Morgunblaðið - 09.07.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hefur farið fram á 3,7 milljarða
dollara viðbótarfjárveitingu frá
þinginu til þess að bregðast við stríð-
um straumi innflytjenda yfir suður-
landamærin.
Fleiri en fimmtíu þúsund börn,
flest þeirra frá Mið-Ameríku, hafa
komið yfir landamærin án þess að
vera í fylgd með aðstandendum frá
október til 15. júní. Fjárveitingin
sem Obama hefur beðið um myndi
fjármagna störf innflytjendadómara,
fangabúðir og lögfræðiaðstoð.
Stjórn Obama reynir einnig að fá
heimild til að hraða málsmeðferð í
málum innflytjenda en núgildandi
lög gera ráð fyrir að börn sem koma
ekki frá Mexíkó eða Kanada fái
áheyrn hjá innflytjendayfirvöldum í
stað þess að vera send beina leið til
heimalandsins.
AFP
Mótmæli Aðgerðasinnar mótmæla
meðferð yfirvalda á innflytjendum.
Bregðast
við innflytj-
endaöldu
50.000 börn hafa
komið síðustu mánuði
Tvær konur leita skjóls undan fellibylnum Neoguri sem gekk yfir
Okinawa-eyju í gær. Að minnsta kosti tveir menn létust í veðurofsanum í
storminum, sem var sá versti í áraraðir. Fellibylurinn olli skemmdum á
byggingum og um 70.000 heimili voru án rafmagns eftir hamfarirnar.
AFP
Versti bylurinn í áraraðir
Forsetaframbjóðandinn Abdullah Ab-
dullah lýsti í gær yfir sigri í afgönsku
forsetakosningunum sem fóru fram í
júní þrátt fyrir að niðurstöðurnar
bendi til þess að keppinautur hans, As-
hraf Ghani, hafi farið með sigur af
hólmi. Endanleg úrslit liggja ekki fyrir
fyrr en síðar í júlí.
Á útifundi með stuðningsmönnum
sínum í Kabúl hélt Abdullah því fram
að kosningasvik hefðu átt sér stað.
Hann myndi aldrei samþykkja „svika-
ríkisstjórn“. Abdullah nýtur stuðnings
hóps áhrifamikils fólks, þar á meðal
ríkisstjóra, héraðshöfðingja, borgar-
stjóra og stríðsherra.
Abdullah gaf þó ekki í skyn að hann
myndi stofna sína eigin klofningsrík-
isstjórn eins og ýmsir hafa óttast að
gæti gerst. Það gæti ógnað stöðugleika
og öryggi í landinu auk þess sem það
myndi torvelda alþjóðleg samskipti.
„Við viljum ekki borgarastríð, við
viljum ekki krísu. Við viljum stöðug-
leika, þjóðareiningu, ekki klofning,“
sagði Abdullah við stuðningsmenn
sína.
Lýsti yfir sigri í for-
setakosningunum
Abdullah Abdullah Ashraf Ghani
Óttast myndun
klofningsstjórnar
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sókn Ísraelshers gegn Hamas-
samtökunum hélt áfram í gær og
hafa hermenn verið settir í við-
bragðsstöðu fyrir mögulegan land-
hernað á Gasaströndinni. Tólf
manns eru sagðir látnir eftir loft-
árásir hersins á Gasa í gær.
„Við erum á leiðinni í langa að-
gerð. Þetta er bara byrjunin,“ hefur
breska blaðið The Guardian eftir
háttsettum heimildamanni innan ísr-
aelska hersins í gær.
Slógu skjaldborg um húsið
Talsmaður Hamas lýsti því yfir
í gær að allir Ísraelsmenn væru
orðnir lögmæt skotmörk andspyrnu
Palestínumanna eftir að sjö manns
fórust, þar á meðal tveir unglings-
piltar, í loftárás Ísraelshers á heimili
í borginni Khan Yunis á Gasaströnd-
inni. Sjúkraliðar segja að 25 manns
til viðbótar hafi særst í árásinni sem
er ein af tugum loftárása sem Ísr-
aelsmenn hafa gert undanfarna
daga.
Vitni segja að dróni hafi skotið
viðvörunarblysi við húsið sem ráðist
var á. Þá hafi ættingjar og nágrann-
ar slegið skjaldborg um húsið.
Skömmu síðar hafi F-16 orrustuþota
skotið flugskeyti sem jafnaði húsið
við jörðu, skv. AFP-fréttastofunni.
Undirbúa landhernað á Gasa
Hamas segir alla Ísraela skotmörk eftir mannskæða loftárás hersins í gær
AFP
Árás Reykur stígur upp frá Gasa-
ströndinni eftir loftárás Ísraela.
Sheer
Driving Pleasure
BMW X1
www.bmw.is
EINN DAGUR Á BMW X1.
Og það verður fyrsti góði dagurinn af mörgum.
Þú ert í leit að ævintýrum. Við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir
fjórhjóladrifskerfið og nýju átta gíra sjálfskiptinguna í BMW xDrive 18d. Njóttu dagsins þótt veður og
aðstæður séu óútreiknanlegar. Akstursánægjan í BMW X1 er eitthvað sem þú getur treyst á.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
BMW xDrive 18d, verð:6.590.000 kr.
X1 xDrive 18d
Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.