Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 23
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Plankaparket í miklu úrvali Burstað, lakkað, olíuborið, hand- heflað, reykt, fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket? Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 Takk fyrir að leyfa mér að taka þátt, að vera gestur í geð- klofahópnum í Vin. Ég varð þess aðnjótandi að fá að sitja einn fund í Vin og fylgjast með framvindu hans. Eftir umræður tímans var spurningu varpað á mig: „Hvernig leið þér að vera hérna?“ Svarið er að mér leið bæði vel og illa. Vel vegna þess að mér var vel tekið og án nokkurs vafa var ég hjart- anlega velkomin. Í þessum hópi ræð- ir fólk sín mál, það sem vel fer og það sem miður fer. Hér ríkir fullkomið traust, svo ekki sé nefnt hugrekki. Þetta var lærdómsríkur klukkutími, eins og ég sagði við einn. „Sálfræð- ingurinn og fræðimaðurinn Skinner fölnar í samanburði við þessa klukku- stund.“ Mér leið illa vegna þess að hér upplifði ég hversu mikil þörf er fyrir úrræði fyrir geðfatlaða og þörfin til þess að styðja við núverandi úrræði. Nú er komin upp sú staða að sá fag- maður sem leitt hefur þessa fundi í Vin mun ekki koma til með að stýra þeim hvern föstu- dag eins og áður var, heldur annan hvern föstudag og jafnvel mun starfsemin falla alfarið niður um áramót. Sem fagmaður og verðandi þroskaþjálfi rennur mér blóð til skyldunnar að skrifa þessa grein. Fag- mennska er ekki með- fæddur hæfileiki heldur eitthvað sem maður öðlast meðal annars með reynslu í gegnum uppeldi, nám, sið- ferði og gagnrýni á eigin vinnubrögð. Það er ástæða fyrir því að fag- mennska nýtist á vettvangi eins og í Vin. Með því að tileinka sér ákveðin vinnubrögð, rækta eigið innsæi og siðferðisleg gildi er hægt að áorka miklu. Það gefur möguleika á því leiða hópa, eins og geðklofahópinn í Vin. Að sögn þjónustuþega er mikil- vægt að fagmaður leiði hópinn, því annars er hætta á því að fundirnir missi marks. Notendur tala af eigin reynslu og mikilvægt að fagaðili stýri umræðunni þar sem umræðan verð- ur oft flókin og erfið. Flestir á þess- um fundum eru ekki í stakk búnir að taka þá ábyrgð sem því fylgir að vera leiðbeinendur, flestir eru í leit að að- stoð og svörun. Að skera niður þjónustu sem þessa er ótækt. Að skera niður þjónustu í geðheilbrigðismálum er ótækt. Fundirnir sem um ræðir eru klukku- stund á viku. Er það óyfirstíganlegt fyrir yfirvöld/velferðarkerfið að koma til móts við fólk þessa klukku- stund? Ég biðla til yfirvalda að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hefur verið með Vin. Byggjum okkar fólk upp í stað þess að láta það af- skipt, geðheilsu er ekki hægt að leggja að jöfnu við neitt annað. Marg- ir hverjir nýta sér ekki aðra þjónustu en þessa. Á fundunum myndar fólk tengsl og finnur til öryggis í jafn- ingjahópi, hér getur fólk leitað stuðn- ings sem það annars fengi ekki. Að eiga vin í Vin er mikilvægt, fag- maður er vinsamlegur utanað- komandi aðili sem hefur það sameig- inlega markmið með þjónustuþegum að gera daginn og vikuna bjartari og bærilegri. Ábyrgðin á ekki að liggja hjá þjónustuþegum eins og nú. Aug- ljóslega liggur ábyrgðin heldur ekki hjá velferðarkerfinu, þar sem þjón- ustan er dregin saman í hvívetna. Hversu langt ætlum við að ganga á geðheilsu fólks? Eftir Rögnu Ragnarsdóttur Ragna Ragnarsdóttir »Ég biðla til yfirvalda að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hefur verið með Vin. Höfundur er með BA í sálfræði og er þroskaþjálfanemi á 3. ári. Átt þú vin í Vin? Hafa þeir yfirgefið flokkinn, sem settu fram þessa stefnu- yfirlýsingu á síðasta landsfundi? Í þágu heimilanna. Eða hvers vegna er þagað? Sem fyrrverandi flokksmaður spyr ég: Hvaða heimila? Þeirra sem hafa hæstu launin – skatturinn lækkaður þar, stóreignafólks, skatturinn lækkaður þar, útgerð- armanna, skatturinn lækkaður þar, allra annarra heimila, skatturinn hækkaður og nýjar álögur settar á. Ein landsfundarsamþykkt síðasta landsfundar er mér í minni, þar sem tillaga efnahags- og viðskipta- nefndar var um lækkun á virð- isaukaskatti, sem jafnframt verði í einu þrepi. Henni var breytt á lands- fundinum, þannig að lægra skatt- þrepið ætti að vera óbreytt, en lækka ætti efra þrepið. Þessi sam- þykkt er ekki skráð inn í ályktun landsfundarins á vef flokksins, en hana hef ég undir höndum frá lands- fundinum. Hvað um aðrar samþykktir frá þessum landsfundi svo og stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá í júní 2013? Varðandi verðtrygg- inguna, lyklafrumvarpið, skjól fyrir uppboðum o.fl. Hvað um samþykkt landsfundarins varðandi eldri borg- ara? Staðreyndir gagnvart eldri borg- urum og öryrkjum tala sínu máli um að það var ekki verið að fjalla um þeirra heimili á landsfundinum: Lög frá 1. júlí 2009, sem skertu sérstaklega kjör eldri borgara og öryrkja um a.m.k. 12 milljarða til ársloka 2013 hafa ekki verið numin úr gildi eða skerðingin verið bætt. Í ársbyrjun hækkuðu lífeyrisgreiðslur um 3,6% en lægstu laun hækkuðu um 5%. Frá 2009 til ársloka 2013 hækkuðu lágmarkslaun um 40% en lífeyris- greiðslur um 17%. Boð- uð breyting á almanna- tryggingum og lögum um málefni aldraðra hefur ekki náð fram, sem þýðir endalausar skerðingar og fá- tæktargildru efnaminni eldri borg- ara og öryrkja. Samhliða þessum skerðingum hafa nær öll þjónustu- gjöld og sjúkragjöld sem öryrkjar og eldri borgarar eru háðir, hækkað verulega, samhliða því að niður- greiðsla á nauðsynlegum sjúkra- tækjum hefur staðið nær óbreytt frá 2009. Í þágu hvaða heimila ætlar núver- andi ríkisstjórn að starfa og verða minnst? Eftir Halldór Gunnarsson Halldór Gunnarsson »Ein tillaga er mér í minni, um virðis- aukaskatt. Henni var breytt, þannig að lægra skattþrepið ætti að vera óbreytt, en lækka ætti efra þrepið. Höfundur er fyrrverandi sóknar- prestur og flokksmaður Sjálfstæðis- flokksins. Hvar eru lands- fundarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins? Ég er einn þeirra sjálfstæðismanna sem gáfu flokknum atkvæði sitt í síðustu kosningum gegn því að hann stæði við loforð sitt um að draga til baka aðildarumsókn Ís- lands að ESB. Nú eru liðin rúm tvö ár og ennþá bólar ekki á neinu framtaki hjá þessari ríkisstjórn okkar til að gera hreint fyrir okkar dyrum gagnvart ESB. Ég hrein- lega trúi ekki að þessir gömlu bandamenn (Sjálfstæð- isflokkur og Framsókn), sem hafa frá stofnun barist fyr- ir sjálfstæði Íslands, ætli að horfa upp á baráttu forfeðra sinn, frelsi okkar og sjálfstæði kæft í klónum á ESB á vakt Bjarna Ben hins yngri. Heiðraða ríkisstjórn: Það er kominn tími til að standa við stóru orðin og að hætta að draga lappirnar af ótta við að missa atkvæði í framtíðarkosningum. Tilkynnið ESB ákvörðun Íslendinga um áframhaldandi sjálfstæði með því að draga til baka umsókn Íslands að ESB með form- legum hætti! Karl Jónatansson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Efndir óskast D U X ®, D U X IA N A ® a n d P a sc a l® a re re g is te re d tr a d e m a rk s o w n e d b y D U X D e si g n A B 2 0 12 . Við tökum svefninn alvarlega. Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki, stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun. duxiana.com DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950 Gæði og þægindi síðan 1926

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.