Morgunblaðið - 08.09.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ég leitaði um allt aðbrjóstagjafabol úrmerinóull þegar ég varmeð þriðja barnið á
brjósti en fann hvergi,“ segir Helga
Dögg Flosadóttir. Hún sá sér því
leik á borði og fékk klæðskera-
menntaða systur sína, Aðalheiði
Flosadóttur, til liðs við sig og sam-
an hófu þær að hanna og framleiða
brjóstagjafaboli úr merinóull sem
nefnast Gjöf undir merkinu Hlýleg.
Gjöfin er hlýleg og stendur svo
sannarlega undir nafni.
„Þegar maður er kominn með
fleiri en eitt barn og er með annað
á brjósti þá þarf maður að fara út
úr húsi hvernig sem viðrar hér á
landi. Þá er mikilvægt að halda
hlýju á brjóstunum og merinóullin
er sérstaklega vel til þess fallin.“
Á fullt í hönnunina
Helga Dögg benti á að bolir úr
merinóull hefðu ekki auðvelt að-
gengi að brjóstinu því þeir væru
oftar en ekki með þröngt hálsmál
og ermar. Það væri því ekki einfalt
að notast við slíkar flíkur við
brjóstagjöf.
Ár leið frá því að systurnar
hófust handa við framleiðsluna og
varan kom í búðir. „Þetta hefur
gerst hægar en við vildum en við
vorum báðar í fullri vinnu.“ Helga
Dögg starfar sem verkefnastjóri
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í
efnagreiningu og er með doktors-
próf í eðlisfræði. Aðalheiður var
ráðgjafi hjá Sparnaði, en hún mun
gefa sér meiri tíma í hlýlega hönn-
un þennan veturinn.
Merinóullin varð fyrir valinu
vegna einstakra eiginleika hennar.
Hún er mjúk, hlý og andar vel.
Eiginleikar hennar nýtast best þeg-
ar hún er sem næst húðinni.
„Þetta er fínasta efni sem
hægt er að fá. Allir sem þekkja
hana velja hana ítrekað aftur. Það
er hægt að klæðast henni inni án
þess að vera að kafna. Í merinóull-
inni eru einnig bakteríudrepandi
eiginleikar. Það gerir það að verk-
um að ekki kemur vond lykt af flík-
um úr henni eins og af öðrum sem
eru t.d. úr gerviefni. Þar að auki
má þvo efnið sem við notum í
Systur hanna
brjóstagjafaboli
Þegar Helga Dögg Flosadóttir var með sitt þriðja barn á brjósti fann hún hvergi
hlýjan bol úr merinóull sem auðvelt var að nota við brjóstagjöf. Hún fékk systur
sína, Aðalheiði Flosadóttur, til liðs við sig, en hún er með bakgrunn í klæðskera-
og kjólasaumi og saman hófu þær framleiðslu á brjóstagjafabolunum Gjöf, en þeir
eru úr merinóull. Þeir eru komnir á markað undir merkinu Hlýleg, og fást í versl-
uninni Móðurást. Ný lína frá Hlýleg er væntanleg fyrir jólin.
Brjóstagjafabolur Fallegur bolur sem einfalt er að nota við brjóstagjöf.
Verðandi foreldrar velta því flestir
fyrir sér hvor kosturinn sé betri fyrir
barnið og umhverfið: Einnota bleiur
eða fjölnota taubleiur.
Þeir foreldrar sem vilja kynna sér
fyrri kostinn geta fengið að gjöf
pakka frá Íslensk-Ameríska, ÍsAm,
sem inniheldur nýburableiur fyrir við-
kvæma húð, blautklúta, fjölnota
Pampers-poka og bækling fyrir verð-
andi foreldra. Foreldrar geta skráð
sig á vefsíðu ÍsAm og nálgast pakk-
ann hjá fyrirtækinu.
Auk þess er á síðunni að finna
hlekk inn á breska síðu framleiðand-
ans og þar má sjá ýmis ráð ætluð
verðandi foreldrum. Bæði tengjast
þau heilsu móðurinnar á meðgöngu,
heilsu nýburans og umhirðu húðar-
innar. Áhugaverðir pistlar um nær-
ingu nýbakaðrar móður og eitt og
annað tengt hreyfingu og heilsu al-
mennt er einnig að finna á síðunni.
Vefsíðan www.isam.is/pampers
Morgunblaðið/RAX
Ungviði Að ýmsu þarf að huga í tengslum við nýbakaða foreldra og nýbura.
Fyrir verðandi foreldra
Í dag, mánudaginn 8. september, er
bókasafnsdagurinn haldinn hátíðleg-
ur í bókasöfnum landsins og er um að
gera að kynna sér dagskrá safnanna.
Til dæmis má skoða söfn Borgar-
bóksafnsins en í tilefni dagsins bjóða
þau upp á bókmenntamola til and-
legrar hressingar, glæný bókamerki,
lauflétta bókasafnsgetraun auk til-
boðs á lestrardagbókum á meðan
birgðir endast. Í aðalsafni fer fram
verðlaunaafhending Bókaræmunnar,
örmyndasamkeppni um lestur og
bækur fyrir 13-20 ára, kl. 17 og kl. 18
verður ljóðatorg safnsins opnað
formlega á 5. hæð safnsins.
Endilega …
…munið Bóka-
safnsdaginn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hátíð Bókasafnsdagurinn er í dag.
Síðastliðinn laugardag veitti lista-
maðurinn Erró Ásdísi Sif Gunnars-
dóttur verðlaunafé og viðurkenningu
úr Listasjóði Guðmundu S. Kristins-
dóttur, fyrir framlag hennar á sviði
myndlistar.
Afhendingin fór fram í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi þegar sýning
Ásdísar sem heitir Skipbrot úr fram-
tíðinni/Sjónvarp úr fortíðinni, var
opnuð ásamt sýningunni Erró og lista-
sagan og sýningu listamannanna Moj-
oko og Shang Liang, Gagnvirkur vegg-
ur. Ásdís hefur sýnt verk sín víða og
m.a. voru myndbandsverk eftir hana
sýnd í Centre Pompidou-safninu í Par-
ís. Erró stofnaði listasjóð Guðmundu
til minningar um móðursystur sína og
er sjóðnum ætlað að efla og styrkja
listsköpun kvenna. Þetta er í fimm-
tánda skipti sem styrkur er veittur úr
sjóðnum en framlagið rennur til lista-
konu sem þykir skara fram úr.
Stjórn sjóðsins skipa safnstjórar
Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Ís-
lands og Listasafnsins á Akureyri.
Úthlutað úr sjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur
Sérstæður myndheimur Ásdísar
Sifjar vekur víða athygli
Afhending Ásdís Sif, Erró og Dagur B. Eggertsson við verðlaunaafhendinguna.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.