Morgunblaðið - 08.09.2014, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2014
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Auðlind – leiklistarsmiðja frum-
sýnir leikritið Róðarí eftir Hrund
Ólafsdóttur í Tjarnarbíói 16. sept-
ember og er það þriðja leikritið
sem hún skrifar fyrir atvinnuleik-
hús. Í verkinu hittast þrjár systur,
einn bróðir og móðir þeirra á tí-
ræðisaldri. Systkinin þurfa að
hittast vegna þess að ein systirin
veikist og þarf á hjálp að halda.
Það reynist þeim erfiðara viðfangs
að eiga samskipti og ráða fram úr
málum en þau hafa búist við.
Hrund stofnaði leiklistarsmiðj-
una Auðlind fyrir tveimur árum:
„Það gerði ég fyrst og fremst til
að koma leikritinu mínu á fram-
færi,“ segir Hrund. „Það er erfitt
að koma nýjum íslenskum leik-
ritum á framfæri í stóru leikhús-
unum. Það eru svo margir að
skrifa og stórmál að fá leikhúsin
til að lesa leikritin og taka afstöðu
til þeirra. Ég hef reyndar verið
heppin því Þjóðleikhúsið keypti
eftir mig leikrit árið 2005. Ekkert
er samt öruggt í þessum málum
og maður þarf stöðugt að vinna í
því að koma sér á framfæri. Leik-
húsin eru í vali sínu á verkum að
reyna að gera öllum til hæfis og
það kostar peninga og áhættu að
frumsýna ný íslensk leikrit og það
er miklu öruggara að biðja ein-
hvern um að gera leikgerð af vin-
sælli bók. Þannig verk geta auð-
vitað verið mjög góð en það er
bara ekki það sama og frumsamið
leikrit eða leiksýning.“
Leikrit fyrir eldri leikkonur
Fyrsta leikrit Hrundar fyrir at-
vinnuleikhús var Frelsi sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu árið 2005 og
fjallaði um unglinga sem gera
uppreisn gegn kerfinu, síðan kom
Hústakan og núna Róðarí. Leik-
arar sýningarinnar eru Margrét
Guðmundsdóttir sem lék áratug-
um saman í Þjóðleikhúsinu og hef-
ur ekki stigið á sviðið í sjö ár,
Anna Kristín Arngrímsdóttir sem
lék sömuleiðis í áratugi í Þjóðleik-
húsinu en lék í Ferjunni í Borgar-
leikhúsinu síðastliðið vor, Guð-
björg Thoroddsen sem hefur ekki
leikið á sviði síðan árið 2000, Hall-
dóra Björnsdóttir sem var ein
helsta leikkona Þjóðleikhússins í
mörg ár en stígur aftur á svið eft-
ir margra ára fjarveru og Kol-
beinn Arnbjörnsson sem útskrif-
aðist frá LHÍ fyrir nokkrum árum
Athygli vekur að allar persón-
urnar og þrjár leikkvennanna eru
konur á miðjum aldri, en oft er
talað um að erfitt sé fyrir leik-
konur sem komnar eru á þann
aldur að fá góð hlutverk. „Hug-
myndin að verkinu kviknaði þegar
verið var að æfa leikrit mitt Frelsi
í Þjóðleikhúsinu, en áður hafði ég
unnið í höfundasmiðju í leikhús-
inu,“ segir Hrund. „Ég sá að í
Þjóðleikhúsinu var mikið af hæfi-
leikaríkum leikurum sem þurfa að
fá meira að gera og þar á meðal
eru margar konur sem eru komn-
ar yfir fertugt en afar fá hlutverk
eru skrifuð fyrir þær. Leikkonur
sögðu við mig: Það væri dásam-
legt að fá kvenleikskáld sem skrif-
ar fyrir okkur, ,,Skrifaðu fyrir
okkur!“ og ég var sammála þeim
um þetta. Síðan fór sú hugmynd
að gerjast með mér að skrifa leik-
rit fyrir eldri leikkonur um ákveð-
ið efni sem hafði ásótt mig og sjö
árum eftir að hugmyndin kviknaði
sótti ég um styrk til Leiklistar-
ráðs og Sviðslistasjóðs til að vinna
verkið.“
Heljarkraftur í leikhúsinu
Spurð um efni verksins segir
Hrund: „Leikritið fjallar um
systkini sem reyna að tala saman
og leysa úr máli eftir að hafa ára-
tugum saman verið á ágætum stað
í lífinu, að eigin mati, en ekki átt
mikil samskipi. Einn daginn þurfa
þau að ákveða hvort þau eigi að
taka ábyrgð gagnvart systurinni
sem veikist. Þótt þau eigi sameig-
inlega fortíð sem börn og systkini
þá hjálpar það ekki í þessum að-
stæðum því þau þurfa að takast á
við vandamál sem er hér og nú.
Þeir sem frétta af efni leikritsins
segja mér að þeir þekki það af
eigin reynslu eða hjá öðrum; að
fólk þrái alltaf að eiga góð sam-
skipti en eigi oft erfitt með það af
einhverjum orsökum, stundum
jafnvel vegna óvináttu milli fjöl-
skyldumeðlima.“
Leikstjóri sýningarinnar er Er-
ling Jóhannesson og Hrund ber
mikið lof á hann og leikara sýn-
ingarinnar. „Það er gaman að
fylgjast með Erling og öllu þessu
reynda fólki vinna og ég gleðst á
hverjum degi. Leikararnir eru
Persónur kalla á mann
Hrund Ólafs-
dóttir er höf-
undur leikrits-
ins Róðarí sem
fljótlega verður
frumsýnt í
Tjarnarbíói
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta
Bifreiða-
verkstæði Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða