Morgunblaðið - 02.10.2014, Page 44
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Fundu lík Alice Gross í ánni
2. Seld á 12 Bandaríkjadali
3. Með hjólið að láni í rúm 40 ár
4. Íbúar lamaðir vegna morðsins
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Breska sjónvarpsþáttaröðin Forti-
tude, sem tekin var upp að miklu
leyti á Reyðarfirði á þessu ári, verður
sýnd í janúar á RÚV. Heimskunnir
leikarar fara með helstu hlutverk í
þáttunum, þ.á m. Christopher Eccle-
ston, Michael Gambon, Stanley Tucci
og Sofie Gråbøl og Björn Hlynur Har-
aldsson, sem hér sést í stillu úr
þáttaröðinni Hraunið, fer einnig með
stórt hlutverk í Fortitude.
Þáttaröðin Fortitude
sýnd á RÚV í janúar
Reykjavík
Shorts & Docs
verður gestahátíð
stuttmyndahátíð-
arinnar Timishort
sem fer fram í
Timisoara í Rúm-
eníu 2 - 5. októ-
ber. Níu íslenskar
stutt- og heimild-
armyndir sem sýndar hafa verið hin
síðustu ár á Shorts & Docs verða
sýndar á hátíðinni í Rúmeníu auk
tveggja mynda sem hafa tengingu við
Ísland. Á næstu Shorts & Docs-hátíð,
sem haldin verður í apríl 2015, verða
sýndar rúmenskar myndir, að sögn
Heather Millard, stjórnanda hennar.
Shorts & Docs á Timi-
short í Rúmeníu
Barnabókin sígilda Helgi skoðar
heiminn, eftir myndlistarmanninn
Halldór Pétursson
og rithöfundinn
Njörð P. Njarðvík,
hefur verið endur-
útgefin á íslensku,
ensku og dönsku
og kemur einnig
út í fyrsta sinn á
þýsku.
Helgi fer um heiminn
Á föstudag Vestanátt, víða 10-15 m/s, en 15-23 N-lands. Slydda
eða snjókoma fyrir norðan, en rigning við sjávarmál.
Á laugardag Suðaustan og síðar austan 5-10 m/s. Rigning á SA-
verðu landinu, stöku skúrir eða él V-til, víða þurrt N- og NA-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 10-18, snýst í sunnan
10-18 austantil síðdegis. Víða rigning eða slydda, fyrst SA-lands.
VEÐUR
Fyrir nákvæmlega áratug, nán-
ar tiltekið 17. september 2004,
tók ungur framherji, Atli
Guðnason að nafni, drjúgan
þátt í því að senda Stjörnuna
niður í 2. deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu. Á sama tíma var
FH að tryggja sér sinn fyrsta
meistaratitil. Saga FH og
Stjörnunnar síðustu tíu árin er
ólík en á laugardaginn standa
þau nánast jafnhliða og sigur-
vegarinn í Kaplakrika hampar
Íslandsbikarnum í leikslok. »2
Atli sendi Stjörnuna
í 2. deildina
„Ég er í raun búin að eiga tvö mjög
góð tímabil núna og ég er kannski
stoltust af því, eftir að hafa oft verið
spurð í fyrra hvort ég væri að
„toppa“, að ég skuli hafa náð að
halda því áfram,“ segir
Harpa Þorsteins-
dóttir sem
hefur skorað
55 mörk fyrir
Stjörnuna í
efstu
deild í
fót-
bolt-
anum á
tveimur
árum
og var í
gær út-
nefnd besti
leikmaður deild-
arinnar í ár. »1
Stoltust að hafa náð að
halda þessu áfram
„Upphaflega markmiðið var alltaf sjö
mánuðir og tólf dagar eins og síðast.
Markmiðið var að ná þessu á sama
tíma en vera samt í betra standi held-
ur en síðast,“ segir Rúnar Kárason,
landsliðsmaður í handknattleik og at-
vinnumaður í Þýskalandi, sem er að
komast af stað á ný eftir að hafa slit-
ið krossband í hné í annað skiptið á
skömmum tíma. »4
Markmiðið að vera í
betra standi en síðast
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Um þessar mundir eru 80 ár frá því
fyrst var horft á sjónvarp á Íslandi.
Tveir menn nutu stundarinnar á
Sjónarhæð á Akureyri: Grímur Sig-
urðsson, síðar útvarpsvirkjameist-
ari, og F.L. Hogg, breskur verk-
fræðingur sem hingað hafði komið á
vegum trúboðans Arthurs Gook og
Sjónarhæðarsafnaðarins.
Söguvarða
Þetta var á allra fyrstu árum
sjónvarps í heiminum, löngu áður en
Íslendingar vissu almennt hvað
sjónvarp var.
Grímur og Hogg horfðu á til-
raunaútsendingar frá Crystal Pa-
lace Studios í London og í tilefni
tímamótanna var í vikunni afhjúpuð
söguvarða við Eyrarlandsveg á Ak-
ureyri, þar sem þessarar tilraunar í
sjónvarpsmálum er minnst. Varðan
er norðan og neðan við Mennta-
skólann, þar sem sér yfir Pollinn,
skammt frá Sjónarhæð.
Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug-
og félagsvísindasviðs skólans, af-
hjúpaði vörðuna í tengslum við ráð-
stefnu sem námslína í fjölmiðlafræði
við félagsvísindadeild HA stóð fyrir
á mánudaginn í tilefni tímamótanna
en þar var fjallað um tjáningarfrelsi
og þá félagslegu ábyrgð sem því
fylgir.
Birgir Guðmundsson, dósent við
Háskólann á Akureyri, segir til-
raunastarfsemi þeirra Gríms og
Hoggs á árunum 1934 til 1936
merkilega en þeir tóku á móti sjón-
varpssendingunum með búnaði sem
þeir höfðu að hluta til útbúið sjálfir.
„Sjónvarpsmóttaka þeirra félaga
var tvímælalaust fyrsta sjónvarp á
Íslandi og raunar voru þeir þátttak-
endur í sjónvarpstilraunum á algeru
bernskuskeiði þess. Móttökubún-
aður var til staðar á Akureyri vegna
þess að skömmu áður höfðu verið
gerðar þar merkilegar tilraunir til
að setja þar á fót trúboðsútvarp,“
segir Birgir. Tvö stór möstur voru
steinsnar frá þeim stað þar sem
söguvörðunni var valinn staður.
Vélrænt sjónvarp varð undir
„Í Lundúnum var verið að gera
tilraunir með sjónvarpssendingar
um langan veg, tilraunir sem segja
má að hafi verið liður í alþjóðlegri
keppni um hvaða tækni yrði ofan á í
sjónvarpsútsendingum, einkum þó
og sér í lagi í útsendingum hjá
BBC. Sjónvarpsútsendingarnar sem
tekið var á móti á Akureyri voru
svokallað vélrænt sjónvarp, sem
skoski uppfinningamaðurinn John
L. Baird var frumkvöðull að, en það
var einmitt fyrirtæki hans sem stóð
að útsendingunum frá Crystal Pa-
lace. Hið vélræna sjónvarp varð
undir í samkeppninni og ekki varð
framhald á útsendingum í þessu
formi til Akureyrar frá hausti
1936.“
Horfðu á sjónvarp nyrðra 1934
Grímur Sigurðsson og F.L. Hogg á
Akureyri sáu útsendingu frá London
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Söguvarða Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri, og Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs skólans, við söguvörðuna.
„Svo virðist sem frumkvöðla-
starfsemi þeirra Fredriks Hoggs
og Gríms Sigurðssonar – fyrsta
Íslendingsins sem horfði á sjón-
varp hér heima – hafi ekki vakið
mikla athygli hér á landi fyrr en
nú. Ekkert var um
sjónvarpsmóttök-
urnar fjallað í
blöðum á meðan
þær stóðu yfir, og
lítið hefur verið
um þær skrifað,“
segir Birgir Guð-
mundsson
dósent við
HA.
Vakti enga
athygli
FRUMKVÖÐLASTARFIÐ