Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23 Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Graníthellur Steypustöðin býður upp á mikið úrval af sterkum og fallegum hellum ogmynstur- steypu fyrir heimili, garða, göngustíga og bílaplön. Allar hellur Steypustöðvarinnar eru framleiddar samkvæmt viðurkenndum stöðlum. Fjárfesting sem steinliggur 20 YFIR TEGUNDIRAF HELLUM 4400400 Hafðu samband og láttusérfræðinga okkaraðstoða þig Skoðaðu úrvalið á www.steypustodin.is Morgunblaðið/Þórður em mest selst af“ segir Ívar. Verndandi Sólhlífar hafa marg- þættan tilgang í garðinum. Úrvalið Sessur í öllum rengbog- ans litum fyrir garðhúsgögnin. ’Það getur veriðágætt að hafa sólhlíf,ekki bara til að haldarigningarúða í skefjumheldur líka til að lengja notkunartíma garðsins. Ef heitt er úti en smá úði eða létt skúr getur sól- hlífin þýtt að hægt er að sitja áfram í rólegheitum úti á palli. Ekki er svo langt síðan trampólínin fóru að birtast í görðum landsmanna og hefur þeim farið fjölgandi ár frá ári. Segir Ívar að salan á trampólínum hafi verið mjög góð undanfarið. Margur hefði haldið að markaðurinn væri farinn að mettast en Ívar segir ekkert lát virðast ætla að verða á trampólínsöl- unni og mætti jafnvel halda að sumir væru komnir með tvö trampólín í garðinn. „Meira að segja dýrasta og veglegasta trampól- ínið okkar, sem kostar 129.990 kr, selst vel svo greinilegt er að margir eru reiðubúnir að setja töluverða fjárfestingu í þetta garðleikfang.“ Ívar segir gaman að segja frá því að framleið- endur séu stöðugt að bæta trampólínin og hægt sé að sjá mikinn mun á trampólínum sem seld voru fyrir 10 árum og þeim sem finna má í Rúm- fatalagernum í dag. „Trampólínin eru orðin miklu sterkbyggðari, með betri gormahlífum og fátt sem á að geta bitið á þeim ef rétt er með þau farið. Svo verður að muna að festa trampolínið eins kirfilega og völ er á, svo að óvæntar vindhviður feyki ekki þessum uppáhalds leikstað barnanna yfir í næsta garð.“ Skemmtilegu sólar-garðljósin Næsta metsöluvara fyrir garðinn gæti verið frístandandi garðljós. Þar segir Ív- ar að tæknin sé aftur að búa til nýja möguleika en í dag eru þessi ljós með díóðuperum og vönduðum sól- arrafhlöðum sem gefa ágæta lýsingu og í langan tíma. „Allir rafhlutar ljósanna eru inni í vatnsþéttri plastskel og ekkert kemst að rafbúnaðinum til að skemma hann. Einfaldlega þarf að reka ljósin ofan í blómabeðin eða grasflötina og þau draga í sig sólarljósið, og byrja að lýsa um leið og rökkva tekur á kvöldin.“ Ekkert hægir á sölu trampólína

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.