Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 8

Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Gunnar Rögnvaldsson vekur at-hygli á að „mesta hrun í landsframleiðslu Finnlands frá því 1918 varð árið 2009, en þá hrundi hún um 9 prósent og útflutningur um 24 prósent í magni og evrum“. Gunnar segir:    Formaður Við-skiptaráðs Finnlands, Risto Penttila, hefur skrifað grein í Fin- ancial Times. Eng- inn hagvöxtur hef- ur verið í Finnlandi síðastliðin fimm ár. Atvinnuleysi er níu prósent. Nokia eins og við þekktum það er dautt í evrum. Skipasmíðastöðvar lands- ins eru í vandræðum í evrum. Skógariðnaður er að skera niður, loka og læsa verksmiðjum í evr- um. Stærð hins opinbera blæs sov- éskt út og hefur þegar náð hlut- fallslegri stærð franska ríkisins, eða 58 prósentum af landsfram- leiðslu. Millistéttin greiðir þar af leiðandi eina hæstu tekjuskatta í Evrópu.    Kapítalistar eru fáir eftir ílandinu segir formaður hins finnska viðskiptaráðs.    Og hagkerfi Finnlands er aðbreytast í óðaöldrunarhag- kerfi í ESB og evrum. Skuldir hins ömurlega opinbera blása út. Árum saman var því logið að okkur í glansmyndaskýrslum að allir væru í þann mund að flytja til Finnlands.“ Gunnar bendir á að ranglega hafi verið haldið að Ís- lendingum að evran hefði reynst Finnum vel og segir:    Ríkisstjórn Sigmundar DavíðsGunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar ber umsvifalaust að binda enda á þessa lygavegferð íslenska þjóðríkisins. Til þess vor- uð þið kjörnir.“ Gunnar Rögnvaldsson Evran erfið Finnum STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.7., kl. 18.00 Reykjavík 11 rigning Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 13 alskýjað Nuuk 13 skýjað Þórshöfn 12 heiðskírt Ósló 26 þrumuveður Kaupmannahöfn 26 léttskýjað Stokkhólmur 27 heiðskírt Helsinki 25 heiðskírt Lúxemborg 13 skúrir Brussel 15 skýjað Dublin 17 léttskýjað Glasgow 17 léttskýjað London 17 léttskýjað París 17 léttskýjað Amsterdam 13 skúrir Hamborg 21 skýjað Berlín 20 skúrir Vín 28 skýjað Moskva 25 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 30 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 17 léttskýjað Montreal 26 skýjað New York 31 heiðskírt Chicago 25 léttskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:25 23:42 ÍSAFJÖRÐUR 2:39 24:38 SIGLUFJÖRÐUR 2:19 24:23 DJÚPIVOGUR 2:44 23:22 Miðvikudagstilboð – á völdum einnota og margnota borðbúnaði Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14 Komdu í verslun RVog sjáðu glæsilegtúrval af einnota ogmargnota borðbúnaði íflottum sumarlitum Di sk ar Se rv íe ttu r G lö s Hn ífa pö r Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Þrír hafa sótt um embætti sókn- arprests í Seljaprestakalli, Reykja- víkurprófastsdæmi eystra. Áður höfðu sjö sótt um embættið, þar af tvær konur. Valnefnd mælti þá með því að Ólafur Jóhann Borgþórsson, sem starfað hefur sem prestur við kirkjuna, fengi embættið. Agnes Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, gat ekki fallist á tillöguna, að ef hún gerði það væri hún að brjóta jafnréttislög. Forsendan var meðal annars sú að mun fleiri karlar eru í prestastétt en konur. Í kjölfarið var ákveðið að auglýsa embættið að nýju og skapaðist með því möguleiki fyrir sóknarbörnin að efna til almennra prestkosninga á milli umsækjenda stöðunnar. Hófst þá undirskriftarsöfnun og fóru 50% sóknarbarna fram á al- menna prestskosningu í presta- kallinu, en slíkt er leyfilegt fari þriðjungur atkvæðisbærra sókn- arbarna í prestakallinu fram á það. Í gær var tilkynnt um að þrír hefðu sótt um embættið, Fritz Már Bernd- sen Jörgensson, guðfræðingur, séra Hans Markús Hafsteinsson Isaksen og séra Ólafur Jóhann Borgþórsson. Þrír umsækjendur í Seljasókn  Tæplega 50% sóknarbarna fóru fram á almenna prestskosningu Morgunblaðið/Jim Smart Seljakirkja Þrír sóttu um embættið. Sala áfengis jókst um 3,8% í lítrum talið fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við árið í fyrra. Á vefsíðu Vín- búðarinnar kemur fram að þegar vöruflokkar eru teknir saman komi í ljós að sala á bjór hafi aukist um 4,4% og á léttvíni um 2,1%. Á sama tíma var samdráttur í sölu á sterku áfengi um 1,1%. Í einstaka vöruflokkum var sala á rauðvíni og hvítvíni minni á fyrstu sex mánuðum ársins, en sala á lag- erbjór jókst um 3,9%. Áfengissalan í júní var 3,2% meiri í ár en í sama mánuði í fyrra. Sala á lagerbjór jókst en sala á ýmsum öðr- um áfengistegundum var minni en í fyrra. Sala neftóbaks á fyrstu sex mán- uðum ársins jókst um tæp 36%. Sala á vindlingum jókst um 6,5% og reyk- tóbaks um 6,1%. Sala vindla minnkaði um tæplega 1%. Meiri áfengis- sala í ár  36% meira seldist af neftóbaki en í fyrra Áfengi Meiri sala það sem af er ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.