Morgunblaðið - 31.05.2014, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Nú fara í hönd
sveitarstjórnar-
kosningar. Víðsvegar
um landið eru fram-
boðslistar að kynna sín
kosningamál og
áherslur fyrir næstu
fjögur ár. Í því sam-
hengi er nauðsynlegt
að huga að því að meta
fyrir hvað þessi fram-
boð standa, hver eru
þeirra gildi og sýn á
samfélagið sitt. Á hverju byggjast
stefnuskrár framboðanna sem liggja
til grundvallar þeirra framtíðarsýn á
sitt samfélag?
Þar skiptir ekki máli hvort um er
að ræða ákveðinn flokk eða framboð
sem byggja á krafti íbúanna sjálfra
og vilja láta rödd sína heyrast heldur
þau gildi sem þau standa fyrir.
Félagshyggja stendur fyrir raun-
verulegum gildum eins og náunga-
kærleik, umhyggju og velferð fyrir
alla. Jöfn tækifæri og jafn réttur
fólks innan samfélagsins er einn af
hornsteinum þess þjóð-
félags sem við lifum öll
saman í. Öflugt lýðræði
og opin stjórnsýsla þar
sem íbúar hafa aðkomu
að málefnum síns sam-
félags skiptir okkur öll
máli.
Í komandi sveit-
arstjórnarkosningum
fær hvert og eitt okkar
tækifæri til að hafa
áhrif á okkar nær-
umhverfi næstu fjögur
ár. Það skiptir máli að í
sveitarstjórnum sé fólk sem aðhyllist
jafnaðarstefnu og félagshyggju. Fólk
sem þekkir sín gildi um frelsi, jafn-
rétti og bræðralag og vill vinna með
samborgurum sínum til að vinna að
þessum gildum í samfélaginu.
Ég bið þig því að skoða stefnu-
skrár framboðanna í þínu sveitarfé-
lagi og fyrir hvaða gildi þau standa.
Framboð í anda jafnaðarstefnu og
félagshyggju standa þér til boða til
að vinna að málum í þína þágu næstu
fjögur ár.
Það skiptir máli hverjir stjórna.
Nýttu atkvæðisrétt þinn á kjördag.
Það skiptir máli
hverjir stjórna
Eftir Ólaf Inga
Guðmundsson
Ólafur Ingi
Guðmundsson
»Ég hvet fólk til að
kynna sér framboðin
í sínum sveitarfélögum
og velta því fyrir sér
hverjum það treystir til
að fara með stjórn mála
í sínu nærumhverfi.
Höfundur er stjórnsýslufræðingur.
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
TILBOÐ Á ÖFLUGUM
SÓLARSELLUM FRÁ ÞÝSKALANDI
GOP mono-sólarsellur frá Þýskalandi með 10A hleðslu-
stýringu. Sellurnar eru eru Monocrystal-glersellur, sem
eru virkari í minni birtu en væru þær úr Polycrystal.
Sendum hvert á land sem er.
Upplýsingar í síma 519 5606 eða á www.gadget.is
Henta vel á húsbíla og ferðavagna.
Sellurnar eru 100W og stærðin er 1194 x 542 x 35.
Fullt verð á pakkanum 82.000 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 61.500 kr.
Samgöngukerfið sem
Reykvíkingar búa við
er ekki fullkomið en það
þjónar öllum borg-
arbúum bæði þeim sem
nýta almennings-
samgöngur, hjóla eða
ganga og þeim stóra
hópi sem verður að
treysta á einkabílinn til
að geta sinnt vinnu og
gegnt einkaerindum.
Sá hópur telur fjölda eldri borgara
sem hjóla ekki eða fara fótgangandi
heldur eru háð einkabílnum til að sinna
vinnu, sækja þjónustu og heimsækja
fjölskyldu sína og vini eða fá heim-
sóknir frá þeim til að einangrast ekki
svo dæmi séu nefnd. Sama á við um
þau sem eru hreyfiskert. Eins er í
hópnum mikill fjöldi ungs fjöl-
skyldufólks sem býr í úthverfum og
verður að treysta á bílinn til að koma
börnum sínum á dagheimili, í leikskóla
og þaðan, og sjálfu sér í og úr vinnu
innan mjög þröngs tímaramma. Bú-
seta þess ákvarðast af því að aðeins í
úthverfunum er að finna húsnæði sem
það hefur efni á.
Um stóran hóp að ræða. T.d. skv.
Hagstofunni eru einstaklingar sextíu
ára og eldri nú 22.241 eða 18,35% (og
fer ört fjölgandi) af þeim 121.230, sem
á höfuðborgarsvæðinu búa. Þar við má
bæta öryrkjum undir þeim aldri, sem
eru hreyfiskertir en skv. Trygg-
ingastofnuninni eru öryrkjar undir 60
ára á bótum og skráðir í Reykjavík
4.688. Má varlega áætla að helmingur
þeirra sé hreyfiskertur. Og það eru
fleiri hópar sem þannig er farið fyrir. Í
heild er um að ræða yfir
20% af borgarbúum og
kjósendum. Í hinum 80%
borgarbúa, að mestu fólk
undir 60 ára aldri, er stór
hluti háður einkabílnum
eins og áðurnefnda unga
fjölskyldufólkið.
Borgarstjórn er mark-
visst og „með einbeittum
brotavilja“ að ganga á
rétt þessa stóra hóps
einstaklinga til að nýta
þá samgöngumöguleika
sem þeir þurfa og hafa
hingað til getað gengið að. Bílastæðum
er verið að fækka í stórum stíl m.a-
.vegna þeirrar stefnu að leggja á hjóla-
stíga sem víðast og það gert þannig að
það eyðileggur bílastæði þar sem þau
voru fyrir. Götur hafa verið þrengdar
og útskotum fyrir strætisvagna lokað
og þannig myndast langar biðraðir
bíla á umferðartímum, sem tefur um-
ferð og eykur loftmengun. Sem dæmi
má nefna að stæðum hefur verið fækk-
að um 60 við Hverfisgötu, 30 við Borg-
artún; og í nýrri byggð í Einholti/
Þverholti eiga að vera allt að 235 íbúð-
ir en einungis 117 bílastæði samþykkt.
Við Frakkastíg, þar sem alltaf hefur
verið erfitt að fá stæði, verða íbúarnir
að sætta sig við fækkun stæða úr 57 í
19 vegna lagningar hjólabrautar. Svör
borgarhönnuðar við andmælaröddum
þar voru á þá hrokafullu leið að nóg
væri af bílastæðum í nærliggjandi göt-
um. Hann hefur greinilega ekki séð
þrengslin sem þar eru þegar fyrir og
virðist gefa lítið fyrir fólk sem er ill-
mögulegt eða ógerlegt að ganga lang-
ar leiðir til að komast þangað sem það
þarf að fara.
Þá hefur götum eða hluta þeirra
verið lokað og þær gerðar að göngu-
götum ýmist varanlega sbr. Austur-
stræti eða yfir sumarið sbr. Laugaveg.
Það hefur eyðilagt möguleika þeirra,
sem aðeins gátu sinnt erindum sínum
þar með aðstoð bifreiðar, til að gera
það áfram og lífsgæði þeirra og sjálf-
stæði freklega skert. Þá ber að hafa í
huga að þessar lokanir og fækkun bíla-
stæða hafa bitnað illilega á flestum
sem reka verslanir og þjónustu við
þessar og sambærilegar götur og eru í
ósamræmi við stefnu borgarstjórnar
að auka aðdráttarafl miðbæjarins og
gera hann meira lifandi.
Borgarhönnuður er ekki einn um
sína afstöðu. Hún nær líka til borg-
arstjórnarmeirihlutans og margra í
minnihlutanum. Ástæðan liggur e.t.v. í
að þau eru ung og búa flest í 101
Reykjavík, eru vön því að geta gengið
eða hjólað í miðborgina og virðast ekki
hugsa lengra. Aldrað fólk er ekki vin-
sælt meðal þeirra. Það má nú sjá í sjón-
varpsauglýsingu borgarstjóraefnis nú-
verandi meirihluta þar sem mikil
áhersla er lögð á allt hið góða sem gera
á fyrir börn og ungt fólk en ekkert
minnst á þarfir aldraðra, sem er öllu
athyglisverðara vegna þess að hann er
læknir og ætti því að hafa einhvern
skilning á þeim.
Nátengt aðförinni að samgöngu-
kerfinu eru fyrirhuguðu eignaupptöku-
„þétting byggðar“-aðferðirnar, sem ef
fram ná að ganga mundu auk þess
draga úr dagsbirtu inn á heimili,
vandamál, sem ekki á að kalla yfir fólk í
skammdeginu langa hér. Dapurlegt
dæmi um afleiðingarnar af skipulags-
stefnu borgarstjórnar blasir við í
Skuggahverfinu, sem stendur fyllilega
undir því nafni.
Meirihluti borgarstjórnar kemur úr
röðum flokka sem kenna sig við lýð-
ræði. Ekki hefur því verið framfylgt í
samgöngumálum og andmælum borg-
arbúa, launagreiðenda fulltrúanna, lít-
ill gaumur gefinn. Þá voru undir-
skriftir, 70.000, sem andmæltu því að
Reykjavíkurflugvöllur yrði lagður nið-
ur, virtar að vettugi. Og þannig má
lengi telja. Forræðishyggjan er athygl-
isverð og minnir framkoma og virðing-
arleysi meirihlutans á orð Loðvíks 14.,
Frakklandskonungs: „Ég er ríkið.“
Það er óhugnanlegt að samt eru horfur
á því að sami meirihlutinn með sömu
stefnu, mest sama fólkið, verði kosinn
aftur. Gerist það mundu sannast hin
fleygu orð Voltaires, sem færa mætti
þá upp á Reykvíkinga: „Þjóð fær þá
leiðtoga sem hún á skilið.“
Aðför borgarstjórnar að þeim
sem háð eru bifreiðum
Eftir Gunnar
Finnsson » Borgarstjórn er
markvisst og „með
einbeittum brotavilja“
að ganga á rétt stórs
hóps einstaklinga til að
nýta þá samgöngu-
möguleika sem þeir
þurfa og hafa hingað til
getað gengið að.
Gunnar Finnsson
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og formaður Hollvina Grensásdeildar.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, glæsileg og frambærileg
kona, hefur stigið á stokk og dregið
saman tvö mál sem hafa brunnið á
landsmönnum og valdið heitum um-
ræðum, flugvallarmálið og mosku-
málið. Loksins kemur fram mann-
eskja sem þorir að tala og taka á
heitum málum. Maður hefði haldið
að Sveinbjörg Birna fengi fullan
meðbyr kjósenda þar sem hún tekur
á þeim málum sem hafa valdið miklu
fjaðrafoki og áhyggjum flestra
landsmanna.
Það vekur furðu hversu miklu
mótlæti Sveinbjörg Birna og hennar
samstarfsfólk hefur mætt í þessu
þjóðþrifamáli varðandi mosku og
flugvöllinn. Nú hafa flokkssystkini
hennar stillt sér upp í lið mótherj-
anna. Gott er að eiga trygga stuðn-
ingsmenn í lokaorrustunni. Megi
þau skömm hljóta. Moska, kirkja
eða trúarbragðahús af hvaða sprota
sem er, á ekki heima á þeim stað í
Sogamýri sem til stendur að byggja
mosku. Flugvöllurinn verður að vera
áfram þar sem hann er. Ísland hefur
ekkert efni að byggja nýjan flugvöll,
fyrir utan að heppileg staðsetning er
ekki í sjónmáli. Reykjavík-
urflugvöllur varðar alla landsmenn.
Það er ekki hægt að bjóða okkur Ís-
lendingum, sem höfum kosið um að
flugvöllurinn verði áfram í Vatns-
mýrinni, að það sé hundsað og skoð-
anir fólks gjörsamlega vanvirtar.
Látum ekki bjóða okkur svona
vinnubrögð. Svona fólki, komist það
til valda, er ekki treystandi. Það má
ekki klúðra borgarmálunum af mis-
vitrum borgarstjórnarfulltrúum
með annarlegar hugmyndir um „út-
opíu“-Reykjavík. Þetta er hjólalið
með barnalegar hugsjónir eins og
dæmin bera vitni: Hofsvallagata,
hjólamerkingar Gísla nokkurs Mar-
teins, gettóleiguíbúðir Dags B. Egg-
ertssonar, svo lítið eitt sé tínt til.
Veitum Sveinbjörgu Birnu Svein-
björnsdóttur okkar stuðning og
stuðlum að góðri Reykjavík.
Önnur tækifæri gefast ekki ef
hugmyndir Dags B. Eggertssonar
og fylgdarliðs ganga í gegn.
Loksins
Eftir Sigurð Óskar
Halldórsson » Flugvöllurinn verður
að vera áfram þar
sem hann er. Ísland hef-
ur ekkert efni að byggja
nýjan flugvöll, fyrir ut-
an að heppileg staðsetn-
ing er ekki í sjónmáli.
Höfundur er flugmaður.
- með morgunkaffinu