Morgunblaðið - 08.09.2014, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki láta koma þér á óvart þótt
eignir þínar skipti þig miklu í dag. Mundu að
hólið skilar betri árangri en ávítur og veitir
sjálfum þér meiri vellíðan.
20. apríl - 20. maí
Naut Hikaðu ekki við að grípa gæsina þegar
hún gefst. Lykilviðskipti, ekki síst af fjár-
hagslegum toga, ganga vel í dag og jákvætt
uppgjör er í sjónmáli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Til þess að framkvæma það
ómögulega þarf manni fyrst að detta í hug
eitthvað óhugsandi. Ef þú lætur verða af því
reyndu þá að gera það fyrri hluta dags.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að taka ekkert sem
sjálfsagðan hlut ella muntu iðrast þess síð-
ar. En til að forðast allan misskilning skaltu
samt ræða málið við viðkomandi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fólk bregður á leik og sprellar en þig
langar mest til þess að fara í apótek og
kaupa sápu, sjampó og sitthvað smálegt.
Treystu innsæi þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinsældir þinar eru meiri en nokkru
sinni fyrr. Sýndu fyrirhyggju í fjármálum.
Hlutirnir ættu því að fara að ganga upp.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú er þreyttur skaltu ekkert vera að
pína þig í að gera hluti sem mega bíða til
morguns. Breytingar eru lögmál lífsins,
hvort sem manni líkar betur eða verr.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Við viljum öll stýra því hvernig
aðrir sjá okkur, en sjálfsþekking er trúlega
eina stjórntæki okkar. Láttu því reyna á
samstarfsvilja annarra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert svo önnum kafinn að þú
hefur varla tíma fyrir sorgina sem eitt sinn
var svo þrálát. Einhver í sérkennilegum
þrætuham verður á vegi þínum og tefur fyrir
þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Framlag þitt til samfélagsins
skiptir miklu fyrir heildamynd þess. Með því
að vasast í of mörgu sjálfur stefnir þú ár-
angri af framlagi þínu í hættu. Nýttu þér
meðfætt tímaskyn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hlaupabraut atvinnulífins reynir
meira á en vanalega. Gættu þess að þú fáir
þá hvíld sem þú þarft á að halda.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hálfnað er verk þá hafið er segir
máltækið. Að taka sér of langan tíma er svo
aftur munurinn á misbresti og góðum ár-
angri.
Davíð Hjálmar Haraldsson sagðiá Leirnum á fimmtudag, að í
morgun hefðu fréttamenn tekið
gleði sína á ný; – þeir fengu að fara
aftur á gosstöðvarnar eftir bannið:
Fréttamenn að eldfjalls yl
ólmir beina tólum,
hópi þeirra hleypt er til
sem hrútunum á jólum.
Pétur Stefánsson var í öðrum
hugleiðingum. „Brennivín er böl,“
sagði hann og bætti síðan við:
Ef ég bragða brennivín,
brátt það dofa veldur,
ófrýnn verð ég eins og svín
og andinn sljór og geldur.
Kaffi drekk ég, ekki öl.
– Að því geri skóna;
það er rugl og bölvað böl
Bakkusi að þjóna.
Þetta gekk fram af Friðrik Stein-
grímssyni sem svaraði:
Óhug nokkrum á mig slær,
í mig sestur beygur,
nú er Pétur orðinn ær
eða jafnvel feigur.
Pétur lætur ekki eiga hjá sér:.
Svo þú öðlist sálarfrið,
ég segi það og skrifa,
batnandi mönnum best er við
brennivínsskort að lifa.
En Friðrik gefur sig ekki:
Misjafnt lánið virðist vort,
vel ég í það rýni,
leitt finnst mér að líða skort
líka á brennivíni.
Pétur heldur sínu striki:
Gæti hver að sjálfum sér,
svona upp á grínið.
Ljúft finnst mér að lifa hér
laus við brennivínið.
Áfengisvandamálið blasti öðru
vísi við Ármanni Þorgrímssyni, þar
sem hann var staddur í Borgarfirði
eystra árla dags:
Sólarfullt er sumarið,
sérhver drukkinn fjallatindur,
leikur golan lognið við,
löngu hætt að þykjast vindur.
Bjarni Stefán Konráðsson þakk-
aði Ármanni fyrir skemmtilega vísu
og allan kveðskapinn síðustu mán-
uði, sem gaf Kristjáni Eiríkssyni til-
efni til að rifja upp gamla vísu úr
Borgarfirði eystra með þeim um-
mælum að þannig kvað faðir þeirra
landskunnu Hafnarbræðra:
Þegar ég skilst við þennan heim,
þreyttur og elliboginn,
eg mun róa árum tveim
inn í Sæluvoginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hleypt til á fjöllum og af
Bakkusi og Borgarfirði eystra
Í klípu
„ÞETTA ER NÚ ÞAÐ MINNSTA SEM
BANKINN GAT GERT EFTIR AÐ HAFA
KLIPPT Á ÖLL KREDITKORTIN OKKAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ MÁTT ALVEG VERA Á UNDAN MÉR,
EF ÞÚ ÆTLAR AÐ LEGGJA INN PENINGA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... gjöfin sem heldur
áfram að gefa.
HRAÐBANKI
ÞETTA BJARNARSKINN ER Á
ÚTSÖLU Í ÞESSARI VIKU OG
FÆST Á ALVEG ROSALEGA
GÓÐU VERÐI!
ERTU VISS
UM AÐ ÞETTA
SÉ BJARNAR-
SKINN?
FRÚ MÍN GÓÐ!
ERTU AÐ DRAGA
ORÐ FANNARS
FELDSKERA Í
EFA?!
NEI NEI, ÞAÐ
ER BARA ÞESSI
HVÍTA RÖND
EFTIR BAKINU ...!
GÆLUDÝRASTÖÐIN
KYNNIR ...
NÁTTFÖT
FYRIR KETTI!
HÉR ER TÁSA AÐ SÝNA
FALLEG FÖT ÚR FLÓNELI.
ÆI, GÓÐU
BESTU ...
ALDREI FÆ
ÉG SVONA
FÍNT.
Af myndum og frásögnum aðdæma virðist flest í tívolíinu
sem var í Vatnsmýrinni í Reykjavík
endur fyrir löngu hafa verið frekar
fátæklegt. Fjarlægð tímans hefur þó
sveipað þennan stað ævintýraljóma,
eins og alltaf gerist þegar minning-
arnar breytist í myndir og ljóð. Og
væntanlega fannst einhverjum
Hörpugesta Stuðmanna sl. laugar-
dagskvöld, sem staðinn muna, þeir
aftur vera komnir á fornar slóðir.
Fyrir hina var ekkert tiltökumál að
láta sig berast á vængjum ímynd-
unaraflsins í veröld sem var. Og
Stuðmenn fóru létt með þetta. Á
sviðinu var sungið og spilað og sér
brugðið í allra kvikinda líki, en þær
fígúrur mátti líka sjá á stórum
myndskjá ofan við sviðið. Og svo
dunaði músíkin, þar sem var sungið
um Hveitibjörn, Svarta-Pétur, Vetr-
argarðinn, Baldur og Konna og
fleiri.
x x x
Stuðmenn eru tímalausir. Löginná til allra aldurshópa og á tón-
leikunum um helgina var fólk alveg
frá tvítugu til sjötugs, sem skemmti
sér vel. Kunni lögin og frasana, söng
hástöfum, smellti fingrum og sumir
tóku trommusólóa á sætisbríkum.
Og þegar við átti stóð fólk úr sætum
sínum, stappaði niður fótunum,
ruggaði sér í lendunum og sneri sér í
hring. Þetta var með öðrum orðum
sagt íslensk alþýðuskemmtun í allra
hæsta gæðaflokki.
x x x
Í Hörpunni var þverskurður þjóðar-innar. Tónleikagestir voru fólk
sem sinnir fjölbreyttum verkefnum í
daglegum störfum sínum. Þarna
hitti Víkverji og sá lækni, prest, fast-
eignabraskara, kokk, bílasala, sendi-
herra, húsasmið, skrifstofudömu,
sjúkraþjálfara og svo mætti áfram
telja. Og í þessari flóru og fjölbreyti-
leika liggur hundurinn grafinn, það
er að í lögum og leik Stuðmanna er
eitthvað óútskýranlegt element sem
flestir geta samsamað sig við. Fígúr-
urnar sem sungið er um eiga sér
sjálfstætt líf, líkt og af holdi og blóði
séu. Og fólkinu í landinu eru Stuð-
menn mikilvægir því hljómsveitin,
bæði liðsmenn hennar, lög og ljóð, er
á margan hátt sjálf íslenska þjóðar-
sálin. víkverji@mbl.is
Víkverji
Já, vona á Drottin, ver öruggur og
hugrakkur, vona á Drottin.
(Sálmarnir 27:14)
Sérsmíðaðar baðlausnir
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
• Einangrunargler
• Gluggar (Ál og PVC-plast)
• Hurðir (Ál og PVC-plast)
• Speglar
• Gler
• Hert gler
• Lagskipt öryggisgler
• Litað gler
• Sandblástur
• Álprófílar
• Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-
skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af
ljósaspeglunum okkar vinsælu.
Á heimasíðu okkar glerborg.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Mörkina þar sem fagfólk veitir góða
þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.