Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ | 39
Sími 577 5757 | gamafelagid.isTAKTUGRÆNASKREFIÐMEÐOKKUR
Vertu umhverfisvinur
ogbúðu til þína
eigin gróðurmold
MOLTU-
GERÐARÍLÁT
TILBOÐ
19.900 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
50
50
0
06
/1
0
fjölæru blómunum, en þá hjálpaði
hann Hermann minn Lundholm mér
að bæta í skörðin.
Eins og þú sérð í garðinum mínum
hér fyrir utan er ég alltaf að búa til
skóga. Ég vil hafa mikinn botn-
gróður, þannig losnar maður líka við
alla órækt. Ég hef lagt mig eftir að
ná í fallega og sjaldgæfa runna og er
með heilmargar slíkar plöntur sem
eru ekki í hverjum garði. Ég hef
fengið garðyrkjustöðvar til að panta
fyrir mig, bæði Lars og Ragnheiði í
Hveragerði og svo Ólaf Njálsson í
Nátthaga. Þá er um að ræða sjald-
gæfar plöntur sem ég hef fundið
með því að lesa mér til. Ólafur hefur
náð í fullt af rósum fyrir mig líka.
Það kemur oft skemmtilega á óvart
hvað getur lifað hér á landi.
Ég hef komst að því að lágvöxnu
garðrósirnar sem verið er að selja á
Íslandi pluma sig mun verr en antik-
rósir. Kanadískar rósir hafa þó kom-
ið mjög vel út hjá okkur í rósa-
klúbbnum og farið er að flytja inn
finnskar rósir sem eru spennandi.
Antíkrósir eru runnar sem geta
orðið allt að þrír metrar á hæð, þær
halda ilminum og sínum fallega,
milda lit. Svo var farið að blanda nú-
tímarósum við antíkrósirnar og út-
koman er mjög blómstórar plöntur
sem fengu margar ilminn frá antík-
rósunum, - en þær eru miklu við-
kvæmari. Ég er með nokkrar slíkar.
Þetta eru ágræddar rósir og mjög
oft tekur upphaflega rósin yfir hina
ágræddu. Þessar upphaflegu eru oft
með einföld og léleg blóm sem ég ríf
bara burt þegar sú ágrædda deyr.
Ég sækist eftir að kaupa rósir sem
ilma, vil ekki hinar.
Garðyrkjan er skemmtileg
Það er svo margt skemmtilegt
sem fylgir garðyrkjunni. Maður
safnar steinum og laðar að sér fugla
til að hafa fuglasöng, hér eru auðnu-
tittlingar, svartþrestir, venjulegir
þrestir og starrar. Svartþrösturinn
syngur svo fallega. Ég geri í að
rækta berjarunna til að laða fuglana
að. Ég er með paradísarepli og hind-
ber og auðvitað stikkilsber og dóttir
mín er afskaplega dugleg að búa til
sultu úr þessu öllu saman.
Ég hef lagt mig töluvert eftir sí-
grænum plöntum til að gera vet-
urinn hérna skemmtilegri. Ekki eru
mörg ár síðan ég byrjaði að safna.
Til eru fjölmargar sígrænar plöntur
sem hægt er að rækta hér. Og meira
að segja runnar sem blómstra á vet-
urna. Ég hef einnig safnað plöntum
sem bera fallega haustliti.
Mér finnst óskaplega gaman að
þessu öllu saman. Ekki spillir að
hlusta á tónlist við garðyrkjustörfin,
einkum sígilda. Systkini mín kölluðu
mig þess vegna Stellu rómantísku.
Ég hef líka gaman af sagnfræði.
Blóm eiga sér oft merkilega sögu.
Ég er sem fyrr sagði mjög hrifin af
antíkrósum.
Jósefína Bonaparte var mikill
rósaræktandi. Eftir að Napóleon
skildi við hana hellti hún sér í slíka
ræktun, sendi menn víða um lönd til
að sækja rósir fyrir sig. Í stríðinu
milli Frakka og Englendinga létu
þeir síðarnefndu sendimenn Jós-
efínu óáreitta. Uppáhald keisaraynj-
unnar var antíkrósir. Jósefína er
þekkt fyrir rósaræktun sína, en ég
hef þó aldrei séð rósagarðinn í
kringum Malmaison, höllina sem
hún bjó í rétt fyrir utan París. Rós-
unum hennar Jósefínu hefur verið
haldið við. Mér tókst að útvega mér
nokkrar tegundir sem Jósefína
ræktaði. Þær hafa reynst mér mjög
vel.
Ekki má gleyma Rósamundu
fögru. Hún var ástkona Hinriks 2.
konungs af Englandi. Hinrik og Ro-
samund Clifford elskuðust mjög og
byggði hann fyrir hana höll, þar sem
hann heimsótti hana. Elinora eig-
inkona hans var ekki ánægð með
þetta og sagt var að hún hefði látið
eitra fyrir henni. Kóngurinn gróð-
ursetti rós á leiði ástkonunnar, sú
rós heitir Rosamunde.“
Gætir þú valið eitt blóm ef þú
mættir bara halda einni plöntu?
„Það væri erfitt, blómin eru eins
og börnin manns, ekki hægt að gera
upp á milli þeirra. En ef ég yrði,
myndi ég taka með mér antíkrósina
Maiden Blush (meyjarroði). Hún er
fyllt og ilmandi með hvítbleik blóm.
Hana tæki ég með mér. Hún er af-
skaplega viljug að blómstra. Ég hef
átt slíka rós í 15 ár. Það er hægt að
fá hana núna í gróðrarstöðvum. “
Hvaða ráð myndirðu gefa fólki
sem er að byrja að rækta?
„Lesa sér til, það skiptir miklu
máli. Og reyna að setja plönturnar í
rétta moldarblöndu. Sumar plöntur
vilja súran jarðveg, en það er samt
dálítið skrýtið að á Íslandi er jarð-
vegurinn „neutral“. Sem þýðir að
maður getur ræktað hér blóm sem
vaxa í súrum jarðvegi í útlöndum,
svo sem alparósir. Ég set bara svo-
lítið barr í kringum þær og gef þeim
svo blákorn. Og þær pluma sig eins
og ekkert sé.
Ég er svo gamaldags að ég les
mér til í bókum – og myndi ráðleggja
fólki að gera það – og svo auðvitað á
netinu. Ég fékk í upphafi mikinn
fróðleik í bókinni Garðaprýði eftir
Kristmann Guðmundsson. Krist-
mann var mikill ræktunarmaður. Ég
hefði viljað komast í garðinn hans í
Hveragerði meðan hann var og hét.
Ég fór lengi vel á hverju einasta ári í
Hveragerði að kaupa plöntur, þá
gátu krakkarnir leikið sér á meðan
ég var að grúska í gróðurhúsinu. Ég
er ennþá hálfgerð sveitamanneskja í
mér.“
gudrunsg@gmail.com
Ispahan hin bleika.
Prýði Fyrsta alparósin er farin að blómstra sínum rauðu blómum.
Konunglegar Gular og hvítar skógarliljur prýða garðinn.
Gróðurvin Yfirlitsmynd yfir garðinn hennar Steinunnar í Vogalandi.
Rosa Alba Celestial sú himneska.