Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 Elliði Vignisson, bæjarstjóri íVestmannaeyjum, ritar opið bréf til þingmanna Sjálfstæðis- flokksins þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af stöðu sjávar- útvegsins og þar með landsbyggð- arinnar.    Elliði bendir áað Alþingi hafi farið offari gagnvart sjávar- útvegi og sjávar- byggðum. „Frum- vörp hafa komið fram með stuttum fyrirvara og án samráðs við sjávarútvegssveitarfélögin sem þó eiga allt undir því hvernig að mál- um er staðið. Skollaeyrum hefur verið skellt við vönduðum umsögn- um og látið undir hælinn leggjast að meta áhrif lagafrumvarpa á íbúa sjávarbyggða og fyrirtækin sem þeir eiga og/eða starfa hjá,“ segir hann.    Og hann bætir við að vonir hansog fjölmargra annarra um breytt vinnulag og áherslur í kjöl- far stjórnarskipta hafi því miður ekki gengið eftir. Þess vegna sé svo komið að Vestmannaeyjabær og fyrirtæki í Vestmannaeyjum stefni að dómstólaleið til að ná leiðréttingu á stjórnvaldsákvörð- unum í sjávarútvegi.    Elliði nefnir einnig að sjávar-útvegurinn hafi staðið af sér „stöðugar hótanir og gríðarlegar álögur í tíð vinstri stjórnar Jó- hönnu og Steingríms J.“ Nú séu hins vegar blikur á lofti og það sé „á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins að bregðast við þessum blikum og koma í veg fyrir alvarlegar afleið- ingar fyrir íbúa sjávarútvegs- sveitarfélaga og á íslenskt hag- kerfi.“    Vonandi leggja þingmenn viðhlustir og víkja með afger- andi hætti af leið vinstri stjórnar- innar. Elliði Vignisson Þörf ábending STAKSTEINAR Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Ís- lands sendi í gær frá sér ályktun þar sem mótmælt er „skefjalausum niðurskurði“ á starfi skólans. Skor- að er á ríkisstjórn og Alþingi að taka til alvarlegar skoðunar „þá fordæmalausu stöðu“ sem stofn- unin hafi verið sett í. Bent er á að frá stofnun skólans árið 2005, með sameiningu Land- búnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins og Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum, hafi starfsfólki fækkað um helming þrátt fyrir fyrirheit um uppbyggingu. „Nú er nóg komið“ „Ekki sér fyrir endann á niður- skurði og uppsögnum starfsfólks með óvæntum niðurskurði á fram- lögum frá atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneyti um 18 milljónir, til viðbótar við harða endurgreiðslu- kröfu Alþingis og mennta- og menningarmálaráðuneytis. Sú fjöl- breytta starfsemi á sviði mennt- unar og rannsókna á íslenskri nátt- úru, matvælaframleiðslu og fjölbreyttri nýtingu náttúru- auðlinda sem fram fer við skólann á því verulega undir högg að sækja,“ segir í ályktun starfsfólks- ins, sem klykkir út með þessum orðum: „Kæru ráðamenn þjóðarinnar: Nú er nóg komið.“ Hvanneyri Starfsfólk Landbúnaðar- háskólans hefur miklar áhyggjur. Mótmæla niðurskurði harðlega  Starfsfólk á Hvanneyri uggandi Aðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og Hönnunarmiðstöð Íslands standa fyrir samkeppni um hönnun á nýju einkennismerki, jafnlaunamerki fyrir vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana. Samkeppnin er öllum opin en veitt verða ein verðlaun að upphæð 1.000.000 kr. Skilafrestur tillagna er til kl. 12:00, 5. nóvember 2014. Einkennismerkið skal endurspegla inntak jafnlaunastaðals þ.e. að jafnverðmæt störf njóti sömu kjara og réttinda óháð kyni og hvers konar mismunun. Merkið þarf að vera nothæft í alþjóðlegu samhengi þar sem Jafnlaunastaðallinn er fyrstur sinnar tegundar í heiminum og gæti verið þýddur og innleiddur erlendis. Merkið þarf að vera áhugavert, einkennandi og auðvelt í notkun í öllum miðlum. Valdar tillögur verða sýndar á norrænni ráðstefnu um jafnlaunamál og jafnrétti á vinnumarkaði þann 13. nóvember. Á ráðstefnunni fer verðlauna- afhending einnig fram. Jafnlaunastaðallinn er stjórntæki sem nýtist atvinnurekendum við mótun eða endurskoðun á launastefnu sinni og þeim aðferðum og viðmiðum sem notuð eru við launasetningu. Jafn- launastaðallinn er afurð áralangs samstarfs heildarsamtaka launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda. Um er að ræða útfærslu á ákvæði í jafnréttislögum 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna til launa. Markmið innleiðingar jafnlaunastaðals er að auka gagnsæi og gæði í launaákvörðunum svo jafnverðmæt störf njóti sömu kjara og réttinda. Nánari upplýsingar um hönnunarsamkeppnina er að finna á vefslóðinni www.honnunarmidstod.is Samkeppni umjafnlaunamerki Veður víða um heim 7.10., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 11 léttskýjað Akureyri 11 léttskýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 10 þoka Ósló 7 alskýjað Kaupmannahöfn 13 skúrir Stokkhólmur 10 skýjað Helsinki 10 heiðskírt Lúxemborg 11 skúrir Brussel 12 léttskýjað Dublin 12 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 15 léttskýjað París 15 skýjað Amsterdam 12 skúrir Hamborg 13 skýjað Berlín 15 heiðskírt Vín 15 alskýjað Moskva 5 heiðskírt Algarve 22 léttskýjað Madríd 22 léttskýjað Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 20 alskýjað Winnipeg 2 skúrir Montreal 15 skúrir New York 20 heiðskírt Chicago 16 skýjað Orlando 28 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:58 18:34 ÍSAFJÖRÐUR 8:07 18:35 SIGLUFJÖRÐUR 7:50 18:18 DJÚPIVOGUR 7:28 18:02 Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.