Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 11
Múmínfjölskyldan Meðlimir hennar eru sérlega fjölbreyttir og áhugaverðir og hafa glatt marga.
hann verður reiður yfir því segir
hún að hann sé góður í að blekkja
sjálfan sig, hann hafi vitað að hún
myndi drepa þá.“
Hildur fjallaði um kynhlutverk
Múmínsnáðans sem drengs og
karlmanns og kynhlutverk Morr-
unnar og Míu sem kvenna í sam-
skiptum við hann. „Það er engin
tilviljun að þær eru kvenkyns,
þetta samspil á milli hans og þess-
ara kvenpersóna verður til þess að
hann uppgötvar sig á mörkum
barns og fullorðins. Morran stend-
ur fyrir það að verða fullorðin, hún
getur staðið fyrir kynlíf, hrylling
og ýmislegt fleira. Hún tjáir sig á
mjög frumstæðan hátt, gólar en
talar ekki. Hún er algerlega fyrir
utan allt sem heitir siðvitund eða
samfélag.“
Sumar Múmínbækurnar
eru varla við hæfi barna
Hildur hefur alla tíð haft mik-
inn áhuga á barnabókum, bæði
þegar hún var barn og eftir að hún
varð fullorðin. „Ég hef lengi safnað
gömlum barnabókum og að sjálf-
sögðu las ég bækurnar um Múm-
ínálfana þegar ég var barn, en
sumar þeirra eru samt varla við
hæfi barna, bæði Halastjarnan og
Eyjan hans Múmínpabba eru mjög
dimmar bækur. En Örlaganóttin
og Pípuhattur galdrakarlsins eru
aftur á móti bjartari, ærslafyllri og
fyndnari.“
Tove Hér er hún ung að árum.
Skáldkona Tove hefur skapað merkilegan heim með Múmínálfunum.
Morran stendur fyrir
það að verða fullorðin,
hún getur staðið fyrir
kynlíf, hrylling og ým-
islegt fleira.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014
Á morgun, fimmtudag, kl. 17 ætla
fimm af teymunum tíu sem taka þátt
í ár í Startup Reykjavik að kynna hug-
myndir sínar, en Startup Reykjavík er
viðskiptahraðall sem árlega fjárfestir
í 10 hugmyndum. Þátttakendur njóta
ráðgjafar og leiðsagnar reynslu-
mikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr
vör nýjum viðskiptatækifærum.
Startup Reykjavík er samstarfsverk-
efni Arion banka og Klak Innovit.
Grillviðburðurinn fer fram á ann-
arri hæð að Laugavegi 120 (við
Hlemm) en að því loknu verður boðið
upp á grillaða hamborgara, pylsur og
meðlæti. Grillmeistararnir Helga Val-
fells og Eggert Claessen munu grilla
kræsingarnar ofan í gesti og gang-
andi. Íslensk/enski dúettinn Sister
Sister, stígur á stokk til að skemmt
gestum og flytur ljúfa tóna, blöndu af
píanópoppi, djassi og indí-tónlist.
Grillviðburður Startup Reykjavík
Grillmeistari Gera má ráð fyirr að heitt verði í kolunum á grillinu í kvöld.
Systur og grill á morgun
Hálslón er vatnsmesta lón landsins. Þegar lónið fyllist síðsumars
er vatni veitt um yfirfall sem steypist í um 100 metra háum fossi,
Hverfanda, niður í Hafrahvammagljúfur.
*Vatnsmagn í miðlunarlónum er mælt í gígalítrum
(milljörðum lítra).
Krókslón - 140 Gl.
Hágöngulón - 320 Gl.
Blöndulón - 412 Gl.
Þórisvatn - 1400 Gl.
Hálslón - 2100 Gl.
Sultartangalón 109 Gl. • Kelduárlón 60 Gl. • Hrauneyjalón 33 Gl. • Sporðöldulón 25 Gl. • Gilsárlón 20 Gl. • Bjarnalón 5 Gl. • Ufsar– og Vatnsfellslón 3 Gl.
Málþing verður haldið í Skálholts-
skóla á morgun, fimmtudag, kl. 16
um framtíð Sumartónleika í Skál-
holtskirkju. Tónleikarnir standa nú á
tímamótum, því að um leið og þeir
fagna 40 ára afmæli er mjög óvíst
um framtíð þeirra. Styrkir til
hátíðarinnar hafa dregist mikið sam-
an á undanförnum árum og sem
dæmi hefur kirkjan hætt nær öllum
stuðningi við hana. Þetta og fleira
verður til umræðu á málþinginu,
sem Hollvinafélag Sumartónleika í
Skálholtskirkju stendur fyrir. Allir
eru velkomnir á þingið, sem er
ókeypis, en þar verða flutt fram-
söguerindi og einnig verða pall-
borðsumræður.
Þeir sem flytja erindi eru Þorkell
Helgason stærðfræðingur, Sigurður
Halldórsson, listrænn stjórnandi
Sumartónleikanna, Þorbjörg Daphne
Hall, lektor og fagstjóri LHÍ, Kristján
Valur Ingólfsson, vígslubiskup í
Skálholti, Þorvaldur Karl Helgason
biskupsritari og Heiðrún Há-
konardóttir og Elín Gunnlaugsdóttir,
fulltrúar Hollvinafélagsins.
Málþing í Skálholti öllum opið
Hver verður framtíð Sumar-
tónleikanna í Skálholtskirkju?
Tónlist Rík tónlistarhefð er í Skálholti og hafa m.a. óperur verið fluttar þar.