Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta var rosalega gam-
an. Á þessari þriggja
daga ráðstefnu var
fjallað um líf og list
Tove, um hana sem
myndlistarmann og um bókmennt-
irnar hennar. Tove gerði svo margt
fleira en skrifa og teikna Múm-
ínálfa, hún skrifaði og mynd-
skreytti ótal margt annað. Hún leit
fyrst og fremst á sig sem myndlist-
armann sem skrifaði, því sögurnar
hennar spruttu út frá myndlistinni.
Hún gerði líka teiknimyndasögur
um Múmínálfana sem við Íslend-
ingar þekkjum ekki mikið,“ segir
Hildur Ýr Ísberg sem fyrr á þessu
ári flutti erindi á ráðstefnu í Varsjá
sem haldin var í tilefni af því að
hundrað ár eru frá fæðingu finnska
rithöfundarins og myndlist-
armannsins Tove Jansson.
Hringur fantasíuferðasagna
Erindi Hildar á ráðstefnunni
var um bókina Eyjan hans múm-
ínpabba. „Ég fjallaði um kynhlut-
verk Morrans og Míu litlu í sam-
skiptum þeirra við Múmínsnáðann
í sögunni,“ segir Hildur sem nú
vinnur að doktorsverkefni sínu í ís-
lenskum bókmenntum um barna-
bækur og fantasíur. „Múmínfjöl-
skyldan fer í ferðalag í þessari bók,
þau enda á eyju sem Múmínpabbi
segist eiga og hann ætlar að verða
vitavörður þar. Ég lagði út frá
byggingu bókarinnar sem er ófull-
kominn hringur, hringur sem
lokast ekki, af því þau fara aldrei
heim af eyjunni. Í fantasíuferða-
sögum er hringurinn mjög mikil-
vægur, því þegar fólk snýr aftur til
raunveruleikans eftir ferðalag í
fantasíunni þarf lesandinn að túlka
söguna upp á nýtt. En í Eyjunni
hans Múmínpabba þá gerist þetta
ekki, af því þau snúa ekki heim og
þetta endar mjög óljóst. Tove neit-
ar að láta endurtúlka söguna og
lesandinn situr því eftir í fant-
asíunni.“
Manndómsvígsla Snáðans
Hildur segist í erindi sínu hafa
túlkað kynhlutverk Morrans og
Míu litlu út frá kenningum Jacques
Lacans, eins af arftökum Freuds.
„Morrinn stendur fyrir hið hráa og
raunverulega, þetta sem fær hárin
á okkur til að rísa þegar við horf-
um á hryllingsmyndir. Tove skrif-
aði Morrann sem kvenkyns per-
sónu, en af einhverjum ástæðum er
hann karlkyns í íslenskri þýðingu
bókarinnar, kannski hefur þýðand-
anum fundist Morran, eins og hún
heitir á sænsku, vera of hræðileg
til að vera kvenkyns. Hún Morran
stendur alltaf rétt utan við hring-
inn, en Múmínfjölskyldan er alltaf
innan hringsins: þau eru í vitanum
sem er hringlaga, á eyjunni sem er
hringlaga, inni í ljósinu frá lamp-
anum sem er hringlaga. En Morr-
an sækir í ljósið og hlýjuna og
Múmínsnáðinn stelst niður að
strönd til að gefa henni ljós. Í upp-
gjörinu þeirra á milli, þegar hann
kemur til hennar og lætur hana
vita að hann eigi ekki meira ljós til
að gefa henni, verður hún samt svo
glöð að sjá hann. Þá áttar hún sig
á því að það er hann sem hún vill
sjá, en ekki ljósið. Eftir þetta
kemst allt í samt lag og Morrunni
hlýnar. Þetta tel ég vera hluta af
manndómsvígslu Múmínsnáðans.“
Mía litla drepur maura
Hildur segir að Mía litla til-
heyri ekki hinum samfélagslegu
normum í sögunni. „Hún segir það
sem henni finnst, hvort sem það
passar eða ekki. Hún segir ýmis-
legt sem Múmínsnáðinn vill
kannski segja, en gerir ekki, af því
að hann kann sig. Mía litla hleypur
inn og út úr hringnum, hún er
aldrei alveg heima með Múmínfjöl-
skyldunni en samt er hún alltaf hjá
þeim. Mía er miklu djarfari en
Múmínsnáðinn, hún drepur til
dæmis maura sem hann vill losna
við á leynistaðnum sínum, og þegar
Eingöngu á Íslandi
er Morrinn karlkyns
Hildur hefur alla tíð haft mikinn áhuga á barnabókum, bæði þegar hún var barn
og eftir að hún varð fullorðin. Hún las bækurnar um Múmínálfana þegar hún
var stelpa og varð því kát þegar hún var send á ráðstefnu til Varsjár að flytja
erindi um samskipti Múmínsnáðans við Míu litlu og Morrann.
Vinir Múmínsnáðinn færir Morranum ljós, en vináttan er mest um verð.
Hildur Hún kann vel við Tove.
Eitt stærsta hjólreiðamót sumarsins,
Kia Gullhringurinn, verður haldið á
Laugarvatni nk. laugardag, 12. júlí.
Margir þekktir keppendur munu taka
þátt en skráningar hafa farið fram úr
vonum og stefnir í að rúmlega 300
manns hjóli af stað á laugardags-
morgun. Skráningunni lýkur á mið-
nætti í kvöld en hún fer fram á vefsíð-
unni www.hjolamot.is.
Meðal keppenda eru bestu hjól-
reiðamenn landsins. Þar fara fremst-
ir Hafsteinn Ægir Geirsson, hjólreiða-
maður ársins 2013, sem vann
Gullhringinn í fyrra og bræðurnir
Ingvar og Óskar Ómarssynir sem
leiddu sigurlið WOW-keppninnar.
Ráðherra iðnaðar- og ferðamála,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ætlar
einnig að hjóla Gullhringinn og sama
er að segja um fjölmiðlafólkið Kol-
brúnu Björnsdóttur, Telmu Tóm-
asdóttur og Þorbjörn Þórðarson.
Járnkarlinn og Þjóðverjinn Kai Walter
er skráður til leiks þannig að Gull-
hringurinn er orðinn alþjóðlegt mót.
Kai stýrði m.a Iron Man-keppninni í
Frankfurt sem íslenskir járnkarlar
hafa verið árlegir þátttakendur í.
Vefsíðan www.hjolamot.is
Kappar Hafsteinn Ægir Geirsson og Ingvar Ómarsson hefja keppni í fyrra.
Margir þekktir keppendur
Kammerkórinn Schola cantorum
stendur fyrir sumartónleikum í há-
deginu alla miðvikudaga þetta sum-
arið. Þeir fara fram í Hallgrímskirkju
og standa frá klukkan 12-12:30. Tón-
leikarnir í dag sem og aðra miðviku-
daga eru helgaðir íslenskum tón-
skáldum og íslenskum þjóðlögum.
Kórinn á sér nokkuð langa sögu en
hann var stofnaður af organista Hall-
grímskirkju, Herði Áskelssyni, haust-
ið 1996. Alla jafna hefur kórinn flutt
tónlist gamalla meistara endur-
reisnar í bland við íslenska nútíma-
tónlist.
Kórinn hefur haldið hádegistón-
leika að sumarlagi síðan árið 2009
og er tilgangurinn einkum og sér í
lagi að kynna íslenska kórtónlist fyrir
þeim fjölda erlendu ferðamanna sem
leggja leið sína í kirkjuna yfir sum-
artímann. Það þýðir þó ekki að þeir
sem hér búa geti ekki notið þeirra
líka, enda er dagskráin með því móti
að flestir ættu að geta notið hennar.
Það er ánægjuleg upplifun að hlýða á
tónlist í Hallgrímskirkju og ekki er
verra að geta notið menningar-
viðburða í hádeginu í miðborg
Reykjavíkur.
Endilega …
… skrepptu
á kórtónleika
Tónlist Hádegistónleikarnir hefjast í
Hallgrímskirkju klukkan 12 í dag.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Orkuforðinn okkar
Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn.
Úrkomu og leysingavatni af jöklum landsins er safnað í uppistöðulón, sem
flest eru á hálendinu. Miðlunarlónin eru góð geymsla fyrir raforku og gera
kleift að vinna rafmagn jafnt og þétt allt árið.
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Kárahnjúkastífla: Leiðsögumaður tekur á móti gestum alla
miðvikudaga og laugardaga kl. 14-17.
Búrfellsstöð: Gagnvirk orkusýning er opin alla daga kl. 10-17.
Vindmyllur á Hafinu: Starfsfólk tekur á móti gestum alla
laugardaga í júlí kl. 13-17.
Kröflustöð: Jarðvarmasýning er opin alla daga kl. 10-17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir