Morgunblaðið - 09.07.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 09.07.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is PARKETFLÍSAR ekkert að pússa og lakka Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Sérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa sannreynt að um minniháttar jökulhlaup sé að ræða í Múlakvísl, en óvissustigi var lýst þar yfir í gær. Bið- ur almannvarnadeild ríkislögreglu- stjóra ferðafólk að fara að öllu með gát á svæðunum í kringum Jökulsá á Sólheimasandi og Múlakvísl vegna hættu á aukinni brennisteinsvetnis- mengun. Hlaupið hófst 2. júlí og jókst þá rennsli árinnar auk þess sem hækk- andi rafleiðni gaf til kynna að jarð- hitavökvi hefði blandast bræðsluvatni við botn Mýrdalsjökuls, þar sem hlaupið á upptök sín. Rafleiðni í Múlakvísl tvöföld Reynir Ragnarsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri í Vík, hefur mælt rafleiðni í ám á svæðinu frá árinu 1999, þegar lítið var um sjálfvirkar mæl- ingar. Hann mældi rafleiðni í Múlakvísl í gærkvöldi. „Rafleiðnin var 230 μS/cm í gær- morgun og var hún komin í 237 í gær- kvöldi. Ef allt er með felldu er leiðnin undir 100. Í venju- legum jökulhlaupum eins og í Skeið- arárhlaupinu fer leiðnin upp í 600- 700. Þegar brúin fór hérna 2011 fór leiðnin upp í 400 rétt áður. Hún var í 250 og svo fór hún snögglega upp í 400 þegar hlaupið kom,“ segir Reynir. Rafleiðni hefur einnig aukist í Jök- ulsá á Sólheimasandi samkvæmt gögnum úr mæli Veðurstofunnar. Hinn 5. júlí tók leiðni að aukast úr 80 μS/cm í ~160 μS/cm og hélst stöðug í því gildi í gær. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kom fram að ekki væri óvenjulegt að leki eða lítil hlaup af þessu tagi kæmu úr Mýrdalsjökli að sumarlagi, en hugsanlegt væri að vatnsmagnið yk- ist enn frekar. Gögn sem aflað hefur verið benda ekki til þess að stærri at- burðir séu í vændum en þó er hugs- anlegt að stærra flóð gæti komið skyndilega og verður viðbragðstími þá mjög skammur. Hlaupið árið 2011 í fersku minni Magnús Tumi Guðmundsson, pró- fessor í jarðeðlisfræði, segir hlaupið í Múlakvísl fyrir þremur árum vera mönnum í fersku minni. „Þarna fer saman töluverð jarðskjálftavirki og jarðhitavatn að koma í árnar. Þetta þarf ekki að leiða til neins sérstaks en mönnum er í fersku minni hlaup sem kom í Múlakvísl fyrir þremur árum sem tók brúna þar. Við þekkjum ekki svæðið til hlítar og töldu menn rétt að vera á varðbergi og því var þessu óvissustigi lýst yfir,“ segir Magnús. Hann segir að einstaka sinnum hafi komið hlaup á svæðinu sem hafi vald- ið skaða og því sé rétt að fylgjast með ástandinu á næstunni. Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar yrði ógnað. Almanna- varnayfirvöld fylgjast vel með fram- vindu mála á næstu dögum. Minniháttar jökulhlaup er hafið  Rafleiðni jókst í Múlakvísl og í Jökulsá á Sólheimasandi  Varað við hættu á brennisteinsvetnismengun Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Við mælingar Reynir Ragnarsson, fyrrv. lögregluvarðstjóri í Vík, mældi rafleiðni í Múlakvísl í gærkvöldi. Hún mældist þá rúmlega tvöföld. Mæling Rafleiðni fór í 237 μS/cm. Celebrity Eclipse, og sátu margir þeirra úti á svölum káetna sinna og virtu fyrir sér mannlífið á hafnarsvæðinu. Celebrity Eclipse er eitt stærsta skemmtiferðaskip sem hingað kemur í sumar en það er 317 metrar á lengd, álíka og þrír fótboltavellir. Í sumar koma 90 skemmti- ferðaskip til landsins en í fyrra komu yfir 100.000 farþegar með skemmtiferðaskipum. Töluvert fjölgaði á götum Reykjavíkur í gær þegar þrjú skemmtiferðaskip lágu þar samtímis við bryggju. Um 7.000 farþegar voru um borð í skipunum þremur, þar af 2.900 í því stærsta, Sjö þúsund farþegar komu til landsins í skemmtiferðaskipum í gær Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölbreytt mannlíf í fljótandi hóteli í Reykjavíkurhöfn Þrír karlmenn, sem handteknir voru aðfaranótt sunnudagsins vegna líkams- árásar á mann á Bústaðavegi sömu nótt, voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 18. júlí. Rann- sókn málsins er enn í fullum gangi. Sá sem ráðist var á hlaut alvarlega áverka, en hefur verið útskrifaður af sjúkra- húsi. Aðfaranótt sunnudagsins var lögreglu tilkynnt um líkamsárásina á Bústaðavegi og í framhaldi henn- ar um slasaðan mann sem hafði ver- ið skilinn eftir á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Í samtali við mbl.is staðfesti lögregla að árásarmenn- irnir hefðu ráðist á manninn á Bú- staðavegi, tekið hann upp í bíl og skilið hann eftir í Hafnarfirði. Þegar þangað var komið hafði hann hlotið alvarlega áverka á höfði og var fluttur á slysadeild. Í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar á Bústaðavegi Lögregla Þrír eru í gæsluvarðhaldi. Skúli Halldórsson Árni Grétar Finnsson Una Sighvatsdóttir Rússíbaninn, sem íslenskur piltur lét lífið í síðdegis á mánudag, var framleiddur í Þýskalandi. Hann er sagður í samræmi við ströngustu öryggiskröfur. Sams konar rússí- bönum hefur nú verið lokað í skemmtigörðunum Gröna Lund í Stokkhólmi og Borgbacken í Hels- inki. Lögregla rannsakar nú að- stæður. Slysið varð um klukkan hálfsex síðdegis á mánudaginn, í skemmti- garðinum Terra Mitíca á Benidorm á Spáni. Pilturinn kastaðist úr rússíbananum á ferð. Spænska dag- blaðið El País greinir frá því að lög- regla reyni nú að skera úr um hvort öryggisbeltið hafi losnað eða hvort það hafi brotnað. Þá hefur spænska blaðið El Mundo eftir upplýsinga- fulltrúum garðsins að enn sé óljóst hvað hafi nákvæmlega gerst. „Við erum slegin yfir þessu, því á 14 ára starfstíma garðsins hefur aldrei orðið slys. Þetta er nýjasta tækið okkar og frá fyrirtæki sem er í far- arbroddi í heiminum á þessu sviði,“ segir fulltrúi garðsins. Í breska blaðinu Guardian segir að rann- sóknardómari í Valencia-héraði bíði nú eftir skýrslu lögreglu áður en framhaldið verður ákveðið. Terra Mitíca-skemmtigarðurinn var opnaður árið 2000 og er vinsæll meðal ferðamanna á Benidorm. Fleiri rússíbönum lokað  Rússíbaninn framleiddur í Þýskalandi  14 ár án slysa Morgunblaðið/Eggert Rússíbani Umrætt tæki í skemmtigarðinum Terra Mitíca. Tækið er fram- leitt í Þýskalandi og sagt vera í samræmi við ströngustu öryggiskröfur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.