Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ | 35
MarkisurogMeira.is | Starmýri 2a, 108 Rvk
Sala Reykjavík s. 898-0508 og 893-6337 | Sala Akureyri s. 868-0886 | sala@markisurogmeira.is
Viltu skjól á veröndina
Markísur og Meira
Komum á staðinn þér að
kostnaðarlausu og gerum tilboð
Skjólveggur
Þ
að er eitthvað svo krúttlegt við
fallegt fuglahús. Blessaðir smá-
fuglarnir eru þakklátir fyrir að
eiga öruggt skjól til að gera sér
hreiður og þakka fyrir sig með söng-
lögum og lífi, og gott ef þeir hjálpa ekki
líka til við að halda óskemmtilegum
pöddum í skefjum. Það eina sem þarf að
passa er að velja fuglahúsinu örugglega
góðan stað – ekki alveg upp við híbýli
mannanna né þannig að kettirnir í hverf-
inu geti kíkt í heimsókn hjá fuglunum.
En fuglahús getur líka verið stáss fyr-
ir garðinn. Fuglahúsin þurfa nefnilega
ekki að vera látlausir litlir kassar með
gati og er hægt að smíða, eða finna til
sölu, mjög fagurlega hönnuð og bráð-
skemmtileg fuglahús sem eru svo snotur
að mann langar helst að stækka þau upp
í fulla stærð og flytja inn sjálfur.
Húsgagna- og heimilisvöruvefurinn
Houzz.com er með mjög fjölbreytta vef-
verslun þar sem m.a. má finna úrval
fuglahúsa frá ýmsum framleiðendum.
Myndirnar hér til hliðar tala sínu máli.
Sum fuglahúsin eru eins og lítil sveitaóð-
öl í suðurríkjastíl, önnur eins og gamlar
amerískar kirkjur, enn önnur í got-
neskum anda og eitt minnir helst á
piparkökuhús. Sum þeirra eru smá
og rúma bara eina fugla-
fjölskyldu en önnur eru gerð
til þess að þar geti gert sér
hreiður fjöldi fugla.
Ekki fylgir sögunni
hvort húsin eru gerð til að
þola íslenskt veðurfar eða
hvort þau eiga bara heima
í amerískum görðum þar
sem veður eru mildari.
Fuglahúsin á myndunum með
greininni kosta frá 19 dölum, aðeins um
2.100 kr, upp í rösklega 46.000 kr og á þá
eftir að bæta við sendingarkostnaði og
öllum þeim sköttum og vörugjöldum sem
leggjast á sendinguna í tollinum.
ai@mbl.is
Hugguleg húsakynni fyrir fuglana
Huggulegt Það
væri ekki leiðinlegt
að fytja þarna inn.
’Sum fuglahúsin eru eins og lítilsveitaóðöl í suðurríkjastíl, önn-ur eins og gamlar amerískar kirkjur.