Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Í þessum töluðum orð-um er ég í bíltúr hérum sveitina okkar
með Magnúsi bróður mín-
um, sem er hér heima í fríi
en hann hefur búið úti í
Svíþjóð hátt í aldarfjórð-
ung. Þetta svæði á í okkur
hvert bein,“ segir Árni Ei-
ríksson á Skúfslæk í Flóa-
hreppi sem er 48 ára í dag.
Þar á bæ á hann allar sínar
rætur enda fór svo að leið-
in lá aftur í sveitina þegar
stofnað hafði verið til fjöl-
skyldu. Þau Sólveig Þórð-
ardóttir eiginkona hans
eiga samtals fjögur börn.
Segir Árni velferð þeirra
hafa ráðið miklu um að
þau settu sig niður á
Skúfslæk.
„Hér nánast á næsta bæ
er skólinn okkar og árang-
ur af starfi nemenda og
kennara þar þykir góður,
sem skapar sveitinni að-
dráttarafl. Réðu skólamálin nokkrum um að ég fór að skipta mér af
málum hér,“ segir Árni sem tók sæti í sveitarstjórn Flóahrepps fyrir
fjórum árum. Ákvað svo eftir nokkra hvatningu að halda áfram og
þróuðust mál svo, í kjölfar sigurs Flóalistans í kosningum síðasta
vor, að hann var valinn oddviti.
Sveitarstjórnarmálin, sem eru býsna fjölbreytt, segir Árni vera
tímafrek. „Þetta verður seint sagt tómstundastarf. Ég minnkaði við
mig í aðalstarfinu hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti til þess að
geta sinnt hvoru tveggja,“ segir Árni. Aðspurður segir hann áhuga-
málin meðal annars vera ferðalög upp um fjöll og firnindi. Áhugi á
jeppum og mixi við þá hafi alltaf fylgt sér, enda hefur Árni lengi
starfað við vélaviðgerðir. „Ég byrjaði í vélvirkjanámi en hvarf frá
því, enda bjóst ég við að starfsvettvangur minn yrði annar. Samt
hefur þetta vélabras verið rauði þráðurinn í minni tilveru, að vera
með skiptilykil í annarri hendi og skrúfjárn í hinni. Og því kann ég
bara ljómandi vel,“ segir Árni sem er Sunnlendingur í húð og hár,
Árnesingur í föðurlegg en Eyfellingur í móðurættina.
sbs@mbl.is
Árni Eiríksson er 48 ára í dag
Flóamaður „Fór að skipta mér af mál-
um,“ segir Árni Eiríksson á Skúfslæk.
Oddviti með skipti-
lykil og skrúfjárn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hafnarfjörður Íris Anna Aronsdóttir
fæddist 10. maí 2014 í Reykjavík. Hún
vó 3.418 g og var 50 cm að lengd. For-
eldrar hennar eru María Arnarsdóttir
og Aron Sölvi Ingason.
Nýir borgarar
Guðrún Steina Sig-
urbjörnsdóttir og Sara
Lind Jóhannesdóttir
héldu tombólu á Ísafirði
og seldu fyrir 5.550
krónur sem þær gáfu
Rauða krossinum.
Hlutavelta
A
nna Sigríður fæddist í
Reykjavík 8.9. 1974:
„Fyrstu æviárin bjó ég
við Búrfellsvirkjun.
Pabbi fékk vinnu við
virkjunina þegar hann lauk námi úr
Vélskólanum og foreldrar mínir
bjuggu þar í 12 ár. Ég var því fyrsta
árið mitt í Ásaskóla í Gnúpverja-
hreppi.
Þegar ég var sjö ára fluttum við í
Hafnarfjörðinn og ég var í Engidals-
skóla, Víðistaðaskóla og í Öldutúns-
skóla. Ég lærði líka á klarinett og
var í skátunum í Hraunbúum í Hafn-
arfirði. Með skátunum fékk ég að sjá
heiminn í öðru ljósi, fór t.d. á al-
heimsmót skáta í Suður-Kóreu með
viðkomu í Japan og kynntist þar
gjörólíkum menningarheimum. Ég
var þrjú sumur í sveit í Gnúpverja-
hrepp en það var skemmtileg upp-
lifun og ég á mjög góðar minningar
þaðan. Þá var ég fjögur sumur í ung-
lingavinnunni í Búrfellsvirkjun,
kynntist skemmtilegum krökkum og
endurnýjaði kynni mín við þá krakka
sem ég hafði búið með í
Búrfellsvirkjun sem barn.“
Anna Sigríður stundaði nám við
Flensborg en hætti fljótlega námi og
fór út á vinnumarkaðinn, vann í
Lakkrísgerðinni Appolo og í bóka-
búðinni hjá afa sínum, Bókabúð
Böðvars. Hún hóf síðan almennt
skrifstofunám við Viðskipta- og
tölvuskólann 1994 og lauk þaðan
prófum, lauk síðan prófum í tölvu-
fræði í Iðnskólanum í Reykjavík, tók
stúdentspróf, lauk prófum í við-
skiptafræði með tölvufræðivali við
HR í framhaldi af því, hóf síðar nám
í verðbréfamiðlun við HR fyrir sex
árum og lauk prófum sem löggildur
verðbréfamiðlari.
Meðan Anna Sigríður var í námi
hóf hún störf við iðgjaldadeild í
Anna Sigríður Arnardóttir viðskiptafræðingur – 40 ára
Ferming Anna Sigríður og Arnar með börnunum, Maríu, Karli Ágústi og Andreu, á fermingardegi Karls Ágústs.
Ánægð í ömmuhlutverki
Mæðgur Anna Sigríður og Andrea í sól og sumaryl við Dettifoss.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
www.guinot.com
HYDRADERMIE
• Húðin fær aukinn
raka og mýkt
• Þéttir húð og gefur
fallega áferð
• Árangur sést strax eftir meðferð
Andlitsmeðferð
Snyrtistofur: www.guinot.is
Guinot sérhæfir sig í
árangursríkum andlits-
meðferðum og snyrti-
vörum sem viðhalda
árangri meðferða.