkærur
berast lögreglu ár hvert, en talið er
að nauðganir séu miklu fleiri. Stúlk-
ur skirrist við að kæra vegna þess
smánarbletts sem nauðgun fylgir.
13 manns
nauðguðu
táningum
Lögregla grunar
fleiri um þátttöku
Fréttaskýrendur og greinendur hafa
litla trú á því að eitthvað jákvætt
komi út úr þeim samningi sem jap-
önsk og norður-kóresk stjórnvöld
gerðu með sér í fyrradag í Stokk-
hólmi og greint var frá hér í Morg-
unblaðinu í gær. Þetta kom fram í
fréttaskýringu á fréttavef AFP í
gær.
Vilja halda áfram óáreittir
Þar kemur fram að fréttaskýrend-
ur telji að með þessu samkomulagi
séu Norður-Kóreumenn að reyna að
reka fleyg í samstarf helstu and-
stæðinga sinna, til þess að geta
óáreittir haldið áfram kjarnorku- og
eldflaugatilraunum sínum.
Eins og kom fram hér í blaðinu í
gær, samþykktu Norður-Kóreu-
menn að hefja á ný rannsóknir á því
hvað varð um japanska ríkisborgara,
13 eða fleiri, sem þeir rændu á átt-
unda og níunda áratug síðustu aldar,
gegn því að Japan slakaði á refsiað-
gerðum sínum gegn Norður-Kóreu.
Einna þýðingarmesta aðgerðin í
þeim efnum er talin vera, samkvæmt
skýringu AFP, að banni við fjár-
magnsflutningum þúsunda Norður-
Kóreumanna sem búsettir eru í Jap-
an, til Norður-Kóreu verði aflétt.
Þetta á við um þá Norður-Kóreu-
menn sem halda enn tryggð við land-
ið þar sem þeir voru fæddir, af
tryggð við uppruna sinn og ætt-
menni.
Væri slíku banni aflétt, myndi það
auðvelda Norður-Kóreu að halda
áfram vopnaáætlun sinni. Slíkt
myndi grafa undan alþjóðlegum til-
raunum til þess að hafa hemil á
kjarnorku- og eldflaugaáætlun
Norður-Kóreu, samkvæmt því sem
Lee Young Hwa, prófessor við
Kansai-háskólann, sagði við AFP.
Lee segir einnig að bandarísk og
suður-kóresk stjórnvöld muni halda
ró sinni, a.m.k. um sinn, og gefa til
kynna að þauskilji afstöðu Japans,
en það þurfi ekki endilega að vera
sannleikanum samkvæmt. „En hvað
varðar aðalágreiningsefnið í deilun-
um við Norður-Kóreu, karnorku- og
eldflaugaáætlanir landsins, er alveg
ljóst að þessi tvö ríki munu ekki sýna
samningnum sem Japan gerði nokk-
urn skilning, þegar til lengdar læt-
ur.“
agnes@mbl.is
Vilja reka fleyg í samstarfið
Fréttaskýrendur og greinendur hafa litla trú á samningi N-Kóreu við Japan
Shinzo Abe, forsæt-
isráðherra Japans.
Kim Jong-Un, leið-
togi N-Kóreu.
Þýska stórfyrirtækið Siemens
greindi frá því í gær að það
mundi standa við þær áætlanir
sínar að fækka starfsmönnum sín-
um víða um heim um 11.600
manns.
Þetta er liður í meiriháttar
endurskipulagningu fyrirtækisins,
samkvæmt því sem talsmaður Sie-
mens greindi AFP frá í gær.
„Það verður fækkað um þennan
fjölda starfa,“ sagði talsmað-
urinn, en í fyrradag hafði Joe
Kaeser, aðalframkvæmdastjóri
fyrirtækisins, greint frá þessum
áformum á ráðstefnu með fjár-
festum og greinendum í New
York.
Hyggst stórfækka
starfsmönnum
AFP
Hyggst fækka um 11.600 manns.
ÞÝSKALAND
Átta konur sem læstar voru inni af
vinnuveitanda sínum fórust í gær í
eldsvoða í Manila, höfuðborg Fil-
ippseyja. Lögreglan í Manila
greindi frá þessu í gær.
Átta aðrar konur komust lífs af
með því að klifra upp á þak og
stökkva niður, samkvæmt frétt
AFP. Sex af konunum sem fundust
látnar voru 19 til 24 ára gamlar, að
sögn lögreglunnar.
8 konur læstar inni
fórust í eldsvoða
Hinar látnu voru frá 19 til 24 ára.
FILIPPSEYJAR
Það hljóp heldur betur á snærið hjá
frönskum góðgerðarsamtökum í
gær, þegar tilkynnt var í París að
heppinn einstaklingur, sem vann 72
milljónir evra í Euro Millions happ-
drættinu, hefði ákveðið að gefa
frönskum góðgerðarsamtökum 50
milljónir evra af vinningi sínum,
eða sem svarar 7,7 milljörðum ís-
lenskra króna. Franska dagblaðið
Le Parisien hyllti gjörð mannsins
sem „ótrúlega rausn,“ samkvæmt
frétt AFP í gær.
Maðurinn sem óskað hefur nafn-
leyndar er samkvæmt blaðinu sagð-
ur hafa óskað eftir því að fjármun-
irnir skiptust á milli tíu
góðgerðarsamtaka, sem berjast
fyrir þá sem minna mega sín. Hann
er sagður vera frá Haute-Garonne-
svæðinu í Suðvestur-Frakklandi.
Fram kemur í fréttinni að hann
sé á sextugsaldri, ókvæntur og
barnlaus.
Félagsfræðingurinn Denis Muzet
segir í samtali við Le Parisien að
svona manngæska hefði ekki getað
komið á betri tíma fyrir frönsku
þjóðina. „Þessi einstaklingur sendir
þjóðinni þau skilaboð, að velgengni
í lífinu snýst ekki um það hversu
mikla fjármuni þú getur unnið þér
inn, heldur hvað þú ert fær um að
gera fyrir aðra. Fyrir þjóðfélag í
kreppu, þar sem peningavaldið
stjórnar öllu, virðist fullkomin
skynsemi í þessari gjörð“ er haft
eftir Muzet. agnes@mbl.is
AFP
Rausn Hinn gjafmildi Frakki óskaði nafnleyndar, þegar hann gaf tíu góð-
gerðarsamtökum 50 milljónir evra, eða 7,7 milljarða króna í gær.
Gefur 50 milljónir evra
til góðgerðarsamtaka