Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 9

Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 VERTU VAKANDI! blattafram.is 54% þolenda kynferðislegs ofbeldis verða fyrir misnotkun oftar en einu sinni. Sumar 2014 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga frá 10-18 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Útsala Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir www.laxdal.is KLASSÍSK GÆÐAVARA FRÁ GERRY WEBER TAIFUN - GARDEUR - CREENSTONE - FUCHS SCHMITT O.FL. O.FL. ENN MEIRI AFSLÁTTUR ALLT AÐ 60% STÓRÚTSALA 40-60% afsláttur Laugavegi 63 • S: 551 4422 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Velta á greiðslukortum Visa var 5% meiri í júní sl. en í júní í fyrrasumar. Þá jókst notkun íslenskra Visa-korta erlendis um 13% en aukningin í velt- unni innanlands var 4%. Þetta kemur fram í mánaðarlegri samantekt Visa. Tölurnar miðast við almanaksmánuð, ekki kortatímabil. Hefur Visa flokkað veltuna á þann veg frá áramótum. Aukningin í veltu Visa-korta í áfengisverslunum var 6% í júní frá sama mánuði í fyrra og 1% í mat- vöru- og stórverslunum. Emil B. Karls- son, forstöðumað- ur Rannsóknaset- urs verslunar- innar, segir verslun í nær öll- um flokkum hafa aukist milli ára. „Við höfum séð mikinn vöxt í öll- um tegundum verslunar, ekki síst í dýrari vörum. Sala á til dæmis húsgögnum jókst um 16% fyrstu fimm mánuði ársins frá sama tíma í fyrra og sala á raftækjum jókst um 12% að raunvirði. Meira að segja fataverslun er að ná sér á strik. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur hún aukist um 5% frá því í fyrra. Allt frá hruni hefur hún verið í mikilli lægð og að dragast saman. Þetta er því veruleg breyting,“ segir Emil. Fram kemur á vef Rannsókna- seturs verslunarinnar að fataverslun jókst um 11,5% í maí miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Verð á fötum var 0,4% lægra í maí sl. en í maí í fyrra. Velta skóversl- unar jókst um 12,6% í maí á föstu verðlagi og um 16,3% á breytilegu verðlagi miðað við maí 2013. Verð á skóm hækkaði í maí um 3,3% frá maí 2013. Velta á Visa-kortum erlendis eykst um 13%  Nýjar tölur frá júní  Íslendingar kaupglaðari en í fyrra Emil B. Karlsson Flugfélagið WOW air auglýsti í gær lækkað verð á flugi til London og bauð verð á þessari flugleið á 5.990 krónur aðra leiðina. Ástæða þessa lága verðs er aukin samkeppni, en breska flugfélagið easyJet tilkynnti í gær aukin umsvif sín í flugi á milli Íslands og Bretlands. Algengt verð WOW air á þessari leið er í kringum 13.000 krónur en þessi lágu fargjöld eru í boði á völd- um dagsetningum. EasyJet tilkynnti í gær að það hygðist tvöfalda fjölda flugferða til Íslands á næstunni og lítur út fyrir að félagið verði það næstumsvifa- mesta í áætlunarflugi til og frá Ís- landi yfir vetrartímann, á eftir Ice- landair. Þá tilkynnti flugfélagið einnig lækkuð fargjöld frá Íslandi til London og verða þau frá 6.000 krónum. Svanhvít Friðriksdóttir, al- mannatengill WOW air, segir flug- félagið fagna aukinni samkeppni og að lækkuð flugfargjöld félagsins séu beint svar við áætlunum easy- Jet. „Við erum eina íslenska lág- gjaldaflugfélagið og það er mark- mið okkar að bjóða upp á lægstu flugfargjöldin á Íslandi.“ Spurð um fjölda sæta sem boðin verða á þessu verði segir hún þær upplýsingar vera trúnaðarmál en þau séu nokkur þúsund. Skúli Mogensen, forstjóri og eig- andi WOW air, segir samkeppni vera af hinu góða. „Við mætum allri samkeppni með bros á vör,“ segir Skúli. sh@mbl.is Ljósmynd/ WOW air Lending Flugfélagið WOW air svarar samkeppni frá hinu breska easyJet. Svara aukinni sam- keppni með lækkun Danmörk, Ísland, Lettland, Nor- egur og Þýskaland hafa í samein- ingu tilnefnt margvíslegar minjar frá tímabili víkinga til heims- minjaskrár UNESCO. Eru sjö staðir tilnefndir: Þingvell- ir á Íslandi, Jelling og Trelleborg í Danmörku, grafreitir og búsetu- minjar í Grobina í Lettlandi, skips- haugar í Vestfold og kvarnarsteins- námur í Hyllestad í Noregi og Heiðarbær og Danavirki í Slésvík- Holtsetalandi í Þýskalandi. Staðirnir eiga það allir sameigin- legt að vera meðal mikilvægustu minja um víkingana, að því er segir í tilkynningu frá Þingvallaþjóðgarði. Niðurstöðu heimsminjaráðsins er að vænta á fundi þess í júní 2015. Í júní lauk 38. fundi ráðsins og voru samþykktir 26 staðir á heims- minjaskrá, þar á meðal þúsundasti staðurinn til að komast á skrána, Okavango-árósarnir í Bótsvana. Tilnefndu Þingvelli Ekki af Engeyjarætt Í frétt í Morgunblaðinu í síðustu viku um skyldleika Bjarna Bene- diktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sagði að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benedikts- sonar, fyrrverandi forsætisráðherra, hefði verið af Engeyjarætt. Rétt er að hann giftist inn í ættina þegar hann gekk að eiga Guðrúnu Péturs- dóttur frá Engey árið 1904. Þá kom einnig fram í fréttinni að Engeyjarættin væri rakin frá Pétri Guðmundssyni. Rétt er að ættin er rakin til eiginkonu hans, Ólafar Snorradóttur frá Engey, en hún kemur af langri línu Engeyinga. LEIÐRÉTT - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.