Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 38

Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 38
38 MESSUR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins að Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir: Rikki Magg SH-200, sknr. 6338, þingl. eig. Ríkarð Ríkarðsson, gerðarbeiðandi Hafnarsjóður Snæfellsbæjar, miðvikudaginn 4. júní 2014 kl. 10:00. Sýslumaður í Búðardal, 30. maí 2014, Ólafur K. Ólafsson sýslumaður. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hellnafell 4, fnr. 221-5058, Grundarfjarðarbæ, þingl. eig. Kristbjörn Rafnsson og Guðrún Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og N1 hf., miðvikudaginn 4. júní 2014 kl. 11:30. Tjarnarás 5, fnr. 222-6189, Stykkishólmi, þingl. eig. Þórarinn Sighvats- son og Elísabet Sigtryggsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 4. júní 2014 kl. 10:30. Sýslumaður í Búðardal, 30. maí 2014, Ólafur K. Ólafsson sýslumaður. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta á sjómannadaginn kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir þjónar fyrir altari og prédik- ar. Messuþjónar sjá um ritningalestra dagsins. Kristina Kalló Szklenar org- anisti. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffi og meðlæti eftir messu. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á sjómannadaginn. Séra Ægir Frímann Sigurgeirsson, fyrrverandi sóknar- prestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi í safnaðarheim- ilinu að guðsþjónustu lokinni. ÁSTJARNARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Gunnar Jóhannesson, settur héraðsprestur, leiðir stundina. Matt- hías V. Baldursson tónlistarstjóri ann- ast tónlistina. Hressing á eftir og gott samfélag. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða almenn- an safnaðarsöng, organisti er Örn Magnússon. Kaffi í safnaðarheimili eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Sæmundur í sparifötum og án sparifata syngur sjó- mannalög í sjómannamessu í Bú- staðakirkju á sjómannadag kl. 11. Kirkjukór Bústaðakirkju syngur, org- anisti er Jónas Þórir og þau flytja tón- list í tilefni sjómannadagsins. Prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Heitt á könn- unni og Sæmundur mætir bæði í spari- fötum og án sparifata. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11 á sjó- mannadaginn, frú Agnes M. Sigurð- ardóttir, biskup Íslands, prédikar og séra Hjálmar Jónsson þjónar fyrir alt- ari. Dómkórinn, Kristján Jóhannsson óperusöngvari syngur einsöng og org- anisti er Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta kl. 11 í samvinnu við Norðfirð- ingafélagið í Reykjavík. Séra Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari, Magni Kristjánsson, fyrrverandi skipstjóri í Neskaupstað, flytur hugleiðingu. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir al- mennan safnaðarsöng. Organisti Sól- veig Anna Aradóttir. Meðhjálpari Krist- ín Ingólfsdóttir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Ferming- arguðsþjónusta kl. 11. Kór og hljóm- sveit kirkjunnar leiðir sönginn. Prestar Sigríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson. FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl. 16.30, athugið breyttan tíma. Tónlist- arhópurinn leiðir lofgjörð og Björg R. Pálsdóttir prédikar. Góð aðstaða fyrir börn en ekki boðið upp á gæslu eins og er. Kaffi og samvera að samkomu lokinni. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming- armessa kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó- hannsson þjónar fyrir altari ásamt Erlu Björk Jónsdóttur guðfræðingi. Söng- hópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunn- arssyni,organista. GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Barn borið til skírnar. Félagar úr Kór Vídal- ínskirkju leiða sönginn. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Helgihald Garðasóknar flyst í Garðakirkju yfir sumarið. GLERÁRKIRKJA | Laugardagurinn 31. maí. Fermingarmessa kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar ásamt Ragnheiði Sverrisdóttur djákna. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Sunnudagurinn 1. júní. Sjómannadagurinn. Messa kl. 11. Sr Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valmar Väljaots. Að venju verður helgistund við minnisvarðann kl. 12.15. GRAFARVOGSKIRKJA | Bænastund við voginn kl. 10.30. Safnast saman í kirkjunni og gengið saman niður að voginum. Fulltrúar frá björgunarsveit- inni Ársæli standa heiðursvörð. Séra Guðrún Karls Helgudóttir leiðir stund- ina. Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari. Þorvaldur Halldórsson spil- ar og leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC- barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Ein- söng syngur Kristín Anna Th. Jens- dóttir. Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Kaffi eftir messu. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRINDAVÍKURKIRKJA | Sjó- mannadagsmessa kl. 13. Ræðumað- ur Sigurður A. Kristmundsson hafn- arstjóri. Ritningarlestra lesa sjómannshjónin Ágústa Inga Sig- urgeirsdóttir og Haukur Guðberg Ein- arsson. Viktor Guðberg Hauksson ber kransinn niður að minnisvarðanum Von. Karlakór Keflavíkur leiðir sönginn undir stjórn Helgu Bryndísar Magn- úsdóttur. Prestur sr. Elínborg Gísla- dóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta í hátíðasal Grundar kl. 14. Séra Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjón- ar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. Sögustund fyrir börnin. Tón- leikar kl. 17 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Lára Bryndís Eggerts- dóttir orgelleikari frumflytur sjö íslensk orgelverk. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Fermdur verður Tómas Bragi Gunn- arsson. Félagar úr Kammerkór Há- teigskirkju syngja. Organisti Kári All- ansson. Prestur sr. Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11 á sjómannadag. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, org- anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kaffi- hressing eftir messu. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Laugardaginn 31. maí kl. 11 verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Hólaneskirkju. Kór sjómanna leiðir safnaðarsöng undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Haf- þór Gylfason syngur einsöng. Hljóð- færaleikarar eru Viggó Brynjólfsson, Fannar Viggósson, Guðmundur Egill Er- lendsson og Unnar Leví Sigur- björnsson. Guðrún Guðbjörnsdóttir, sjómannskona flytur ræðu. Prestur séra Bryndís Valbjarnardóttir. HRAFNISTA | Reykjavík. Hátíðarguðs- þjónusta á sjómannadaginn kl. 13.30 í samkomusalnum Helgafelli. Ræðu- maður dagsins er Hörður Már Harð- arson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Einsöngur Una Dóra Þor- björnsdóttir. Félagar úr kór Áskirkju syngja ásamt söngfélögum Hrafnistu. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar lesa ritningarlestra. Organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Svanhildur Blöndal þjónar fyrir altari. HVALSNESKIRKJA | Sjómannadags- messa kl. 11. Víkingarnir syngja. Org- anisti er Steinar Guðmundsson. Blóm- sveigur lagður að minnisvarða um drukknaða sjómenn. Prestur sr. Sig- urður Grétar Sigurðsson. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Gautaborg. Guðsþjónusta verður í Västra Frölundakirkju kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn Kristinn og Tuula Jóhann- esson. Herbjörn Þórðarson og Lisa Fröberg syngja tvísöng. Ferming, fermd verða: Ann Marí Guðnadóttir, Inga Kar- en Ásgeirsdóttir og Stella Marín Guð- mundsdóttir. Kirkjukaffi. Prestur sr. Ágúst Einarsson. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam- koma kl. 20. Halldóra Ólafsdóttir pré- dikar. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir samkomu. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa- vogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Messa á sjó- mannadaginn kl. 11. Sr. Guðbjörg Jó- hannesdóttir þjónar, Jóhanna Gísla- dóttir æskulýðsfulltrúi prédikar. Félagar úr Góðum grönnum syngja við undirleik Jóns Stefánssonar org- anista. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskólinn kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Gospelgleði leidd af Kór Linda- kirkju undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fredriksberg pigekor í Kaupmanna- höfn syngur, stjórnandi Lis Vorbek. Barnakór Neskirkju, stjórnandi Jó- hanna Halldórsdóttir. Organisti Stein- grímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kaffi og samfélaga á Torginu eftir messu. SALT kristið samfélag | Samkoma SÍK í samstarfi við Salt kl. 14 í Kristni- boðssalnum Háaleitisbraut 58-60, þriðju hæð. Við fáum góðan gest frá Noregi, Gunnar Hamnøy. Hann er kristniboðsfrömuður og rithöfundur. Léttar veitingar og samfélag á eftir samkomu. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. Altarisganga. SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi- stund á sjómannadegi kl. 11 á bryggj- unni í Bakkavör. Friðrik Vignir Stef- ánsson leikur sjómannalög og létta sálma á harmóníku. Sóknarprestur þjónar. Félagar úr Kammerkór Seltjarn- arneskirkju syngja. Kaffiveitingar í Gaujabúð, slysavarnafélagshúsinu eft- ir athöfn. SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Á sjó- mannadaginn er guðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur organista leiðir almenn- an safnaðarsöng. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. Kaffi í safn- aðarheimilinu eftir guðsþjónustu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. ÚLFLJÓTSVATNSKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson, sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Í messunni verður fermdur Sigurður Elías Hall- dórsson, Villingavatni, Grafningi. ÚTSKÁLAKIRKJA | Sjómannadags- messa kl. 14. Víkingarnir syngja. Org- anisti er Steinar Guðmundsson. Barn borið til skírnar. Blómsveigur lagður að minnisvarða um drukknaða sjómenn. Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðs- son. VÍDALÍNSKIRKJA | Helgihald Garða- sóknar flyst í Garðakirkju yfir sumarið. Messa þar kl. 11. Sjá gardasokn.is. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Á sjómannadaginn 1. júní. Minning- arstund kl. 10.45 við altari sjómanns- ins. Blómsveigur lagður að minnis- merkinu. Sjómannadagsmessa kl. 11. Norskur gestakór syngur ásamt Kór Víðistaðasóknar. Organisti: Helga Þór- dís Guðmundsdóttir. Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson. Orð dagsins: Þegar huggarinn kemur. (Jóh. 15) Morgunblaðið/Kristinn Mosfellskirkja Útrétt hönd óstyrk og tóm legg í lófa karls ljóð eða blóm fugl kom og söng fram á ljósa nótt höndin er full með frið og þrótt. (Snorri Hjartarson) Þetta fallega ljóð Snorra Hjartarsonar er lítil kveðjugjöf til míns góða og kæra vinar, Eyjólfs Guðjónssonar sem nú hefur verið lagður til hinstu hvílu eftir erfið veikindi og dap- urleg. Það var eins og það brysti strengur í brjósti hans Eyjólfs nú fyrir nokkrum árum, svo veiktist hann af taugasjúkdómi og lokaðist smám saman inni í sjálfum sér, þar til hann fékk hvíldina. Eins veikur og hann þó var missti þessi sérstaki maður aldrei reisnina sem var honum svo eiginleg. Hann Eyjólfur var um margt alveg einstakur. Fágaður og fríður, hár og glæsilegur heims- maður og íslenskt náttúrubarn úr sveit að vestan. Um árabil gekk hann um fjöll og firnindi Íslands og þegar þeim kafla lauk gekk hann um götur heimsborga, alltaf eins og heima hjá sér. Ég minnist hans eins og hann var áður en hann veiktist, best- ur allra góðra vina, ráðagóður og örlátur, fyndinn og skilnings- ríkur, lífsreyndur og djúpvitur. Við kynntumst í Madrid árið 1998 og urðum strax góðir og nánir vinir. Við áttum það sam- Eyjólfur Guðjónsson ✝ Eyjólfur fædd-ist í Reykjavík 1. mars 1956. Hann lést á Hrafnistu DAS 9. maí 2014. Útför Eyjólfs fór fram frá Áskirkju 26. maí 2014. eiginlegt að giftast mönnum frá Kúbu og það var margt um að tala og papp- írsstúss að greiða úr og upp úr því styrktust milli okk- ar vinabönd sem urðu langlífari en hjónaböndin sem tengdu okkur í upp- hafi reyndust. Hann gat verið öllum hvassari og erfiðari ef honum líkaði ekki eitthvað, en okkur sem hann opnaði hjarta sitt og vinskap var hann ómet- anlegur. Að eignast slíkan vin er mikil gæfa og mér reyndist hann engum betri. Ég skildi við manninn minn með nýfætt barn í höndunum og hefði aldrei get- að höndlað það án stuðnings frá mínum góða vini, sem útskýrði fyrir mér skrefin sem ég þyrfti að taka og greiddi úr tilfinn- ingum mínum með mér af tryggð, væntumþykju og trún- aði. Hans eigið tilfinningalíf var erfitt og þessi ástríki maður upplifði mikla einsemd og leið fyrir það. Okkur sem unnum honum sveið óhamingja hans, en það var svo lítið sem við gátum gert. Allt kom fyrir ekki. Ég er búin að sakna hans og kvíða þessum degi lengi. Ég syrgi góðan vin um leið og ég veit að hann varð að fá að fara. Nú vona ég að hann fái hvíld og fró. Sjálf er ég svo miklu ríkari fyrir vinskap hans og þau ár sem við áttum kynni. Missir minn og okkar allra sem áttum Eyjó að er mikill. Ég samhrygg- ist föður hans og fjölskyldu og vinum hans öllum. Sjá grasið sprettur, gleðstu, mundu að þú grerir sjálfur fyrrum líkt og það, þó innra með þér blikni sef og blað gef beyg og trega engan griðarstað! (Snorri Hjartarson) Sigríður Guðmundsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AÐALBJÖRNS ÞÓRS KJARTANSSONAR, Nýbýlavegi 34, Hvolsvelli. Kristrún Kjartans, Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, Óskar Pálsson, Kjartan Aðalbjörnsson, Ólöf Helga Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Aðalbjörnsson, Erla Kristín Jónsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir samúðarkveðjur og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HRANNAR BRANDSDÓTTUR, Skaftafelli, Ránarbraut 5 Vík í Mýrdal. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðrún Brynja Guðjónsdóttir, Sævar B. Arnarson, Hafsteinn Guðjónsson, Kristín Gísladóttir, Brandur Jón Guðjónsson, Inga B.H. Oddsteinsdóttir, Margrét Steinunn Guðjónsdóttir, Tyrfingur K. Leósson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.