Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 eru allmargir læknar innan LÍ sem falla undir það,“ segir Þorbjörn. Á lista Stjórnartíðinda kemur t.d. fram að á kvenna- og barnasviði Landspítalans séu þrír deildarlækn- ar í dagvinnu undanþegnir verkfalls- heimild og tveir á staðarvakt. Þá eigi t.d. að vera tveir sérfræðilæknar í dagvinnu í lyflækningum barna og einn í geislameðferð á lyflækninga- sviði. Þrátt fyrir þessar undanþágur verður spítalinn rekinn á lágmarks mannafla ef til verkfalls kemur. „Þessir læknar sem vinna í verkfall- inu eiga þá að sinna nauðsynlegustu læknisþjónustu. Það er gert til þess að koma í veg fyrir að það verði ein- hver óhöpp. Það er aftur á móti stofn- ananna að tryggja að það sé heil- brigðisþjónusta í lagi, einstakir læknar geta það auðvitað ekki,“ segir Þorbjörn. „Við vitum það að þegar við byrjum í verkfalli munu skapast af því óþægindi sem við vonum að verði til þess að ýta við ríkisvaldinu. En við ætlum ekki að stefna að því að ógna öryggi eða valda neyðar- ástandi.“ Til þess að koma í veg fyrir að neyðarástand myndist verður starfandi undanþágunefnd í verkfallinu, en það er lögbundið. Í undanþágunefndinni sitja tveir aðil- ar, einn sem er tilnefndur af Lækna- félaginu og annar sem ríkisvaldið til- nefnir. „Ef menn teldu að það væri að skapast neyðarástand eða eitthvað slíkt þá yrði sótt um það til þessarar nefndar að fá að kalla inn aukamann- skap. Síðan metur þá nefndin hvort það sé þörf eða ekki.“ Þorbjörn segir að það sé ljóst að biðlistar innan heilbrigðisstofnana muni lengjast ef til verkfalls kemur en allir sem eigi við bráð veikindi að stríða fái þjónustu. Síðast í harðar aðgerðir 1981 Síðasta stóra deila lækna, sem náði til allrar stéttarinnar, var árið 1981. Þá sögðu læknar upp stöðum sínum og stofnuðu fyrirtæki, samvinnu- félag, sem hafði það að markmiði að selja stofnunum vinnu þannig að það skapaðist ekki neitt hættuástand. Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir var formaður samvinnufélagsins Læknaþjónustan og segir hann að sjúkrahúslæknar hafi þá aðeins sinnt útköllum. Þessar aðgerðir gengu í rúman mánuð. „Það náðust samning- ar og þar komu inn mjög tímabærar breytingar eins og að fá lífeyris- greiðslur af öllum launum, ekki bara grunnlaunum heldur líka af yfir- vinnu- og vaktagreiðslum.“ Jóhann Heiðar segir að ekkert í líkingu við þetta hafi verið gert síðan, fyrir utan einstaka hópa sem hafi farið í aðgerð- ir. Lengi vel höfðu læknar ekki rétt til að fara í verkfall en það breyttist með lögum árið 1986 þegar opinberir starfsmenn fengu verkfallsrétt sinn. Ætla ekki að ógna öryggi  Verkfallið nær til allra lækna sem starfa samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands  Gildir um sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu  Einkastofur starfa áfram  Ljóst að biðlistar lengjast Morgunblaðið/Golli Landspítalinn Félagar í Læknafélagi Íslands og Skurðlæknafélagi Íslands kjósa um hvort þeir fari í verkfall. Læknaverkfall » Læknafélag Íslands verður með kynningarfund í kvöld fyr- ir félagsmenn sína, í framhald- inu verður opnað fyrir rafræna atkvæðagreiðslu og leitað eftir samþykki félagsmanna til að hefja verkfall 27. október. » Læknafélag Íslands er ekki með verkfallssjóð en hefur kannað stofnun slíks sjóðs. Verkfallssjóður verður því ekki nýttur í deilunni nú en það hefur ekki áhrif á einbeittan vilja lækna til að ná fram kjarabótum, að sögn Þor- björns. BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ef félagar í Skurðlæknafélagi Ís- lands og Læknafélagi Íslands sam- þykkja að fara í verkfall 27. október næstkomandi gætu um 850 læknar lagt niður störf. Innan Læknafélags- ins eru um 750 félagsmenn en auk þeirra eru 100 læknar í Skurðlækna- félaginu. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands (LÍ) segir að allir félagsmenn Læknafélagsins sem starfa samkvæmt kjarasamningi þess leggi niður störf. „Ef þeir eru ráðnir samkvæmt einhverju öðru eða eru með sérsamning þá gildir það ekki. En verkfallið nær til allra þeirra sem starfa samkvæmt kjara- samningi LÍ og það gildir um sjúkra- hús, heilbrigðisstofnanir og heilsu- gæslu,“ segir Þorbjörn. Starfsemin verður óbreytt hjá læknum sem reka sínar eigin stofur. Stór hluti lækna á Landspítalanum starfar líka á einkastofum en þá sam- kvæmt samningi við Sjúkratrygging- ar Íslands og verður sú starfsemi því óbreytt. Verkfallið á aðeins við það starfshlutfall sem þeir eru í á Land- spítalanum. Læknar sem starfa á einkareknum heilsugæslustöðvum munu ekki fara í verkfall, þeir eru á sérsamningum. Því mun verða óbreytt starfsemi á Heilsugæslunni í Salahverfi sem er rekin af einkahlutafélaginu Salus og hjá heimilislæknum sem reka sínar eigin stofur í Domus Medica og í Lág- múla. Þá hafa hjúkrunarheimili sína eigin lækna sem ættu ekki að fella niður störf. Verkfallið nær til lækna á Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins og á öll- um heilsugæslum á landsbyggðinni. Heilsugæslustöðin á Akureyri var rekin af bænum fram til gærdagsins, en þá varð starfsemi stöðvarinnar hluti af þjónustu Heilbrigðisstofnun- ar Norðurlands sem varð til við sam- einingu heilbrigðisstofnana sem fór formlega fram í gær. Læknar þar fara því í verkfall. Störf undanþegin verkfalli Í Stjórnartíðindum er gefinn út listi einu sinni á ári yfir þau störf hjá stofnunum ríkisins sem eru undan- þegin verkfallsheimild og eru nokkr- ar stöður á Landspítalanum á þeim lista. „Þar eru tilgreind læknisstörf sem þarf og á að vinna í verkfalli. Það Allt stefnir í að skurðlæknar á Landspítalanum fari í verkfall í lok mánaðarins. Lilja Stefáns- dóttir, framkvæmdastjóri skurð- lækningasviðs spítalans segir að ef til verkfalls komi muni biðlist- ar í aðgerðir lengjast sem nemur afköstum hvers dags. „Aðgerðir flokkast í bráðaaðgerðir og val- aðgerðir og síðan er millistig sem eru aðgerðir sem liggur mikið á, undir það flokk- ast t.d. krabba- mein. Öllum bráðatilfellum verður sinnt en ef það koma upp vafaatriði um mikil- vægi að- gerða er reynsla okkar sú að menn eru mjög faglegir í und- anþágunefndinni, þannig að það er til farvegur til að leysa þau mál.“ Spítalinn verður rekinn á eðli- legan hátt fram á síðustu stundu. „Við munum halda áfram að kalla fólk inn til aðgerða en ef ekki semst fyrir boðaðan verk- fallsdag verður fólki gerð grein fyrir því.“ Lilja segir undirbúning fyrir verkfall farinn af stað, meðal annars hafi verið boðað til fund- ar á skurðlækningasviði í næstu viku með yfirlæknum og fulltrú- um mannauðsdeildar og lögfræð- ingum, þar sem farið verði yfir undanþágulistann og skýrt vel út hvaða reglur gilda í verkföllum. „Ef til verkfalls kemur tökum við svo hvern sólarhring fyrir sig,“ segir Lilja. Undirbúningur verkfalls hafinn SKURÐLÆKNINGASVIÐ LANDSPÍTALANS Lilja Stefánsdóttir Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Ketilbjöllur þriðjud. og fimmtu d. kl 12:00 Cross train Extre me XTX Mánud. þriðjud. o g fimmtud. kl. 17. 15 Laugardagar kl.10 .00 Spinning mánudaga, miðvik udaga og föstudaga kl. 12:0 0 og 17:15 Opnir tímar: Frír prufutími Persónulegt þjónusta og vinalegt umhverfi Miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti í gær að senda umræðu- skjal til aðildarfélaga ASÍ um hlut- hafastefnur lífeyrissjóða og launa- kjör stjórnenda í fyrirtækjum í þeirra eigu. Halldór Grön- vold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ, sagði að lokn- um fundi mið- stjórnarinnar á Akureyri, að nú verði það verkefni um 300 þingfull- trúa sem sækja 41. ársþing ASÍ 22.- 24. október að komast að niðurstöðu „og er þetta upplegg ætlað til að styðja þá við það vandasama verk“. „Ég gef mér það að það sé fullur stuðningur við að sett verði einhvers konar viðmið. Útfærslan er flóknara mál og ég þori ekki að fullyrða um það nákvæmlega hver sú niðurstaða verður,“ segir Halldór. „Í skjalinu er ekki að finna töluleg viðmið. En það kæmi mér ekki á óvart að krafa um slíkt komi fram á þinginu sjálfu … Það er ljóst að það er skýr krafa innan okkar samtaka og meðal okkar félagsmanna í aðildarfélögum ASÍ, að mótuð verði stefna af hálfu ASÍ sem þá fulltrúar okkar í stjórnum lífeyrissjóða, og eftir atvikum fulltrúar sjóða í stjórn- um fyrirtækja, noti í sínu starfi, m.a. hvað varðar fjárfestingar.“ Í skjalinu er vikið að kaupaukum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, seg- ir sambandið „ekki á móti kaupauk- um og að menn fái umbun fyrir að gera vel“. „Við teljum hins vegar mjög mikilvægt að slík kerfi séu ekki óeðlileg að umfangi en jafnframt að þau stuðli að langtímahugsun – að stjórnendur geti með skammtíma- athöfnum ekki skaðað hagsmuni fyrirtækja og starfsmanna til lengri tíma litið.“ baldura@mbl.is Telja mikinn stuðning við þak á laun stjórnenda  Miðstjórn ASÍ sendir aðildarfélögunum umræðuskjal Halldór Grönvold Ákall um aðgerðir » Forseti ASÍ segir að innan sambandsins sé mikið kallað eftir meira aðhaldi í launa- kjörum hjá stjórnendum. » Lífeyrissjóðir launafólks séu stórir eigendur í mörgum stærstu fyrirtækjum landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.