Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 1
Tækjakosturinn sem vísinda-
menn við gosstöðvarnar norðan
Vatnajökuls nota er háþróaður
og eru dæmi um að einn radar
kosti allt að 250 milljónum
króna.
Vísindamenn fara hins vegar
að öllu með gát og er tækjunum
komið þannig fyrir að auðvelt er
að fjarlægja þau hratt og vel.
Ekki í hættu
250 MILLJÓNA KR. RADAR
M Á N U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 209. tölublað 102. árgangur
BRJÓSTAGJAFA-
BOLIR ÚR MJÚKRI
MERINÓULL
NÝTT
ÍSLENSKT
LEIKRIT
HÉR ER FÁTT Í
UMHVERFINU
SEM GLEPUR
RÓÐARÍ 26 STAÐARFELL 12HÖNNUN SYSTRA 10
Haustið er komið og rigningar þess hellast nú
yfir landið. Ungviðið lætur það þó ekkert á sig fá
og býr sig út eins og aðstæður bjóða. Þessar
ungu hnátur voru að leik í Laugardal í Reykja-
vík í gær. Fram eftir vikunni má gera ráð fyrir
votviðri um landið sunnanvert, en norðanlands
og austan verður veðráttan öllu betri. Hiti verð-
ur gjarnan í kringum 10 stig með frávikum til
beggja átta.
Haustið er komið og rigningin hellist yfir landið
Morgunblaðið/Ómar
Bleyta verður í borginni fram eftir vikunni
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Vísbendingar eru um að askja Bárð-
arbungu sé enn að síga og á meðan
svo er má ekki búast við því að gosið
norðan Vatnajökuls hætti, að sögn
Magnúsar Tuma Guðmundssonar
jarðeðlisfræðings.
Syðstu sprungurnar í Holuhrauni
hættu að gjósa í gær en hraunið úr
upphaflegu sprungunum náði út í
farveg Jökulsár á Fjöllum. Ekki var
orðið vart við sprengivirkni þar í gær
en gufa steig upp af hrauninu.
Skjálftavirkni hélt áfram og
mældist einn stærsti jarðskjálfti frá
upphafi óróans og eldsumbrotanna í
gærmorgun. Sá var 5,4 að stærð.
Skjálftarnir eru merki um að sig sé
enn í gangi. Magnús Tumi segir að
sigið nemi um hálfum til einum
metra á dag, sé það jafnt.
„Bárðarbunga er að síga og kvik-
an sem undir er leitar út í kviku-
ganginn og Holuhraun. Á meðan
askjan sígur er ekki við því að búast
að gosið hætti,“ segir hann.
Töluvert magn af brennisteins-
tvíoxíði kemur upp úr gosinu í Holu-
hrauni og hefur blá móða legið yfir
hluta Austurlands undanfarna daga.
Há gildi þess mældust á mælum ál-
versins í Reyðarfirði á laugardag,
þau hæstu sem mælst hafa hér á
landi frá því að mælingar á mengun
hófust árið 1970. Sambærileg og
hærri gildi eru þó þekkt í stórum iðn-
aðarborgum erlendis að því er kom
fram í tilkynningu frá Umhverfis-
stofnun og sóttvarnalækni.
„Það er greinileg blá móða hér. Á
Fáskrúðsfirði sér maður fjöllin nán-
ast hverfa í móðuna. Tunglið hefur
verið rautt undanfarið og sólin dauf,“
segir Helga Hreinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Austurlands.
Fjöllin hverfa í móðuna
Umtalsverð SO2 -mengun og blá móða yfir Austurlandi
Jarðskálftar vísbending um að Bárðarbunga sígi enn
Samningar náðust á föstudag
milli Icelandair og Félags flug-
umsjónarmanna sem boðað höfðu
vinnustöðvun næstkomandi mið-
vikudag, hefði samkomulag ekki
náðst fyrir þann tíma. Aðeins 11
manns eru í félaginu, þar af 9
starfsmenn Icelandair sem lesa í
ýmis kort og tölur og útbúa þannig
flugáætlanir.
Launahækkanir þær sem flug-
umsjónarmenn fá eru á svipuðu róli
og aðrir launamenn hafa fengið á
síðustu misserum. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugumsjón Samið og áfram er flogið.
Samið við flug-
umsjónarmenn
„Það kallar alla
jafna á nokkuð
flókna og leiðin-
lega útreikninga
fyrir sjálfstætt
starfandi fólk að
greiða sjálfu sér
laun,“ segir Ólaf-
ur Páll Geirsson,
forritari og einn
af aðstandendum
vefsins Launa-
skil.is. Vefurinn býður notendum
upp á einfalda leið til að reikna laun
og launatengd gjöld gegn mánaðar-
legri áskrift.
„Forritið talar síðan við ýmis
önnur kerfi, s.s. greiðslukerfi líf-
eyrissjóðanna og skattstjóra, og
birtast samsvarandi greiðsluseðlar
í netbanka notandans,“ segir Ólaf-
ur Páll og bendir á að hefðbundnari
leiðir séu mun flóknari. »14
Þjónustan reiknar
út launatengd gjöld
Á launaskil.is má
reikna út launin.
Tilraunir á nýju bóluefni við
ebólu sýna að það veitir öpum
ónæmi í að minnsta kosti tíu mán-
uði. Tilraunir hófust á mönnum í
liðinni viku í Bandaríkjunum og
munu þær einnig fara fram á Bret-
landi og í Afríku, að sögn BBC.
Fjórum öpum var gefið mótefnið.
Fengu þeir banvænan skammt af
ebólu fimm vikum síðar og lifðu all-
ir. 5. september höfðu 2.105 manns
látist af völdum ebólufaraldursins í
Afríku, helmingur þeirra í Líberíu.
Bóluefni veitir öp-
um ónæmi við ebólu
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Í úttekt sem gerð var á Verslunar-
skóla Íslands fyrir menntamálaráðu-
neytið kemur fram að nemendur
með laka meðaleinkunn virðist eiga
litla möguleika á að sækja fram-
haldsskóla með bekkjarkerfi. Aðhald
bekkjarins gæti einmitt að mati höf-
unda úttektarinnar hentað nemend-
um með laka náms- og félagslega
stöðu. Þá kemur einnig fram að nem-
endur sem eiga auðvelt með nám
virðast oftar ná árangri óháð kerfi.
Ingi Ólafsson, skólastjóri Verslun-
arskóla Íslands, segir mikla ásókn í
bekkjarskóla á borð við Verslunar-
skólann og Menntaskólann í Reykja-
vík gera að verkum að þeir skólar
geti að jafnaði valið úr hópi bestu
nemenda úr grunnskóla.
„Ég hef oft velt því fyrir mér
hvernig stendur á því að þegar nýir
framhaldsskólar eru stofnaðir eru
þeir áfangaskólar á sama tíma
bekkjarkerfin eru vinsælust hjá
nemendum og foreldrum nemenda.
Of fáir bekkjarskólar?
Lakari nemendur eiga síður kost á aðhaldi bekkjarkerfis
MBekkjarkerfi lokað »4
MRándýr tæki á gosslóð »4